Fréttablaðið - 14.11.2008, Blaðsíða 62
42 14. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. jurt, 6. bókstafur, 8. stykki, 9. loga,
11. hætta, 12. hluti, 14. dá, 16. frú, 17.
kvk nafn, 18. umfram, 20. tveir eins,
21. tútta.
LÓÐRÉTT
1. aða, 3. í röð, 4. stafs, 5. hallandi, 7.
áritun, 10. inngangur, 13. þvottur, 15.
drulla, 16. framkoma, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gras, 6. ká, 8. stk, 9. eld,
11. vá, 12. leyti, 14. trans, 16. fr, 17.
una, 18. auk, 20. uu, 21. snuð.
LÓÐRÉTT: 1. skel, 3. rs, 4. atvinnu,
5. ská, 7. áletrun, 10. dyr, 13. tau, 15.
saur, 16. fas, 19. ku.
MORGUNMATURINN
„Ég var vanur að teyga ananas-
safa en núna er það heil skál af
vínberjum. Það er smá nýtt hjá
mér að taka vínberin og hvíla
ananassafann.“
Arnviður Snorrason plötusnúður.
Í dag verður tilkynnt hver verður jóla-
gjöfin í ár. Rannsóknarsetur verslunar-
innar á Bifröst hefur staðið fyrir þessu
undanfarin þrjú ár og hefur dómnefndin
setið sveitt við að rýna í sölutölur og
tíðarandann.
Að sögn Emils B. Karlssonar, forstöðu-
manns setursins, er þetta ágætisvís-
bending um hvernig tíðarandinn verður
þessi jól; sem verða eflaust hálf-skrýt-
inn í ljósi alls þess sem á undan er geng-
ið. „Þetta er náttúrulega mest til gamans
gert. En þetta segir okkur líka sitthvað
um hvernig ástandið er þjóðfélaginu,“
segir Emil.
Svíar hafa líka haft þennan háttinn á
undanfarin ár og þeir eru búnir að velja
sína jólagjöf. „Þeir kusu „oplevelse“ sem
jólagjöfina í ár,“ segir Emil og
viðurkennir að það sé svolítið óræð
jólagjöf. Getur þýtt ansi margt.
„Í mínum huga gæti jólagjöf Sví-
anna alveg eins verið DVD-diskur eða
bara næturgisting á hóteli.“ Emil þver-
tók ekki fyrir að jólagjöf Íslendinga í ár
væri eitthvað í svipuðum dúr. „Ekki
kannski alveg eins, en jú, eitthvað á
þessum nótum.“
Og það kæmi engum á óvart ef Íslend-
ingar fetuðu í fótspor Svía þetta árið. Í
fyrra völdu þjóðirnar sömu jólagjöf;
GPS-tæki. Árið þar á undan, eða 2006,
voru það ávaxta- og grænmetispress-
ur og 2005 var lófatölvan valin jóla-
gjöf ársins. Hins vegar mætti ætla,
miðað við fréttaflutning síðustu
daga, að jólagjöf ársins 2008 yrði
hin sígilda blanda: kerti og spil. - fgg
Jólagjöfin í ár tekur mið af kreppunni
SAFAPRESSUR Árið 2006 voru nefndarmenn
þess handvissir að ávaxta- og grænmet-
ispressur yrðu efstar á gjafalistanum. Þær
gætu hugsanlega orðið Soda Stream-tæki
góðærisins þegar fram líða stundir.
ENGIN TÝNIST GPS-
tækin komu sterk inn í fyrra og voru
valin jólagjöf ársins. Ekki liggur þó
fyrir hvernig þau seldust það ár.
Þýska fyrirtækið A Number of
Small Things, sem selur plötur á
heimasíðunni anost.net, ætlar að
koma Íslendingum til bjargar með
því að selja í tonnatali plötur frá
íslenska útgáfufyrirtækinu Kimi
Records.
Í fréttabréfi sínu hvetur fyrir-
tækið viðskiptavini sína til að
kaupa plötur frá Kimi, þar á meðal
með hljómsveitunum Hjaltalín og
Benna Hemm Hemm: „Kæru vinir.
Eins og þið vitið er Ísland á barmi
gjaldþrots. Nú er tími til að sýna
náungakærleikann í verki. Við
höfum bætt nýju útgáfufyrirtæki
á lista okkar, Kimi Records. Hjálp-
ið okkur að bjarga Íslandi!,“ segir
í fréttabréfinu.
Baldvin Esra Einarsson hjá
Kimi Records segir að stjórnandi
síðunnar sé samstarfsaðili Kimi.
„Ég hef alltaf sent þeim plöturnar
mínar til að eiga og selja og kynna
í Þýskalandi fyrir fólki sem hefur
áhuga á íslenskri tónlist. Það hefur
verið upp og ofan hvort þetta
hefur komið inn á síðuna,“ segir
Baldvin. „Það er svo gríðarleg
umræða örugglega í þýsku miðl-
unum um ástandið á Íslandi að
hann hefur greinilega tekið upp á
sitt einsdæmi að auglýsa íslenska
tónlist til sölu til að rétta okkur
hjálparhönd,“ segir hann og játar
að þetta hafi komið sér skemmti-
lega á óvart. „Þetta var svolítið
fyndið en þetta var svo sem alveg
honum líkt svona sprell. Þetta er
gaman því maður fær aðra sýn á
viðhorf útlendinga til Íslands. Það
er svo rosalega sterkt í umræð-
unni að við séum algjörir drullu-
halar en það er ekkert alltaf
þannig.“ - fb
Þjóðverjar veita hjálparhönd
BALDVIN ESRA EINARSSON Segir að
uppátæki þýsks kollega síns hafi komið
skemmtilega á óvart. MYND/HEIÐA.IS
JÓLIN 2005 Lófatölvur á borð við
PSP frá Playstation voru sagðar eiga
að rata í jólapakka lands-
manna fyrir þremur árum.
Söngkonan Lay Low
hefur ákveðið að taka
samningstilboði Nett-
werk Music Group, sem
er eitt stærsta umboðs-
og útgáfufyrirtæki
heims. Samkvæmt
samningnum, sem verður fullklárað-
ur á næstu vikum, mun Lay Low
gefa út þrjár plötur hjá fyrirtækinu,
þar á meðal þá nýjustu, Farewell
Good Night´s Sleep. Eins og Frétta-
blaðið hefur sagt frá voru önnur
útgáfufyrirtæki á höttunum eftir Lay
Low en þau urðu að lúta í lægra
haldi eftir æsilegt kapphlaup. Að
sögn Kára Sturlusonar, umboðs-
manns Lay Low, þótti það góður
kostur við Nettwerk að fyrirtækið er
þekkt fyrir gott samstarf við söng-
konur á borð við Sara McLachlan og
Martha Wainwright.
Og meira af Nettwerk
Music Group því starfs-
menn fyrirtækisins í
London fá tækifæri til
að sjá Lay Low í fyrsta
sinn á tónleikum á
klúbbnum Metro
29. nóvember.
Klúbburinn tekur um 250 manns
og þar mun Lay Low spila ein með
kassagítarinn í hálftíma fyrir framan
væntanlega vinnuveitendur sína.
Miðað við einlægni hennar og
hispursleysi eiga þeir án efa eftir að
heillast upp úr skónum af þessari
næstu stjörnu Íslands á alþjóðavísu.
Heimir Már Pétursson er einn
þeirra fjölmörgu blaðamanna sem
fékk uppsagnarbréf á dögunum.
Heimir Már heldur þó ótrauður sínu
striki og væntanleg er ljóðabók
frá honum. Titillinn er „Nakinn”
en þó heyrist að Heimir sé ekki
til í að sitja fyrir á mynd sem
rímar við titil ljóðabókar sinnar og
vitnar í hendingu ættaða
frá Stuðmönnum beri slíkt
á góma: Ég geri hvað
sem er fyrir frægðina
nema koma nakinn fram.
- fb, jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það má vera að þessi ágæti ein-
fari sjái hlutina svona í sínum eigin
heimi en þetta er auðvitað alveg
rosalega lágkúrulegt,“ segir Bubbi
Morthens tónlistarmaður. Ummæli
Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins, á Vísi í gær,
um samstöðutónleika Bubba,
hleyptu illu blóði í þá tónlistar-
menn sem þar koma fram. Sam-
kvæmt Óskari eru samstöðutón-
leikarnir í reynd útgáfutónleikar
og Reykjavíkurborg geti ekki
styrkt alla þá sem koma saman í
tilefni þess að þeir séu að gefa út
plötu.
Óskar lét ummælin falla í sam-
tali við Vísi í gærmorgun þegar
ljóst var að Reykjavíkurborg
myndi ekki styrkja tónleikana með
fjárframlagi. Reykjavíkurborg
hyggst hins vegar gefa eftir leigu
Laugardalshallarinnar. „Þessir tón-
leikar [eru] að einhverju leyti
útgáfutónleikar þeirra aðila sem
þarna koma fram og ef Reykjavík-
urborg ætlar að fara að taka
upp á því að styrkja alla þá
sem sýna frumkvæði í því að
koma saman í tilefni þess að
þeir eru að gefa út plötu held
ég að við séum komin út í
umhverfi sem við ráðum tæp-
lega við,“ lét Óskar hafa
eftir sér.
Tónleikahaldarinn
Bubbi Morthens var
ákaflega reiður og
undrandi á þessum
ummælum þegar Fréttablaðið bar
þau undir hann. „Ég sætti mig
alveg við að Óskar Bergsson
segi nei. En að ætla okkur
að þetta séu einhverjir
útgáfutónleikar er bara
fásinna. Okkur finnst skipta
máli að peppa þjóðina aðeins
upp, gera eitthvað skemmti-
legt þegar þjóðin
rambar á barmi
gjaldþrots,“ segir
Bubbi en bætir
því við að honum
komi ekki á
óvart úr hvaða
átt ummælin
kæmu. Hann
bætir því hins
vegar við að tón-
leikarnir verði
haldnir á laugar-
dagskvöld. Enda
hafi fjöldi fyrir-
tækja sýnt þessu framtaki mikinn
áhuga. Bubbi bendir jafnframt á að
synjun Reykjavíkurborgar um
styrk skjóti nokkuð skökku við því
fyrr á árinu hafi borgin styrkt tón-
leika Bjarkar og Sigur Rósar sem
haldnir voru í Laugardal.
Óskar Bergsson sagðist í samtali
við Fréttablaðið ekki sjá neitt
athugavert við ummæli sín. „Ég
vona bara að tónleikahaldararnir
misvirði ekki þann styrk sem
Reykjavíkurborg leggur til,“ segir
Óskar og vísar þar til gjaldfrjálsr-
ar notkunar á Laugardalshöll en
leigan af henni er metin á rúma
eina milljón króna undir atburði á
borð við þennan. Hann segir jafn-
framt að Reykjavíkurborg hafi í
mörg önnur horn að líta en að
styrkja tónleika á borð við þessa
með fjárframlögum og að horft sé
á eftir hverri krónu um þessar
mundir. freyrgigja@frettabladid.is
ÓSKAR BERGSSON: REYKJAVÍKURBORG STYRKIR EKKI ÚTGÁFUTÓNLEIKA
Bubbi Morthens og formað-
ur borgarráðs í hár saman
STENDUR VIÐ STÓRU
ORÐIN Óskar Bergsson
sér ekkert athugavert
við ummæli sín og
vonar að tónleikahald-
ararnir misvirði ekki styrk
Reykjavíkurborgar.
VONSVIKNIR POPPARAR Samstöðutónleikar Bubba voru kynntir á blaðamannafundi
í byrjun vikunnar og voru popparar landsins þá fullir bjartsýni. Í gær var þeim synjað
um styrk frá Reykjavíkurborg. Bubbi Morthens segir orð Óskars fyrir neðan beltisstað.
Það kom honum hins vegar ekkert á óvart úr hvaða horni þau kæmu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Njósnarinn sneri þá heim
og tjáði Haraldi konungi
að ekki væri hægt að
ráðast inn í Ísland.
Framhald næstu daga. Vertu með!