Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 16
Björk Bjarkadóttir hefur
samið fjölmargar mynda-
bækur sem eru Íslending-
um að góðu kunnar. Hún
stefndi ung að því marki
að verða barnabókahöf-
undur enda bæði síles-
andi, skrifandi og teikn-
andi í æsku.
Ég man ekki öðruvísi eftir mér en skrifandi og teikn-andi,“ segir Björk Bjarka-dóttir rithöfundur. „Mína
fyrstu bók samdi ég þegar ég var
átta ára gömul, hún fjallaði um
prinsessu sem átti að velja á milli
tveggja prinsa, annar hét Fallegur
og hinn Ljótur, hún lagði fyrir þá
þraut til að kanna hvernig mann-
eskjur þeir væru, þeir áttu að vera
góðir við dýr. Sá ljóti reyndist
góður og sá fallegi vondur og því
valdi hún að sjálfsögðu þann fyrr-
nefnda,“ segir Björk og hlær við.
Las símaskrána
Björk var bókaormur þegar hún
var lítil, var dugleg að fara á bóka-
söfn að ná sér í bækur og dró vin-
konurnar með sér í fornbókabúðir
ef hana vantaði bækur inn í seríur
eins og Ævintýrabækurnar. „Ég
las allt, jafnvel símaskrána ef ég
hafði ekkert annað.“
Þrátt fyrir ómældan áhuga á að
lesa og skrifa bækur lá leiðin ekki
alveg beint í barnabókagerð fyrir
Björk sem lærði grafíska hönnun í
Frakklandi og vann við hönnun í
mörg ár áður en fyrsta bókin henn-
ar, Gíri stýri, leit dagsins ljós. „Ég
vann hana og fyrstu þrjár bækr-
unar mínar um kvöldin og helgar,
þegar tími vannst til. En svo þegar
maður er kominn með börn hefur
maður ekki þennan aukatíma og
ég ákvað að hætta í fastri vinnu.“
Björk vinnur því nú sem hönn-
uður í lausamennsku auk þess að
sinna bókaskrifum og mynd-
skreytingum en menntun hennar
nýtist aldeilis vel þegar kemur að
hennar eigin bókum því auk þess
að skrifa þær og myndskreyta
setur hún þær sjálf upp og má því
segja að bækurnar séu hennar höf-
undarverk frá upphafi til enda.
Myndir og texti um leið
Sú nýjasta heitir Elsku besti pabbi
og í henni segir frá Emilíu sem á
besta pabba í heimi, hann er svo
snjall og sniðugur og getur brugð-
ið sér í allra kvikinda líki. En svo
þegar hann er veikur er hann bara
eins og lítil mús og Emilía þarf að
hugga hann og hjúkra honum.
Bókin kallast á við stórskemmti-
lega bók Bjarkar, Mamma er best,
sem kom út fyrir nokkrum árum.
Börnin eru leidd inn í töfraheim í
fallegum teikningum Bjarkar sem
vinnur myndir og texta nánast
jöfnum höndum, hugmynd verður
að texta sem verður að mynd og
þannig verður til bók. „Texti og
mynd verður að vinna saman en
hefur líka sitt eigið líf. En mynd-
irnar segja sína eigin sögu, þar er
oft meira að gerast en stendur
nákvæmlega í textanum, sömu-
leiðis er ekki allt á myndinni sem
er í textanum.“ Björk bendir á
mynd í nýju bókinni máli sínu til
stuðnings. „Börn hafa gaman af
því að skoða myndirnar og sjá eitt-
hvað nýtt í þeim, af hverju er þessi
leiður til dæmis?“
Björk á tvö börn sem hún les
fyrir á hverju kvöldi, hún hefur
mikla trú á því að bóklestur geri
börnum mikið gagn. „Ég held að
það hafi svo góð áhrif á börn að
það sé lesið fyrir þau, orðaforðinn
ÉG HELD AÐ ÞAÐ hafi
svo góð áhrif á börn að það
sé lesið fyrir þau, orðaforð-
inn eykst og það hvetur þau
örugglega til þess að lesa
síðar meir. Svo er lestur á
kvöldin bara svo róleg og
góð stund fyrir svefninn.
UPPÁHALDSBÆKUR BJARKAR - þegar hún var lítil
Samdi fyrstu bókina
Björk Bjarkadóttir
Björk býr í Noregi
en kemur oft í heim-
sókn til Íslands.
Björk les fyrir
börnin sín,
þau Alexander
Bjarka og Evu
Sólveigu.
Ævintýrabækurnar
Bækur Astrid Lindgren
Jón Oddur og Jón Bjarni
Anna í Grænuhlíð
Tinnabækurnar
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
ILH
EL
M