Fréttablaðið - 31.10.2008, Page 28
6 föstudagur 31. október
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n Uppáhaldsmatur:
Það breytist mjög oft hjá mér
en í augnablikinu er það tofu.
Gaman að elda það og borða.
Diskurinn í spilaranum:
Björk á „shuffle“.
Besti tími dagsins:
Eftir kl. 20.00. Er svona kvöld-
dútlari.
Líkamsræktin:
2-5 sinnum í viku ef ég er
heppin.
Bíllinn minn er:
Mjög krúttílegur.
Stjörnumerki:
Ég er konungur dýranna.
Lít stundum út eins og ljón
líka þegar hárið er í rugl-
inu.
Lífsmottó:
„Þú uppskerð eins og þú
sáir.“
Mesti lúxusinn:
Fara í freyðibað með
fartölvuna og horfa á
Simpsons í baði.
Uppáhaldsárstími:
Sumarið á Íslandi er skemmti-
legast en haustið fallegast.
Hverju myndirðu sleppa ef
þú þyrftir að spara?
Fótsnyrtingu og bensíni.
Best geymda leyndarmálið í
Reykjavík?
Það er einn staður úti á
Granda niðri við sjóinn sem er
æði að fara með teppi á, setj-
ast á stein og slappa af. Ætla
ekki að gefa frekari leiðbein-
ingar þangað því þá væri hann
ekki leyni lengur.
Hrefna Rósa Jó hanns-
dóttir Sætran er
ný komin frá Þýskalandi
þar sem íslenska kokka-
landsliðið stóð sig
með mikilli prýði. Hún
segist hafa gengið með
kokkinn í maganum
síðan hún var barn
og elskar að prófa sig
áfram.
Viðtal: Alma Guðmundsdóttir
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
H
refna man enn þá
þegar hún fór í
fyrsta skipti út að
borða, þá var hún
fjögurra ára í fylgd
ömmu sinnar og afa á Arnarhól
sem var einn flottasti veitinga-
staðurinn í bænum á þeim tíma.
„Ég pantaði mér lax og man hvað
mér fannst hann flottur á diskin-
um, með sítrónusneið yfir. Ég sat
prúð og var tilbúin að smakka
allt sem fullorðna fólkið borð-
aði,“ útskýrir Hrefna sem byrjaði
snemma að elda. Hún segist hafa
vaknað einn daginn og vitað að
hún vildi verða kokkur. „Þetta var
þegar ég var nítján ára og stödd
með vinkonum mínum. Þær hlógu
bara að mér, en þarna ákvað ég
þetta,“ útskýrir Hrefna sem seg-
ist ekki hafa verið kunnug fag-
inu fram að því nema náttúrlega
bara í gegnum sjónvarpskokkinn
Sigga Hall. Í framhaldinu komst
hún að því að hún gæti lært kokk-
inn. „Það voru mjög fáar stelpur
í faginu og námsráðgjafinn ráð-
lagði mér eindregið að læra mat-
artækninn frekar en kokkinn, en
ég vildi það ekki.“ Í framhaldinu
fékk hún vinnu á Apótekinu og
Maru og var í bóklegu námi með
í MK.
OPNAÐI EIGIN STAÐ
Hrefna á og rekur veitingastað-
inn Fiskmarkaðinn ásamt Ágústi
Reynissyni í miðbæ Reykjavíkur.
Frá því að staðurinn var opnaður í
fyrra hefur hann vaxið gríðarlega
og nú vinna þar um 40 manns.
„ Mig langaði ekki að vera allt-
af að vinna undir öðrum og vildi
opna eigin stað. Við Ágúst unnum
saman á Sjávarkjallaranum, þar
sem hann var eigandi og vann í
salnum og ég kokkur, og eftir að
við hættum ákváðum við að opna
Fiskmarkaðinn í sameiningu.“
Rétt áður en bankarnir voru
þjóðnýttir sýndu ónefndir aðil-
ar mikinn áhuga á því að kaupa
Fiskmarkaðinn, en Hrefna segir
það hafa verið ótímabært að
selja.
„Við opnuðum staðinn með því
hugarfari að gera hann flottan og
skemmtilegan og opna svo hugs-
anlega annan stað útfrá honum.
Okkur fannst því ekki tímabært
að hugsa um að selja, en maður
útilokar ekki neitt ef gott tilboð
býðst,“ segir Hrefna.
Aðspurð segist hún óhjákvæmi-
lega hafa fundið fyrir kreppunni
þegar kemur að rekstrinum en
sem betur fer sé ennþá nóg að
gera. „Aðsóknin hefur minnk-
að aðeins, en helsti munurinn er
kannski að það eru aðeins færri
Íslendingar en alveg jafn mikið
af útlendingum. Við finnum samt
mest fyrir því hvað hráefni hefur
hækkað, svo maður hefur neyðst
til að hækka verðið aðeins til að
halda rekstrinum gangandi. Sjálf
versla ég allan mat í Bónus og ég
var í matarboði hjá vinkonum
mínum um daginn þar sem aðal-
umræðuefnið var hvernig maður
gæti eldað kreppumat,“ útskýrir
Hrefna.
Spurð hvort hún sé alltaf fengin
til að elda þegar vinkonuhópurinn
hittist segir hún vini og vanda-
menn vera undir meiri pressu að
bjóða sér í mat. „Mér finnst rosa-
lega gaman að halda matarboð og
geri mikið af því, en mér finnst
líka æðislegt að vera boðin í mat.
Þá lendi ég samt mikið í því að
sá sem býður afsakar sig í bak og
fyrir og þá tekur oft dágóða stund
að sannfæra viðkomandi um að
mér finnist maturinn virkilega
góður,“ bætir hún við og hlær.
EINA KONAN Í LANDSLIÐINU
Hrefna er nú nýkomin frá Erfurt
í Þýskalandi með kokkalandslið-
inu þar sem það lenti í 10. sæti
á Ólympíumóti matreiðslumeist-
ara. Íslenska liðið fékk tvenn gull-
og tvenn silfurverðlaun sem er
besti árangur þess fram til þessa.
Hrefna hefur verið í kokkalands-
liðinu frá því 2002. Þá byrjaði hún
sem aðstoðarmaður, en eftir að
hún útskrifaðist komst hún inn
og hefur verið eina konan í liðinu
frá því hún byrjaði.
„Það er svolítið eins og það
hljómar, að vera eina stelpan í lið-
inu, án þess að það sé nokkuð nei-
kvætt. Þeir fela mér stundum verk-
efni sem þeim finnst ég gera betur
en þeir, til dæmis að skrifa eitt-
hvað,“ útskýrir Hrefna brosandi.
„Allar æfingarnar með landsliðinu
eru fyrst og fremst áhugamál, en
við fáum keppnisferðirnar greidd-
ar frá Klúbbi matreiðslumeistara.
Tveimur mánuðum fyrir mót er
daglegur undirbúningur og við
tókum mjög margar æfingar áður
en við fórum út, sem margborg-
aði sig. Við kepptum bæði í þriggja
rétta hádegisverði og köldu borði
og þegar við undirbjuggum það
vorum við vakandi í fjóra sóla-
hringa,“ segir Hrefna alsæl með
árangurinn, en viðurkennir að það
hafi tekið nokkra daga að jafna sig
eftir keppnina.
HOLLUSTAN Í FYRIRRÚMI
Aðspurð segist Hrefna hugsa
vel um eigið mataræði og leggur
mikið upp úr því að borða hollan
mat. „Ég reyni að forðast hveiti og
borða lítið af mjólkurafurður. Ég
hef prófað margt í gegnum tíðina
og er bara komin niður á það sem
mér líður best af og borða það
ósjálfrátt. Ég er til dæmis mjög
hrifin af sushi, laxi og nýjasta
æðið hjá mér er tofu. Ég borða
eiginlega ekkert rautt kjöt því
mér finnst það of þungt í maga og
maður er heilar 36 klukkustund-
ir að melta það,“ útskýrir Hrefna,
sem er með spennandi hugmynd-
ir varðandi veitingahúsarekstur í
framtíðinni.
„Mig langar mikið til að læra
hráfæðimatreiðslu, þar sem mat-
urinn er ekki eldaður upp fyrir
32°C. Það er enginn virkilega flott-
ur veitingastaður sem sérhæfir sig
í þannig matargerð hér á landi líkt
og erlendis. Hráfæði er bæði hollt
og gott og þarf alls ekki að vera
leiðinlegt. Mig langar að prófa að
bjóða uppá slíka rétti á Fiskmark-
aðnum sem væri framreiddur líkt
og á fínustu veitingastöðum. Ég er
líka mjög hrifin af asískri matar-
gerð, þar sem er lagt mikið upp úr
hollustu og langar gjarnan að fara
til Asíu og læra meira í framtíð-
inni,“ segir Hrefna að lokum.
PASSAR UPP Á MATARÆÐIÐ
Þráinn Skóari Skóbúð • Grettisgata 3
UNG OG EFNILEG „Ég vaknaði bara einn
daginn og sagðist ætla að verða kokkur,“ segir
Hrefna, sem nú á og rekur veitingastaðinn
Fiskmarkaðinn ásamt Ágústi Reynissyni.