Fréttablaðið - 14.11.2008, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 14. nóvember 2008 15
MENNING „Þetta hefur verið hrikalega skemmtilegt. Við finnum vel fyrir
því að samfélagið er mjög opið fyrir erindi okkar þessa dagana. Það á
sér stað mikil endurskoðun á ákveðnum gildum, þannig að þetta er
góður tími,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, sem ásamt
Árna Heimi Ingólfssyni, tónlistarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
hefur ferðast milli framhalds- og háskóla í vikunni með tónleika og
fyrirlestur um sígilda tónlist. Síðusta heimsókn þeirra félaga verður í
Háskóla Íslands í dag. Í vikunni komu þeir fram fyrir nemendur og
starfsfólk MR, MH, Flensborg og Háskólans í Reykjavík.
Víkingur segir hugmyndina hafa kviknað í sjónvarpsviðtali við Evu
Maríu Jónsdóttur í vor. „Í myndverinu var flygill og Eva bað mig um að
útskýra fyrir sér hvað tónlist væri fyrir mér og hvers vegna ég væri að
þessu. Við þessum einföldu útskýringum og dæmum fékk ég sterk
viðbrögð í þjóðfélaginu. Mun sterkari en ég átti von á.“
Víkingur og Árni voru með þeim fyrstu til að hljóta styrk úr tónlistar-
sjóðnum Kraumi í vor. Var sá styrkur eyrnamerktur því verkefni að
flytja og ræða um verk eftir Beethoven, Bach og Chopin í framhalds-
og háskólum. „Oft setur fólk sig í sérstakar stellingar þegar það hugsar
um klassískar listir. Við reynum að losa þessar stellingar og vekja
athygli á því að best sé að upplifa tónlistina á sínum eigin forsendum.
Það hefur gengið vel upp og orkan úr salnum er mjög góð,“ segir
Víkingur Heiðar. - kg
Píanóleikari og tónlistarstjóri ferðast milli skóla með tónleika og fyrirlestra um sígilda tónlist:
Upplifa tónlistina á eigin forsendum
SÍGILT STUÐ Góður rómur var gerður að fyrirlestri og tónleikum þeirra Víkings Heiðars
og Árna fyrir nemendur og starfsfólk HR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EGYPTALAND, AP Egypsk stjórnvöld
sýna flóttafólki, sem laumar sér
yfir landamærin frá Ísrael eða
Súdan, fulla hörku. Síðan 2007
hafa að minnsta kosti 33 verið
skotnir til bana, þar á meðal
barnshafandi kona og sjö ára
gömul stúlka.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch gagnrýna þetta
framferði í nýrri skýrslu.
Auk hinna látnu hafa fjölmarg-
ir flóttamenn særst, en svo
virðist sem Egyptar séu með
þessu að bregðast við alþjóðlegri
gagnrýni um að þeir standi sig
ekki í að halda landamærunum
lokuðum. - gb
Flóttamenn í Egyptalandi:
Skotnir við
landamærin
„Það var stór dagur
hjá okkur í vinnunni
á miðvikudaginn var,“
segir Algirdas en hann
vinnur hjá Bátasmiðjunni
Trefjum í Hafnarfirði. „Við
fögnuðum 30 ára afmæli
en jafnframt afhentum
við fyrsta bátinn úr nýju
verksmiðjunni okkar.
Það voru náttúrlega mikil
hátíðarhöld í tilefni dags-
ins. Það var boðið upp á léttar veitingar og vín. Ég
held að það hafi verið um 150 manns þarna þegar
mest var og á meðal þeirra voru Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra.“
Algirdas hefur unnið í Trefjum í 10 ár eða síðan
hann flutti til Íslands og segist hæstánægður með
lífið þar.
Algirdas Slapikas:
Tímamót á vinnustaðnum
„Síðastliðinn miðvikudag
var Loykatong, sem er
trúarhátíð okkar Taílend-
inga,“ segir Junphen en
þessi hátíð á rætur sínar
að rekja til þakkargjörðar
manna til gyðju vatnsins
til forna.
„Þá er hefð að búa
til eins konar skraut úr
bananahýði, setja í það
brot af nögl eða mynt og
fleygja því síðan í fljót. Trúa menn því að þá hafi
hið illa verið kvatt.
Hér munu landar mínir hins vegar láta nægja
að koma saman í Búddahofinu okkar í Kópavogi
hinn 29. næstkomandi en svo illa vill til að þá er
einmitt árshátíð Fjarðarkaupa og ég vil síður missa
af henni svo ég tek ekki þátt í hátíðarhöldunum í
hofinu þetta árið.“
Junpehn Sriyoha:
Fór á árshátíð Fjarðarkaupa
„Miriam Makeba lést
í vikunni og mér þykir
það leiðinlegt þar sem
ég hef lengi verið mikill
aðdáandi hennar,“ segir
Charlotte sem bjó um
tíma í Afríku. „Ég hef líka
verið að lesa mikið um
átökin í Kongó sem eru
auðvitað mjög alvarleg
en vegna fjármálakrís-
unnar er ekki nóg fjallað
um það ástand. Ég heyrði BBC segja frá því að
fjármálakreppan færi versnandi vegna neikvæðrar
umfjöllunar fjölmiðla. Fólk heldur því að ástandið
sé enn verra en það er í raun og veru. Ég reyni því
frekar að vera jákvæð og hugsa um jólahátíðina.
Ég ætla til dæmis að reyna að spara peninga með
því að búa sjálf til jólakort. Svo er ég nýbyrjuð á
dansæfingum sem er gott fyrir sálina.“
Charlotte Ólöf Jónsdóttir Ferrier:
Syrgir Miriam MakebaSTJÓRNMÁL Verkefni þriggja
stofnana heilbrigðisráðuneytisins
eru í athugun í ráðuneytinu til að
styrkja eftirlits- og gæðahlutverk
þeirra.
Greint var frá því í Fréttablað-
inu í gær að
ráðuneytið hefði
til skoðunar
verkaskiptingu og
jafnvel samein-
ingu Landlæknis-
embættisins,
Lyfjastofnunar og
Lýðheilsustöðvar.
„Það er
mikilvægt að nýta
stofnanirnar eins
vel og hægt er,“ segir Guðlaugur
Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Við vinnu ráðuneytisins sé lögð
áhersla á mikilvægi gæða- og
eftirlitsmála auk forvarna. - bþs
Stofnanir heilbrigðisráðuneytis:
Styrkja á gæða-
og eftirlitsmál
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
VIKA 39
DAGBÓK NÝRRA ÍSLENDINGA