Fréttablaðið - 31.10.2008, Síða 40
20 31. október 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MARCO
VAN
BAST EN,
fótbolta-
kappi og
þjálfari
Hollands, er
44 ára.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Marteinn Lúter hengdi upp skjal á
kirkjudyr í Wittenberg þar sem
hann mótmælti sölu á af-
látsbréfum kirkjunnar. Í 95
liðum setti hann fram kenn-
ingar sínar um kristna trú
og leiðir til þess að endur-
bæta hana.
Með þessum gjörningi kom
hann af stað mótmælenda-
hreyfingunni innan rómversk-
kaþólsku kirkjunnar sem þróað-
ist loks í evangelísku-lútersku
kirkjuna.
Í gagnrýni sinni á afláts-
bréfunum sagði Lúter að
páfinn gæti ekki veitt fyrir-
gefningu heldur Guð og að ekki væri hægt að
kaupa fyrirgefninguna.
Annað sem hann gagnrýndi hjá
kaþólsku kirkjunni var að
maðurinn yrði ekki sálu-
hólpinn vegna verka sinni
heldur veitti Guð sanntrú-
uðum sem iðruðust náð.
Dýrlingadýrkun ætti ekki rétt á
sér. Prestar skyldu fá að kvæn-
ast og munkalíf ætti að afnema.
Lúter giftist líka sjálfur, fyrrver-
andi nunnu.
Lúther vildi að menn gætu
lesið Biblíuna til að skilja
Guðs orð og þýddi því Nýja
testamentið á móðurmál
sitt, þýsku.
Við siðaskiptin urðu þjóð-
höfðingjar eða söfnuðir yfirmenn kirkjunnar í
stað páfa.
ÞETTA GERÐIST: 31. OKTÓBER 1517
Upphaf siðaskiptanna
AFMÆLI
PETER
JACKSON
leikstjóri er
47 ára.
JOHNNY
MARR,
gítarleikari
og lagahöf-
undur The
Smiths, er
45 ára.
DAN
RATHER
fréttamaður
er 77 ára.
„Stuttverkasýningin Ó, þessi tæri
einfaldleiki, sem frumsýnd verður í
Listasafni Reykjavíkur í kvöld, mark-
ar upphaf afmælisársins en síðan
verðum við með stóra afmælissýn-
ingu með vorinu,“ segir Silja Björk
Huldudóttir, formaður leikfélags-
ins Hugleiks, sem fagnar 25 starsári
sínu.
Á stuttverkadagskránni eru níu
leikverk sem eiga sameiginlegt að
fjalla um afmæli með einhverjum
hætti. Þá eru öll verkin samin af fé-
lagsmönnum.
„Við erum með mjög öfluga höf-
undasmiðju innan okkar raða og
standa sex höfundar á bak við verk-
in. Eitt af aðaleinkennum leikfélags-
ins er að við setjum upp verk eftir
félagsmenn eða aðlaganir eftir þá,“
segir Silja.
Hún segir félagsmenn bæði skrifa
verk í fullri lengd en einnig sé mikil
gróska í gerð stuttverka og einþátt-
unga. „Okkur þótti kjörið að rækta
þann sprota nú á þessum tímamótum.
Þannig fá margir höfundar að láta
ljós sitt skína og er um að ræða fjöl-
breytta sýningu þar sem farið verður
um víðan völl og spilað á allan tilfinn-
ingaskalann.“
Með vorinu verður ný leikgerð á
leikritinu Ó þú, sem byggir á persón-
um og stefjum úr Pilti og stúlku, sett
á svið en það var samið fyrir Hugleik
fyrir rúmum 20 árum.
„Það má í raun segja að með þess-
um tveimur viðburðum séum við ann-
ars vegar að leggja rækt við sprotana
og hins vegar við ræturnar í félaginu.
Með stuttverkasýningunni erum við
að hlúa að nýjabruminu en með leik-
gerðinni erum við að leika okkur með
okkar eigin menningararf með sama
hætti og við höfum leikið okkur með
hinn íslenska menningararf í gegnum
árin.“
Hugleikur er elsti starfandi áhuga-
leikhópur í Reykjavík og hefur oft á
tíðum leitað fanga í þjóðsagnaarfin-
um, sögu þjóðarinnar og gullaldar-
bókmenntunum. Silja segir um 35 fé-
lagsmenn koma að stuttverkasýning-
unni en í heildina eru félagsmenn í
kringum 80. Þeir búa bæði yfir form-
legri og óformlegri menntun á sviði
leikhúslista.
Stuttverkadagskráin hefst klukkan
20 í kvöld en auk þess verða sýning-
ar á laugardag og sunnudag. Miðasala
fer fram á vefsíðunni www.hugleikur.
is og við inngang Listasafns Reykja-
víkur. vera@frettabladid.is
HUGLEIKUR: FAGNAR 25 ÁRA STARFSAFMÆLI MEÐ STUTTVERKADAGSKRÁ OG AFMÆLISSÝNINGU
Leggja rækt við sprota og rætur
SILJA ÁSAMT LEIKHÓPNUM Á stuttverkadagskránni eru níu verk sem eiga það sameiginlegt að fjalla um afmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VAL KILMER
leikari er 49
ára.
LARRY
MULLEN
JR.,
trommu-
leikari U2,
er 47 ára.
50 ára afmæli
Í tilefni af 50 ára afmæli mínu
3. nóvember nk. býð ég ætting jum og
vinum til móttöku laugardaginn
1. nóvember kl. 17.00-19.00 á Gullfoss
sushi & grill, Pósthússtræti 2.
Kveðja,
Jón Páll
Haraldsson
Elsku mamma, tengdamamma, amma og
langamma,
Margrét Guðnadóttir
Herjólfsgötu 36,
sem lést föstudaginn 24. október sl. verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 31. október
kl. 15.00.
Elín Gísladóttir Gunnar Linnet
Guðni Gíslason Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir
Ingunn Gísladóttir Halldór Jónas Ágústsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Rögnvaldar Þórs
Þórðarsonar
frá Ísafirði, Lækjarsmára 6, Kópavogi,
sem lést 13. okt. síðastliðinn. Sérstakar þakkir færum
við deild 11E á Landspítalanum við Hringbraut og
starfsfólki Karítas fyrir allan ykkar stuðning við okkur.
Elín Skarphéðinsdóttir
Magnea Rögnvaldsdóttir
Rósa Matthíasdóttir Freyr Baldursson
Skarphéðinn Smith Sigurpála Birgisdóttir
Elín Rósudóttir Jón Heiðar Víðisson
Andri Þór Bjarnason
Ragna Lind Bjarnadóttir
Anita Ýr Ævarsdóttir
og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Auður V. Welding
Árskógum 6, Reykjavík,
lést á líknardeildinni á Landakoti 22. október. Útför
hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag,
31. október kl. 15.00.
Snorri F. Welding Ásta S. Lárusdóttir
Viðar F. Welding Kristín Á. Björnsdóttir
Kristín F. Welding Ólafur Guðvarðarson
barnabörn og barnabarnabörn.
EINAR BENEDIKTSSON FÆDD-
IST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1795
„Aðgát skal höfð í nær-
veru sálar.“
Þessi frægi málsháttur er
ljóðlína úr kvæðinu Ein-
ræður Starkaðar eftir Einar
Benediktsson. Það birtist í
bókinni Vogar sem kom fyrst
út árið 1921.
MERKISATBURÐIR
1922 Mussolini verður leiðtogi
Ítalíu.
1931 Strætisvagnar Reykjavíkur
hefja akstur. Fyrsta leiðin
var Lækjartorg-Kleppur.
1936 Útgáfa Þjóðviljans hefst.
Hann studdi Kommún-
istaflokkinn og síðar Sósí-
alistaflokkinn og Alþýðu-
bandalagið.
1954 Frelsishreyfing Alsíringa
hefur uppreisn gegn yfir-
ráðum Frakka.
1963 Lagið You´ll Never Walk
Alone með Gerry and the
Pacemakers kemst í efsta
sæti breska vinsældalist-
ans.
1999 Þota frá flugfélaginu Eg-
yptAir hrapar á leið frá
New York. Allir um borð,
217 manns, látast.