Fréttablaðið - 11.11.2008, Qupperneq 8
8 11. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
GRÆNLAND Það mun taka Græn-
lendinga minnst 25 og kannski
meira en 50 ár að ná því markmiði
að verða efnahagslega sjálfbært
samfélag og þar með færir um að
standa undir sjálfstæðu ríki. Þessu
heldur Pia Vedel Ankersen, lektor í
opinberri stjórnsýslu við Græn-
landsháskóla, Ilisimatusarfik, fram
í grein sem hún skrifar ásamt
tveimur kollegum í dagblaðið
Sermitsiaq.
Ankersen svarar spurningu
grænlenska útvarpsins um það
hvort markmið Hans Enoksen, for-
manns grænlensku landstjórnar-
innar, um sjálfbært og sjálfstætt
Grænland árið 2019 sé raunhæft,
afdráttarlaust neitandi. Græn-
lenski landsjóðurinn fær nú um
átta milljarða danskra króna í
styrk frá Danmörku árlega. - aa
Sjálfstæðismál Grænlands:
Lektor segir ára-
tugi í sjálfstæði
STJÓRNMÁL „Við vildum ekki boða
til funda eða slíks, engu að síður
gefa fólki færi á að mæla fyrir
áskoruninni, meðal annars með
því að prenta út tákn hennar og
setja í glugga á heimili, bifreið
eða vinnustað,“ segir Benedikt
Stefánsson hagfræðingur, einn
fjögurra málsvara „Nóvember-
áskorunarinnar“ til íslenskra
stjórnvalda.
Hópurinn krefst þess að lýst
verði yfir með afgerandi hætti að
viðræður við Evrópusambandið
um fulla aðild og upptöku
Evrunnar hefjist sem fyrst, að
sett sé fram skýr efnahagsstefna
og skipuð ný, fagleg yfirstjórn
Seðlabankans og að Alþingi mæli
fyrir um gagngera úttekt, undir
forystu erlendra aðila, á aðdrag-
anda kreppunnar. - kg
Áskorun til stjórnvalda:
Þverpólitísk
áskorun
1. Hvaða fimleikakappi varð
þriðji í fjölþraut á Norður-
Evrópumótinu í áhaldafimleik-
um um helgina?
2. Hversu margir jólapakkar
verða sendir til barna í Úkraínu
eftir söfnun KFUM og K?
3. Hvað heitir nýjasta plata
hljómsveitarinnar Slugs?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU XX
VINNUMARKAÐUR Kristófer Jónsson og Lúðvík
Lúðvíksson, starfsmenn Steypustöðvarinnar Mest,
ásamt hátt í 40 félagsmenn VR afhentu Gunnari Páli
Pálssyni, formanni VR, undirskriftir á þriðja hundrað
félagsmanna VR til stuðnings kröfu sinni um að boðað
verði til félagsfundar í VR á næstunni til að ræða þátt-
töku formannsins í ákvörðun um að fella niður
persónulegar ábyrgðir starfsmanna Kaupþings.
Kristófer segir að Gunnar Páll hafi tekið á móti
þeim, boðið þeim inn og útskýrt sína hlið en þó ekki
sagt neitt nýtt. Gunnar Páll hafi orðið fyrri til því búið
sé að ákveða að boða til félagsfundar á fimmtudaginn.
Kristófer segir að á félagsfundinum verði farið fram
á að boðað verði til aðalfundar og skipt um stjórn.
„Við viljum skipta um stjórn í félaginu yfir línuna,“
segir Kristófer sem „er búinn að fá uppsagnarbréf
eins og svo margir aðrir“ í þjóðfélaginu. „Ég sé ekki
hvernig ég get leitað til félagsins og látið það gæta
réttar míns þegar stjórnin er svona gjörspillt,“ segir
hann.
Gunnar Páll segir að stjórn, trúnaðarmenn og
trúnaðarráð VR hafi verið búið að ákveða að halda
félagsfund og hann verði haldinn á fimmtudagskvöld-
ið. Hann segist hafa boðið mótmælendunum inn til að
fá sér eitthvað í gogginn. Þeir hafi síðan sýnt sér þá
virðingu að leyfa sér að segja frá sinni hlið og það hafi
hann gert. Að öðru leyti vísar hann í greinargerð á
heimasíðu VR og yfirlýsingu sem birtist í Fréttablað-
inu í dag. - ghs
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, tók við undirskriftum yfir 200 félagsmanna:
Þegar boðað til félagsfundar
SKIPT VERÐI UM STJÓRN Félagsmenn VR afhentu undirskriftir
hjá VR í gær. Kristófer Jónsson, starfsmaður Mest, segir að
krafist verði aðalfundar og skipt verði um stjórn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ALÞINGI Dregið er úr vægi ábyrgða
og stuðlað að því að lánveitingar
miðist við greiðslugetu og trygg-
ingar lántaka í nýju frumvarpi um
ábyrgðarmenn.
Lúðvík Bergvinsson, þing-
flokksformaður Samfylkingarinn-
ar, er fyrsti flutningsmaður en
meðflutningsmenn eru þing-
flokksformenn Sjálfstæðisflokks,
VG og Frjálslyndra, formaður
Framsóknarflokksins og formenn
viðskiptanefndar og efnahags- og
skattanefndar Alþingis.
Rauði þráðurinn í frumvarpinu
er sá að ábyrgðarmaður skuli vera
upplýstur um þá áhættu sem felst
í ábyrgð áður en hann gengst undir
hana. Mælt er fyrir um að ef krafa
er tilkomin vegna persónulegrar
ábyrgðar verði ekki gerð aðför í
fasteign ábyrgðarmanns sem hann
býr í.
Þá er kveðið á um að lánveit-
anda beri skylda til að meta hæfi
lántaka til að standa í skilum og á
láveitandi að ráða ábyrgðarmanni
með skriflegum hætti frá því að
gangast í ábyrgð ef greiðslumat
bendir til þess að lántaki geti ekki
efnt skuldbindingar sínar.
Í greinargerð frumvarpsins
segir að mörg dæmi séu um að
forsenda lánveitingar sé endur-
gjaldslaus ábyrgð þriðja aðila.
Afleiðingar slíks hafi oft verið
mjög íþyngjandi fyrir einstakl-
inga, fjölskyldur og samfélagið í
heild. - bþs
Þingmenn úr öllum flokkum vilja takmarka ábyrgðir vegna viðskipta þriðja aðila:
Lán miðist við greiðslugetu
LÚÐVÍK BERGVINSSON vill að ábyrgðir
þriðja aðila á lánum verði takmarkaðar.
EFNAHAGSMÁL Nokkur áhætta er
fólgin í því að frysta afborganir
af erlendum íbúðalánum strax,
enda ekki hægt að útiloka að
krónan verði enn veikari en hún
er nú þegar frystingu lýkur.
Algengt er að frysting gildi í
fjóra mánuði. Útfærslan er
misjöfn milli banka. „Þetta er
viss áhætta,“ segir Edda Rós
Karlsdóttir, hagfræðingur hjá
Landsbankanum. „En mikilvæg-
ast er að þeir sem taka ákvörðun
um að frysta lán haldi áfram að
leggja til hliðar sem nemur
afborgun af láninu, til dæmis í
júní, þegar ástandið á gjaldmiðl-
inum var eðlilegra.“ - hhs
Edda Rós Karlsdóttir:
Áhætta fólgin í
frystingu lána
VEISTU SVARIÐ?