Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er sunnudagurinn
9. nóvember, 315. dagur ársins.
9.38 13.11 16.44
9.36 12.56 16.16
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Við erum leiðandi í framboði ódýrra fargjalda.
Frábært verð, þægindi og góð þjónusta eru
órjúfanleg heild hjá Iceland Express.
Bókaðu ferðina þína á www.icelandexpress.is
Við erum hagkvæm
– þú getur bókað það
Verð frá:
12.490 kr.
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Takmarkað sætaframboð
og valdar dagsetningar til og frá London, Kaupmannahöfn og Berlín.
Þjóðin er reið. Eðlilega. Það væri ljóta samansafnið af
geðluðrum sem ekki reiddist
ástandinu sem okkur hefur verið
steypt í. Gallinn við reiði er hins
vegar sá að hún er í eðli sínu
hvorki kærleikur né skynsemi og
það er alltaf óhollt að stjórnast af
öðru en því.
SUMIR reiddust því svo að
íslenskur banki væri beittur fjár-
glæfra- og hryðjuverkalögum að
þeir létu taka af sér ljósmyndir til
að sanna að þeir væru ekki hryðju-
verkamenn. Líklega áttu mynd-
irnar að sýna að hvítt fólk í lopa-
peysum gæti ekki verið
hryðjuverkafólk. Í sömu viku
myrti bandaríski herinn nefnilega
fjögur hryðjuverkabörn í Sýr-
landi án þess að þetta fólk
vefengdi réttmæti þeirra ásak-
ana. Auðvitað er bankakerfi sem
er tífalt stærra en hagkerfið sem
ber ábyrgð á því hreinræktuð
fjárglæfrastarfsemi sem heyrir
undir þar að lútandi lög. Hvort
eðlilegt sé að þau séu undir sama
hatti og hryðjuverkalög er bara
allt annað mál.
AÐRIR mótmæltu opinberlega
en gátu hvorki komið sér saman
um hvar, hvenær né hverju. Pólit-
ísk ljósmóðir Davíðs Oddssonar,
Jón Baldvin Hannibalsson, hróp-
aði þar af tröppum mannlauss
ráðherrabústaðar að ástandið
hefði verið fyrirbyggjanlegt. Eng-
inn viðstaddra virtist átta sig á að
besta vörnin hefði auðvitað verið í
því fólgin að hleypa ekki af stokk-
unum tæplega tveggja áratuga
harðstjórn hömlulausrar frjáls-
hyggju úti í Viðey árið 1991.
ENN aðrir eru svo reiðir að þeir
krefjast þess að strax sé kosið
aftur. Þeir virðast trúa að stóra
lausnin sé í því fólgin að flytja
þingmenn á milli flokkanna fimm
sem bera ábyrgð á ástandinu.
Sumir vilja kannski meina að
tveir þeirra séu stikkfrí. En
gleymum ekki að í aðdraganda
þessara fyrirsjáanlegu þrenginga
voru helstu áhyggjuefni þeirra
annars vegar fjöldi Pólverja á
Íslandi („vandamál“ sem nú er að
leysa sig sjálft) og hins vegar lit-
urinn á ábreiðunum á fæðingar-
deildinni. Það er gott og blessað
að vilja núna afnema eftirlauna-
ósómann, en það er dálítið of
seint.
REIÐI getur verið drifkraftur til
góðra verka sé hún virkjuð af
kærleika og skynsemi. Annars
afmyndar hún fólk og sviptir það
reisn. Reiðumst því að bankarnir
gerðu okkur að þjófum. Reiðumst
því að stjórnvöld gerðu okkur að
betlurum. En gætum þess að láta
reiðina ekki gera okkur að fífl-
um.
Reiði