Fréttablaðið - 31.10.2008, Blaðsíða 20
Fyrirtækið SÖS stendur fyrir fjór-
hjólaferðum um Haukadalsskóg
og -heiði.
„Skemmtilegasti tíminn er núna,
þegar hægt er keyra um í snævi-
þöktum skóginum,“ segir Sigurður
Örn Sigurðsson eigandi fyrirtækis-
ins SÖS, sem býður upp á fjóra-
hjólaferðir við Geysi í Haukadal
allan ársins hring. Keyrt er með
hópa um Haukadalsskóg, þar sem
ekið er yfir ár og læki og endað
uppi á Haukadalsheiði. „Ef aðstæð-
ur leyfa er hægt að fara í lengri
ferðir, allt upp í dagslangar, alveg
inn að Hagavatni þar sem hægt er
að sjá hvar jökullinn brotnar ofan í
lónið,“ bætir hann við og lýsir því
sem heilmiklu sjónarspili.
Að sögn Sigurðar eru ferðirnar
fjölbreyttar, skipulagðar með hlið-
sjón af hópnum hverju sinni. Lág-
marksþátttaka eru fjórir í hóp en
fyrirtækið tekur við allt að 45
manns. „Hjólin taka tvo. Greiða
þarf 12.000 krónur fyrir manninn,
en 9.500 krónur ef tveir ferðast
saman. Ef barn ferðast með full-
orðnum ber hann fulla ábyrgð á
því. Þess má geta að við veitum tut-
tugu prósent afslátt ef hópurinn
samanstendur af tíu eða fleirum.“
Fyrirtækið útvegar leiðsögu-
menn og allan búnað í ferðirnar,
hjálma og fatnað auk farartækja,
sem eru af gerðinni Polaris 500 x 2.
„Við biðjum reyndar fólk að mæta
vel skóað, því hætt er við að það
blotni,“ segir Sigurður og kveður
auðveldast að bóka sig í gegnum
heimasíðu fyrirtækisins, www.
fjorhjol.is. - rve
Heilmikið sjónarspil
Fjórhjólaferðir SÖS hafa notið mikilla vinsælda meðal fyrirtækja að sögn Sigurðar
Arnar. MYND/ÚR EINKASAFNI
CAFÉ CENTRAL er nýr staður sem var að opna í Póst-
hússtræti. Á Café Central er lögð áhersla á góðan mat,
góða þjónustu, þægilegt andrúmsloft og gott verð.
Heimspekilegar umræður verða
á kaffihúsinu Bláu könnunni
á Akureyri klukkan 11 næstu
sunnudaga.
Fjórir nemendur Verkmenntaskól-
ans á Akureyri hafa framsögu á
fyrsta kaffispjalli haustsins á Bláu
könnunni. Þar velta þeir því upp
hvaða ástand getur skapast í kjöl-
far kreppu. Efnið er liður í nýrri
fundarröð sem Félag áhugafólks
um heimspeki, hug- og félagsvís-
indadeild Háskólans á Akureyri
og Bláa kannan standa fyrir.
Dögg Jónsdóttir kennari er
umsjónarmaður fundarins. „Nem-
endurnir hafa rýnt í söguna og
byggja erindi sín á þeim athugun-
um,“ segir Valgerður. „Með því að
fá innlegg þeirra sá ég fyrir mér
nýtt fólk sem kæmi til að hlusta og
taka þátt í umræðunum.“ - gun
Heimspeki
yfir kaffinu
Bláa kannan, í hjarta höfuðstaðar Norð-
urlands. MYND/KK.
Dvöl
athvarf í Kópavogi
Reynihvammi 43 // Kópavogi // sími 554 1260// dvol@redcross.is // www.redcross.is/dvol
Markmiðið með starfsemi Dvalar er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr
fordómum, auka lífsgæði, efla andlega, líkamlega og félagslega vellíðan þeirra
sem glíma við geðraskanir. Athvarfið er öllum opið og koma gestir í athvarfið
á eigin forsendum. Fyrir marga hefur það verið mikið gæfuspor að heimsækja Dvöl.
Opið er virka daga kl. 9-16 (10-16 á fimmtudögum)
og kl. 11-14 á laugardögum.
Á laugardögum er gestum boðið upp á léttan hádegisverð þeim að kostnaðarlausu.
Dvöl er samstarfsverkefni Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands, Kópavogsbæjar
og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi.