Fréttablaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 20
 11. NÓVEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR Danskur jólamatur er víðfræg- ur enda hafa Íslendingar sótt í hann í stórum stíl yfir sundið. Danskt yfirbragð á slíkum mat er samt ekki langt undan því á Jómfrúnni í Lækjargötu er jafnan stílað upp á það. „Við erum ekki með hlaðborð heldur berum matinn á borð fyrir hvern og einn og bjóðum upp á jólamatseðil frá nóvemberlok- um,“ segir Jakob Jakobsson, veit- ingamaður á Jómfrúnni. „Það sem er mjög vinsælt hjá okkur er svo- kallaður jólaplatti sem er sjö rétta diskur. Það er komin hefð á hann. Þar er meðal annars síld og ostur. Jólamáltíð að dönskum hætti byrj- ar alltaf á síld og endar alltaf á osti. Á diskinum erum við meðal annars með reykta önd, pörusteik, humarsalat og kalkún og íslenski hlutinn er hreindýrapaté. Svo er Riz à l´amande áttundi rétturinn.“ Auk jólaplattans segir Jakob fjöldann allan af öðrum jólarétt- um í boði og nefnir hamborgar- hrygg, andabrjóst og pörusteik. Einnig úrval síldarrétta. Fagfólk- ið þar verkar síldina sjálft og öll dressing er heimalöguð. „Við vilj- um ekki að okkar viðskiptavin- ir geti keypt sams konar síld úti í búð og við erum með á borðum,“ segir Jakob. „Því er allt saman gert á staðnum, eftir íslenskum og skandinavískum aðferðum.“ Jakob lærði matargerð í Dan- mörku og skýrir það að nokkru leyti hinar dönsku áherslur á Jóm- frúnni sem hann og hans maður, Guðmundur Guðjónsson, hafa rekið frá 1996. Fræg eru djass- kvöldin sem þeir efna til á sumrin en yfir jólamatnum skemmtir fólk hvert öðru. „Það er svo gaman þannig,“ segir Jakob. „Við vilj- um ekkert vera að grobba okkur en það er ákveðin stemning hér á Jómfrúnni sem fólk sækir í.“ Hann segir jafnan fullbókað fyrir jólin og á því er engin undantekn- ing nú. „Sjaldan hefur verið eins mikið pantað,“ segir hann. „Ég býst við að fólk fari síður til Dan- merkur eða annarra landa nú fyrir jólin en áður. Þá er um að gera að heimsækja íslensk veitingahús og gleðjast hvert með öðru í aðdrag- anda jóla.“ Jólamatseðillinn á Jómfrúnni verður tekinn í notkun 28. nóv- ember og þá verður líka byrjað að hafa opið til tíu um helgar og þegar nær dregur jólum öll kvöld vikunnar. - gun Byrja á síld og enda á osti „Við viljum ekkert vera að grobba okkur en það er viss stemning hér á Jómfrúnni sem fólk sækir í,“ segir Jakob. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Skammturinn er vel útilátinn á Jóm- frúnni. MYND/KRISTJÁN Gleðin við völd yfir góðum mat. MYND/KRISTJÁN Skíðaskálinn í Hveradölum er rómaður fyrir glæsilegt jólahlað- borð og verður engin undantekn- ing þessi jól þar sem boðið verður upp á alls kyns gómsæta rétti. „Má þar meðal annars nefna hreindýrapaté og graflax í for- rétt, pörusteik, hangikjöt og ham- borgarhrygg í aðalrétt og dýrind- is eftir rétti að hætti matreiðslu- mannsins kvöld hvert,“ nefnir Vignir Guðmundsson hjá Skíða- skálanum í Hveradölum. Að hans sögn verður boðið upp á jólahlað- borð allar helgar frá 15. nóvem- ber til 21. desember. Fimmtudag- ar eru innifaldir. „Við bjóðum upp á mat, skemmti- atriði og dansleik eftir mat, þar sem hljómsveit leikur fyrir dansi, og svo rútuferðir til og frá Hvera- dölum á föstudags- og laugardags- kvöldum á 7.900 krónur. Jólahlað- borðið kostar síðan 5.900 krónur á fimmtudags- og sunnudagskvöld- um en ekki er boðið upp á dansleik þau kvöld.“ Vignir bætir við að frítt sé fyrir börn tólf ára og yngri í fylgd með fullorðnum á sunnudögum. „Sunnudagskvöldin eru fjölskyldu- kvöld en þá kemur jólasveinninn meðal annars í heimsókn. Þess má líka geta að þótt hljómsveitin spili aðeins á föstudags- og laugardags- kvöldum, þá spilar harmóníkuleik- ari öll jólahlaðborðskvöld.“ Vignir segir að þegar sé tölu- vert búið að bóka, en þó sé eitt- hvað laust í nóvember og desem- ber. Hægt er að panta sæti við jóla- hlaðborð Skíðaskálans með því að hafa samband í síma 567 2020 eða senda póst á skidaskali@skida- skali.is. - aóv Jólakræsingar í Skíðaskálanum Jólasveinninn mætir í Hveradali á sunnudögum með glaðning handa börnunum. MYND/SKÍÐASKÁLINN HVERADÖLUM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.