Fréttablaðið - 31.10.2008, Qupperneq 46
26 31. október 2008 FÖSTUDAGUR
Sænska Abba-tökulagabandið
Arrival hefur lækkað þóknun sína
vegna tónleikanna í Valshöllinni.
Annars hefði rosaleg veiking
íslensku krónunnar líklega
gengið endanlega frá tónleikun-
um. „Þetta er það minnsta sem
við getum gert fyrir frændur
okkar í norðri,“ segir Tomas
Jernberg, umboðsmaður sveitar-
innar. „Þær hremmingar sem
Íslendingar hafa gengið í gegnum
undanfarnar vikur hafa ekki farið
fram hjá okkur og því ákváðum við að hjálpa til og lækka þóknun
okkar svo af sýningunni geti orðið. Við hlökkum mikið til að koma til
landsins og mætum til leiks með fullkominn ljósa- og hljóðbúnað og
getum því lofað kraftmiklum tónleikum,“ bætir hann við.
Fjölmargir hafa tryggt sér miða á sýninguna. Hún fer fram
laugardaginn 8. nóvember og enn má fá miða á midi.is. Miðaverð er kr.
4.900 kr. - drg
Arrival réttir Íslend-
ingum hjálparhönd
ARRIVAL Þrettán manns á sviði.
Hrekkjavakan er í dag. Það eiga
auðvitað fáir aura til að kaupa
nýjan búning út úr búð svo það er
um að gera að nota hugmynda-
flugið. Hér koma nokkrir hag-
kvæmir kreppubúningar.
Verðbólgudraugurinn
Hvítt lak með götum
fyrir augun er klass-
ískur og ódýr bún-
ingur. Læðist um og
vælið: „Úúú … ég er
verðbólgudraugur-
inn. Ég brenni upp kaup-
ið þitt og kem þér á kúp-
una. Úúú … Þú munt
neyðast til að flytja til
Svíþjóðar út af mér.“
Útrásarvíkingur
Teinótt jakkaföt og
víkingahjálmur úr
plasti er það eina sem
þarf í þennan búning.
Arkið um og gólið af öryggi: „Ha
ha ha, ég er útrásarvíkingur! Ég
er miklu betri en þú og fæ fimm-
faldan lottóvinning í laun á hverj-
um mánuði! Samt skilur enginn af
hverju ég er svona ríkur! Ha ha
ha, svo fer ég á hausinn og kem
grenjandi í slorið!“
Davíð Oddsson
Davíðs-plastgrímur
voru framleiddar um
árið og ef til vill má enn
finna svoleiðis. Ef ekki,
dugar hárkolla með
krullum. Verið reið og
glöð til skiptis og segið
með festu: „Það
eru óreiðu-
menn sem
borga ekki
skuldirnar
sínar. Amma mín sagði
það. Samt borga ég ekki
krónu! Átján prósent
stýrivextir? Ha ha ha, hvaða
hvaða. Tíminn líður hratt á gervi-
hnattaöld! Þið losnið aldrei við
mig. Aldreiii!!!“
IMF-skrímsli
Jakkaföt eða dragt er nóg
fyrir þetta gervi. Verið sett-
leg og segið með ýktum
erlendum hreimi: „Ég er frá
IMF og ég ætla að redda
þessu skeri með því að merg-
sjúga það. Déskotans sukkararnir
ykkar, þið fáið sko aldeilis að
svitna núna! Mú-ha ha ha!“
Hrekkjavökubúningar kreppunnar
>HARKA FÆRIST Í LEIKINN
Madonna vill gjarnan ganga frá
skilnaði sínum við Guy Ritchie
utan dómstóla. Það gæti þó
reynst henni erfitt því Ritchie
hafnaði boði hennar um 31
milljón dollara greiðslu.
Auk peninga deila þau
um forræði barna sinna.
Madonna vill flytja til
New York en Ritchie
vill hafa börnin nálægt
heimili sínu í London.
Fyrsta plata Brynjars Más Valdimars-
sonar, eða BMV, kemur út á laugardag-
inn. Nefnist hún The Beginning og hefur
að geyma vönduð popplög sem tekin
voru upp í New York fyrr á árinu.
„Þegar maður horfir tvö ár aftur í
tímann þá er þetta búið að taka smá
tíma. Það er alltaf gaman að leggja
lokahönd á eitthvert verkefni og sjá
það verða að veruleika,“ segir
Brynjar Már, sem semur öll lög
plötunnar. Á meðal þeirra eru Runa-
way, Forget About Me og Endlessly,
sem hafa vakið athygli að undanförnu.
Hafa þau tvö síðasttöldu til að mynda
náð á vinsældalista í Asíu, Austur-
Evrópu, Portúgal og auðvitað hér á landi.
Fjórir erlendir textahöfundar semja
textana á plötunni og segist Brynjar
hafa valið þessa leið því hann vildi
vanda til verka. „Ef ég ætlaði að gera
þetta á ensku þá vildi ég gera enska
texta, ekki ísl-enska. Orðaforðinn hjá
Íslendingum á ensku er bara svo
takmarkaður þannig að mig langaði að
fara þessa leið,“ segir hann.
Brynjar ætlaði að gefa plötuna út
erlendis fyrir jólin en varð að bíða með
það sökum efnahagsástandsins. „Bara að
gefa plötuna út hérna heima hækkaði
framleiðsluna um 60 prósent en samt
hækkar maður ekkert verðið á plötunni.“
Vonast hann til að gefa plötuna út
erlendis eftir áramót og fylgja henni þá
eftir með tónleikaferð. Þar mun
raddþjálfunarnám hans í FÍH væntan-
lega koma að góðum notum „Ég ætlaði
að fara til Danmerkur en þegar þetta
nám kom hingað var ég ekki lengi að
skella mér á það. Þarna er kennd önnur
nálgun á raddböndin sem hljóðfæri og
þetta er í fyrsta skipti sem er verið að
kenna rytmískan söng en ekki bara
klassískan,“ segir Brynjar. - fb
Brynjar Már vandar til verka
BMV Brynjar Már Valdimarsson gefur á laug-
ardaginn út sína fyrstu plötu, The Beginning.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
folk@frettabladid.is