Fréttablaðið - 31.10.2008, Page 10
10 31. október 2008 FÖSTUDAGUR
L I S T V I N A F É L A G H A L L G R Í M S K I R K J U - 2 6 . S T A R F S Á R
SCHOLA CANTORUM
Hörður Áskelsson
allra sálna messa
T
Ó
N
L
E
IK
A
R
Í
H
A
L
L
G
R
ÍM
S
K
IR
K
J
U
su
n
n
u
d
a
g
2
.
n
ó
v
e
m
b
e
r
2
0
0
8
k
l.
1
7
ÞORKELL SIGURBJÖRNSSON
THOMAS LUIS DE VICTORIA
HENRY PURCELL
THOMAS TOMKINS
THOMAS WEELKES
HANS LEO HASSLER
ERIC WHITACRE
F
O
R
S
A
L
A
Í
H
A
L
L
G
R
ÍM
S
K
IR
K
J
U
A
Ð
G
A
N
G
S
E
Y
R
IR
2
.5
0
0
/1
.8
0
0
K
R
.
í samstarfi við Borg
arleikhúsið kynnir:
Höfundar og flytjendur: Margrét Sara Guðjónsdóttir
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Jared Gradinger
Sýnt á Stóra sviði
Borgarleikhússins
Tryggðu þér miða núna!
568 8000 / midi.is
PRIVATE DANCER
www.panicproductions.is
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
2. sýning - á morgun kl. 15
3. sýning - 2. nóvember kl. 20
Aðeins þessar 2 sýningar!
Auglýsingasími
– Mest lesið
EFNAHAGSMÁL Halli á fjárlögum
ríksins gæti á næsta ári náð tíunda
hluta af vergri landsframleiðslu,
sagði Geir H. Haarde forsætisráð-
herra þegar hann flutti Alþingi
skýrslu um efnahagsmál í gær.
Miðað við landsframleiðslu síð-
asta árs gæti halli á fjárlögum því
numið um 130 milljörðum króna.
Geir sagði að í langtímaáætlun sé
reiknað sé með því að hallinn verði
lækkaður frá árinu 2010 um tvö til
þrjú prósent á ári.
Geir sagði að reikna megi með
því að skuldir ríkissjóðs muni
hækka úr 29 prósentum af vergri
landsframleiðslu árið 2007 í rúm
100 prósent í lok árs 2009.
Uppgjörið á þroti viðskipta-
bankanna gæti numið allt að 85
prósentum af vergri landsfram-
leiðslu, sagði Geir. Það nemur um
það bil 1.100 milljörðum króna,
miðað við landsframleiðslu á síð-
asta ári. Geir sagði að hafa verði í
huga að ekki sé ætlun ríkisins að
eiga bankana til langframa. Hluta-
fé verði vonandi selt með ávinn-
ingi þegar fram líði stundir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra lagði áherslu á
að styrkja verði stöðu heimila og
fyrirtækja. Leita verði leiða til að
draga úr gjaldþrotum einstakl-
inga, og breyta lögum svo þeir
sem fari í þrot komist sem allra
fyrst á réttan kjöl á ný.
Þá verði að gefa fólki kost á létt-
ari greiðslubyrði af lánum, fjölga
leiguíbúðum, og gefa þeim sem
eru að missa húsnæði sitt kost á að
leigja það, með það fyrir augum
að eignast það á ný síðar. Þá verði
að leita leiða til að draga úr
atvinnuleysi og fjölga störfum.
Þá sagði Ingibjörg að gera verði
upp við þá atburði sem leiddu til
kollsteypu íslenska fjármálakerf-
isins. „Óhófleg launakjör æðstu
stjórnenda verða að heyra sögunni
til, sömuleiðis himinháar starfs-
lokagreiðslur og bónusgreiðslur
sem byggðar eru á skammtíma-
gróða,“ sagði hún.
Þingmenn stjórnarandstöðunn-
ar gagnrýndu harkalega að efna-
hagsspá sem fylgja mun erindi
Íslands til stjórnar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins sé ekki gerð opinber.
Þá gagnrýndu þeir misvísandi orð
ráðamanna um skilyrði sjóðsins
og stýrivaxtahækkun.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, benti
á að ef vextir af fyrirhuguðu láni
verði tæp fimm prósent verði
vaxtagreiðslurnar einar um 13
milljarðar króna ári.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, kallaði
eftir því að forsendur fjárlaga
verði gerðar opinberar sem fyrst.
Hann spurði hvort til standi að
setja aukið fé í tækniþróunarsjóð,
nýsköpunarsjóð og byggðastofn-
un, og kallaði eftir aðgerðum
vegna vanda sveitarfélaganna.
brjann@frettabladid.is
Geir spáir allt að 130
milljarða hallarekstri
Reikna má með þreföldun skulda ríkissjóðs vegna fjármálakreppunnar segir
forsætisráðherra. Utanríkisráðherra segir að styrkja verði stöðu heimila og fyr-
irtækja. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu stjórnvöld fyrir misvísandi ummæli.
FORSENDA AÐSTOÐAR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði ríkisstjórn-
ina verða að ganga á undan með góðu fordæmi og gera nauðsynlegar breytingar á
eftirlaunum ráðherra fyrir jól. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVEITARSTJÓRNIR Árborg tapar 110
milljónum króna vegna 350 millj-
óna inneignar sinnar í peninga-
markaðssjóði hjá Landsbankanum.
Bæjarráðið samþykkti í gær að
fela lögmannsstofu að kanna laga-
lega stöðu sveitarfélagsins með
tilliti til skaðabóta.
„Þessi bréf voru alltaf almennt
kynnt sem mjög örugg,“ segir
Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjar-
stjóri. Aðspurð kveður hún enn
ekki ljóst hvort skrifleg gögn í
fórum bæjarfélagsins styðji þá
fullyrðingu að peningamarkaðs-
sjóðir hafi verið kynntir bænum
sem örugg fjárfesting þegar bær-
inn setti 730 milljónir króna í sjóð
hjá Landsbankanum eftir sölu á
hlut í Hitaveitu Suðurnesja í fyrra-
sumar. „Það er hluti af þeirri vinnu
sem nú er að fara í gang að fara
ofan í gögn frá því sumarið 2007.“
Eins og greint hefur verið frá í
Fréttablaðinu lagði Eyþór Arnalds,
fulltrúi minnihluta sjálfstæðis-
manna, það til á bæjarráðsfundi í
síðustu viku að laun bæjarstjóra
og bæjarfulltrúa yrðu lækkuð.
Einnig að bæjarstjórinn þyrfti að
sjá af því að þiggja bæði laun sem
slíkur og sem bæjarfulltrúi. Ragn-
heiður segir þetta í samræmi við
það sem meirihlutinn sé að skoða.
„Það þarf að velta við hverjum
steini og ég er að sjálfsögðu ekki
undanskilin þar,“ svarar Ragnheið-
ur sem kveður áríðandi sem aldrei
fyrr að minnihluti og meirihluti
starfi saman og að það verði gert í
sambandi við fjárhagsáætlun
næsta árs. - gar
Tap Árborgar vegna eignar í peningamarkaðssjóði Landsbankans 110 milljónir:
Kanna rétt Árborgar til bóta
RAGNHEIÐUR
HERGEIRSDÓTTIR
Bæjarstjórinn í
Árborg er reiðu-
búin að lækka í
launum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Óhófleg launakjör æðstu
stjórnenda verða að
heyra sögunni til, sömuleiðis
himinháar starfslokagreiðslur og
bónusgreiðslur sem byggðar eru á
skammtímagróða.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
UTANRÍKISRÁÐHERRA
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsókna-
stofnun hefur lagt til að heimiluð
verði veiði á 500 tonnum af rækju í
Arnarfirði. Síðasta vetur var
heimilt að veiða 150 tonn en tvo
vetur þar á undan var engin veiði í
firðinum. Ragnar Jörundsson,
bæjarstjóri Vesturbyggðar, segist
nú vona að vinnsla hefjist aftur í
rækjuverksmiðjunni á Bíldudal en
hingað til hefur mest verið sent til
vinnslu til Grundarfjarðar.
Unnur Skúladóttir hjá Hafrann-
sóknastofnun segist vongóð um að
rækjuveiði geti hafist á öðrum
svæðum á næstu árum. Til dæmis
virðist stofninn í Skjálfandaflóa
vera á nokkurri uppleið. - jse
Hafrannsóknastofnun:
Meiri rækja
í Arnarfirði
SKIPULAGSMÁL Nágrannar sætta sig ekki við að
þriggja hæða tvíbýlishús rísi á lóð við Ofanleiti þar
sem nú stendur söluturn.
Hamborgarabúllan, sem er félag í eigu Tómasar
Tómassonar veitingamanns, hefur óskað eftir
heimild til að rífa núverandi hús í Ofanleiti 14 og
byggja íbúðarhús. Söluturn sem þar var rekinn hafi
verið lokaður í nokkur ár.
Mótmælabréf með undirskriftum 48 íbúa í
nágrenni barst borgaryfirvöldum þegar tillaga um
breytingarnar var auglýst. Segjast þeir eiga kröfu á
að fullbyggðu hverfi sé ekki raskað. Nýja húsið
muni þrengja mjög að mörgum og valda lakari
lífsgæðum. Útsýni verði heft og sömuleiðis dragi úr
sólarljósi á mörgum svölum og lóðum.
„Miðað við stærð kynntrar byggingar og smæðar
lóðar verður nálægðin þrúgandi í mörgum íbúðum í
nágrenninu,“ segir í mótmælabréfi íbúanna sem
kveðast ennfremur óttast að verðmæti eigna þeirra
falli verulega.
Málinu hefur nú verið vísað til umsagnar verkefn-
isstjóra hjá skipulagsstjóra. - gar
Áform Tómasar í Hamborgarabúllunni um breytingar í Ofanleiti mæta andstöðu:
Vilja ekki íbúðir í stað sjoppu
TVÍBÝLISHÚS Í OFANLEITI Nágrannar óttast að nálægðin við
nýtt íbúðarhús verði þrúgandi.
NÚVERANDI SÖLUTURN Hefur verið lokaður síðustu árin.
Byggt við kirkjuna
Sóknarnefnd Hveragerðissóknar vill
byggja við kirkjuna vegna fjölgunar
sóknarbarna og breytinga á starfs-
háttum og helgihaldi. Farið er fram
á að Hveragerðisbær stækki lóð
kirkjunnar til vesturs fyrir ný bílastæði.
Ekki á að stækka kirkjuskipið heldur
bæta aðstöðu fyrir safnaðarstarf og
starfsfólk.
HVERAGERÐI
Stýrivextir lækka í Noregi
Seðlabanki Noregs lækkaði í gær
stýrivexti sína um hálft prósentustig
í tilraun sinni til að örva efnahagslíf
landins en lækkandi olíuverð hefur
haft veruleg áhrif í Noregi. Stýrivextir
í Noregi eru eftir lækkunina 4,75
prósent en lækkunin í gær er önnur
hálfs prósentustiga lækkunin á einum
mánuði.
EFNAHAGSMÁL
Ammóníakleki á Óðinsvéum
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var kallað að Hótel Óðinsvéum um
klukkan tvö í gær vegna ammóníaks-
lyktar í einu herberginu. Í ljós kom
að ammóníak hafði lekið úr míníbar.
Var hann fjarlægður og loftað út úr
herberginu.
LÖGREGLUFRÉTTIR