Fréttablaðið - 31.10.2008, Page 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég elda nokkurn veginn á hverj-
um degi og finnst mikilvægt að fá
bæði hollan og góðan mat,“ segir
Unnur María Bergsveinsdóttir og
viðurkennir að hún sé matargat.
„Ég er alin upp við góðan mat
og mamma er ofboðslega góður
kokkur. Þegar ég var lítil fannst
krökkum oft skrítinn matur
heima hjá mér en mamma eldaði
mikið grænmetisrétti og bauna-
rétti og tófú. Ætli ég hafi ekki til-
raunagleðina í eldhúsinu frá
henni.“
Unnur er sagnfræðingur að
mennt og verkefnisstjóri mið-
stöðvar munnlegrar sögu á Þjóð-
arbókhlöðunni. Hún eldar oftast
einfalda rétti eins og grænmetis-
rétti með hrísgrjónum eða núðl um
og salöt. Spurð um uppáhalds-
matinn segist hún eiga erfitt með
að gera upp á milli.
„Ég er mjög hrifin af grænmet-
is- og fiskréttum en ef ég á að
velja eitthvað alveg uppáhalds þá
væri það sushi. Ég útbý það oft
sjálf og það er engin kúnst ef
maður á hrísgrjónapott. Erfiðast
er að fá hrísgrjónin góð en svo er
þetta bara smá æfing að rúlla og
móta bitana.“
Unnur er dugleg að setja saman
eigin uppskriftir og fer sjaldan
eftir tilbúnum uppskriftum, les
þær einungis til innblásturs. Hún
segir æfinguna skapa meistarann
þegar kemur að eldamennsku.
„Eftir nokkur ár af misheppn-
uðum tilraunum þá lærist hvað
má og hvað má ekki. Fyrst þegar
ég fór að búa borðaði ég oft eitt-
hvað sem var alls ekki gott, en
það er langt síðan mér hefur tek-
ist að búa til eitthvað vont.“
Uppskriftin sem Unnur býður
lesendum upp á er að kjúklinga-
rétti sem hún eldar þegar hún vill
gera vel við gesti. Uppskriftin er
á síðu 4.
heida@frettabladid.is
Eldar sjaldan vondan mat
Unnur María Bergsveinsdóttir sagnfræðingur er matargat. Hún er tilraunaglöð í eldhúsinu og vill borða
góðan og hollan mat og segir langt síðan henni tókst að elda eitthvað vont.
Unnur María Bergsveinsdóttir sagnfræðingur eldar á hverjum degi eitthvað gott og hollt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÚTVARPSLEIKHÚSIÐ frumflytur nýtt leikrit eftir
írsk-íslenska leikskáldið Brian FitzGibbon á Rás 1 á
sunnudaginn klukkan 14. Leikritið heitir Annar maður
og er í leikstjórn Eddu Heiðrúnar Backman.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
ri
n
g
b
ro
t
Verð 7.750 kr.
Villibráðar-
hlaðborð
16. október - 19. nóvember
Matreiðslumeistarar Perlunnar velja hráefni frá öllum
heimshornum til að útbúa bestu villibráð sem hægt
er að bjóða upp á. Nú getur þú notið þess besta í
villibráðarhlaðborði Perlunnar.
Fyrir mat er gestum boðið að bragða á sérvöldum
eðalvínum frá Chile og Argentínu.
Gjafabréf Perlun
nar
Góð tækifæris
gjöf!
Jólahlaðborð Perlunnar hefst 20. nóvember
Tilboð mán.-þri. 6.250 kr. — Verð: 7.250 kr.