Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 31
SUNNUDAGUR 9. nóvember 2008 15
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 9. nóvember
➜ Dans
20.00 Dans-andi Íslenski dansflokkur-
inn sýnir verkið Dans-andi í Borgarleik-
húsinu, Listabraut 3.
➜ Fyrirlestrar
11.00 Hvað má læra af
reynslunni? Páll Skúla-
son heimspekingur flytur
erindi í Bláu könnunni,
Hafnarstræti 96, Akureyri.
➜ Sýningar
15.00 Suðuramerísk menningarhátíð
í Kópavogi Leiðsögn verður um sýning-
una Ekvador að fornu og nýju í Gerðar-
safni, Hamraborg 4.
➜ Fræðsla
10.00 Fræðslumorgnar í Hallgríms-
kirkju Kristinn Ólason, rektor í Skálholti,
flytur erindi um það hvort Biblían eigi
erindi til nútímafólks.
➜ Leiðsögn
14.00 Ást við fyrstu sýn Halldór Björn
Runólfsson verður með leiðsögn um
sýninguna og mun fjalla um þróun
myndlistar allt frá tímum Impressjónist-
anna til okkar daga. Listasafni Íslands,
Fríkirkjuvegi 7. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17.
➜ Tónlist
20.00 Orgeltónleikar Hjónin Lára
Bryndís Eggertsdóttir og Ágúst Ingi
Ágústsson flytja verk eftir Johann
Sebastian Bach, Carl Philipp Emanuel
Bach og Johann Christian Bach í Lang-
holtskirkju, Sólheimum 13.
20.00 Ómar Guðjónsson Tríó verður
með tónleika í Ráðhúsinu Ölfus, Hafn-
arbergi 1, Þorlákshöfn.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Þær fregnir berast erlendis frá
að skáldsaga Salmans Rushdie,
Miðnæturbörn, sem upphaflega
kom út árið 1981, verði fljótlega
kvikmynduð.
Þetta þykir heyra til nokkurra
tíðinda, enda hefur bókin fram að
þessu ekki beint þótt henta kvik-
myndamiðlinum, enda tekur hún
yfir langan tíma og stórt persónu-
gallerí.
Leikstjóri myndarinnar verður
Deepa Metha, en hún er einna
þekktust fyrir Elements-þríleik
sinn sem kafar undir yfirborð
ýmissa viðkvæmra málefna sem
hrjá indverskt samfélag. Metha
og Rushdie hyggjast sameinast
um að vinna handrit upp úr skáld-
sögunni, enda slíkt verkefni varla
við hæfi einnar manneskju. Þau
gera svo ráð fyrir að hefja tökur á
myndinni árið 2010.
Miðnæturbörn var fremur
nýlega í fréttum vegna annars
máls. Hún varð í sumar fyrir val-
inu sem besta Booker-verðlauna-
bók allra tíma, en valið fór fram í
tilefni af 40 ára afmæli verðlaun-
anna. Það þótti því ekki síður
fréttnæmt þegar nokkrum mán-
uðum síðar var tilkynnt um að
nýjasta skáldsaga Rushdies,
Enchantress of Florence, þótti
ekki nægilega góð til þess að
hljóta tilnefningu til þessara
sömu verðlauna nú í ár. - vþ
Miðnæturbörn á tjaldið
SALMAN RUSHDIE Vinnur kvikmynda-
handrit upp úr skáldsögunni Miðnæt-
urbörn.
Hljómsveitin Thin Jim and the Cas-
taways heldur tónleika á Café Ros-
enberg við Klapparstíg á miðviku-
dagskvöld kl. 21.
Í fréttatilkynningu vegna tón-
leikanna kemur þó fram að Thin
Jim and the Castaways er ekki eig-
inleg hljómsveit, heldur fremur
tónlistarverkefni þar sem hvert
lag og hver texti kallar á þann
söngvara eða hljóðfæraleikara sem
hentar hverju sinni. Þannig fá þeir
listamenn sem að verkefninu koma
tækifæri til þess að stíga út úr viðj-
um vanans og leggja eitthvað nýtt
til málanna.
Þátttakendur eru þau Margrét
Eir Hjartardóttir, Jökull Jörgen-
sen, Birgir Ólafsson, Scott McLem-
ore, Ragnar Emilsson og Arnar
Jónsson. Þess má vænta að á mið-
vikudagskvöld stigi svo með þeim
á svið ýmsir góðir gestir. - vþ
Leika á Rosenberg
MARGRÉT EIR HJARTARDÓTTIR Margrét
tekur þátt í tónlistarverkefninu Thin Jim
and the Castaways.
Skífan Laugavegi 26 · Skífan Kringlunni · Skífan Leifsstöð · www.skifan.is
Nýtt upphaf
1. Eins og vera ber
2. Umvafin englum
3. Ósögð orð
4. Til eilífðarnóns
5. Öldurót
6. Við hlið mér
7. Tvær tungur
8. Ég átti þig ein
9. Minningar vakna
10. Októbernótt
GUÐRÚN GUNNARS
KOMIN Í SKÍFUNA!
YNDISLEG PLATA FRÁ
FRÁBÆRRI SÖNGKONU