Fréttablaðið - 14.11.2008, Síða 32

Fréttablaðið - 14.11.2008, Síða 32
6 föstudagur 14. nóvember ✽ ba k v ið tjö ldi n Stjörnumerki: Tvíburi. Besti tími dagsins: Morgun- stund gefur gull í mund. Geisladiskurinn í spilaran- um: Nýi diskurinn með Kings of Leon og Better Days Blues þar sem ég er að fara að túra um Suðurland. Uppáhaldsverslunin: Góði hirðirinn í Fellsmúla og Mál og menning á Laugaveginum. Uppáhaldsmaturinn: Sushi, ekki spurning. Ég lít mest upp til: Lóu, dóttur minnar. Áhrifavaldurinn? Amma Sjana og Ella Fitzgerald. Draumafríið? Nokkrar vikur í New York með nægan pening til að fara út að borða og droppa í leikhús, tónleika og söfn. Liggja svo á einhverjum flottum snyrti- og spa-stofum í „onduleringu og afslappelsi,“ þess á milli. Býður einhver betur? Hverju myndirðu sleppa ef þú yrðir að spara? Bílnum og sjón- varpinu. K ristjana er fædd og uppalin á Selfossi. Tónlistin hefur alla tíð verið stór hluti af lífi hennar og söng- áhuginn kviknaði snemma. „Í skól- anum var tónmennt einu sinni í viku, þar fékk ég tækifæri til að syngja sóló og var alltaf tilbúin til þess ef hinir vildu það ekki. Ég byrjaði átta ára í kór og söng sem sólóisti alveg þangað til ég útskrif- aðist úr fjölbrautarskóla,“ útskýr- ir Kristjana og segist alltaf hafa ætlað sér að verða söngkona. „Þegar ég var sautján ára bauðst mér að syngja með hljómsveitinni Lótus á Selfossi. Mér fannst svo- lítið eins og ég ætti bara að vera sæt og syngja, en ég hafði skoð- anir, gott tóneyra og heyrði alltaf þegar spilaðar voru einhverjar vitleysur. Það pirraði mig rosalega að geta ekki útskýrt hvað það var sem ég heyrði og hætti í hljóm- sveitinni skömmu seinna, en þá beit ég það í mig að ég skyldi læra meira,“ segir Kristjana. „Ég byrj- aði að syngja með Mánum í Ing- hóli á Selfossi og stofnaði svo upp úr því hljómsveitina Karma með Ólafi Þórarinssyni. Við spiluðum á sveitaböllum í þrjú ár, en þá komu stórbönd eins og Sálin inn á mark- aðinn og þegar pöbbarnir komu breyttist stemningin. Þá höfðum við verið með þrjú til fimm hundr- uð manns á balli hverja helgi, öll sumur, allt frá unglingum upp í rígfullorðið fólk,“ segir Kristjana sem vann fyrir sér með söngnum og lagði sitt af mörkum til heimil- isins þar sem hún bjó með móður sinni og yngri systur, en foreldr- ar hennar skildu þegar hún var fjögurra ára. DJASSINN HEILLAR Eftir að Kristjana kláraði stúdent- inn lá leiðin í söngnám við Söngs- kóla Reykjavíkur, en hún segir hönnunarnám einnig hafa togað í sig. „Á tímabili var á vogarskálun- um hvort ég færi í tónlistina eða í grafíska hönnun. Ég hef mikla þörf fyrir að skapa, ég bæði teikna, mála og sauma mikið út. Móður- og föðuramma mín voru miklar listakonur, stunduðu handavinnu og bókband, pabbi spilaði á selló, mamma á píanó og þau voru bæði fínir söngvarar. Pabbi spilaði mik- inn djass og mamma var líka dug- leg að fara með okkur systkinin á sinfóníutónleika. Ég var 22 ára þegar ég var heima hjá ömmu og heyrði þátt á Gufunni um Ellu Fitz- gerald með Tómasi R. Einarssyni. Þar heyrði ég hina frægu útgáfu Ellu af „How High The Moon“ með átta mínútna skattsólói og ég lam- aðist bara. Þegar ég heyrði Tómas svo segja að þátturinn yrði end- urtekinn seinna um kvöldið hljóp ég út í kaupfélag og keypti kasettu sem ég tók þáttinn upp á og á hana enn í dag,“ útskýrir Kristjana og hlær, en segir að þarna hafi hún fyrst fundið að hana langaði að læra djasssöng. „Rétt áður en pabbi lést kom hann og hlustaði á mig syngja mitt fyrsta djassgigg á Hótel Örk með Karli heitnum Sighvatssyni, sem var þá organisti í Hveragerði, en pabbi var þá orðinn mjög hjartveik- ur. Hann hafði aldrei verið hrifinn af þessu hljómsveitabrölti á mér, en var mikill djassáhugamaður og hvatti mig til að læra meira. Viku síðar ákvað ég að hætta í Karma og sömu nóttina og ég spilaði síð- asta giggið með þeim lést pabbi,“ útskýrir Kristjana sem hélt til Hollands í djassnám eftir að hún útskrifaðist úr Söngskólanum. HEILBRIGÐUR LÍFSSTÍLL Starfi Kristjönu fylgir óreglulegur vinnutími oft og tíðum, en hún segist kunna því vel og leggur rækt við bæði andlega og líkam- lega heilsu dags daglega. „Ég veit ekki hvort ég gæti unnið á reglulegum tíma að staðaldri, en mig hefur stundum dreymt um að taka mér pásu og vinna í níu til fimm vinnu í smátíma. Ég er samt orðin vön því að eiga kannski frí- dag á mánudegi í staðinn fyrir helgarnar,“ útskýrir Kristjana sem hugar að heilsunni með regluleg- um gönguferðum og hollu mat- aræði. „Ég er í æðislegum trimm- klúbb sem heitir Eins og vindurinn, með nokkrum frábærum listakon- um og við hittumst þrisvar í viku. Ég hef tekið svona skorpur á lík- amsræktarstöðvum en aldrei fund- ið mig. Þarna kann ég vel við mig, stunda líka Kundalini-jóga heima hjá mér og svo fer ég reglulega í sund með dóttur minni,“ bætir hún við og segir mataræðið ekki síður mikilvægt. „Ég hef mikinn áhuga á því að elda og eftir því sem maður eldast skynjar maður betur hvað það er sem gerir manni gott. Ég fór til dæmis á sushi-námskeið um daginn og reyni að hafa sushi nánast vikulega. Ég hef verið miklu duglegri að borða hollan mat und- anfarin ár og hef til dæmis tekið allt hveiti og mest allan sykur og salt út úr mataræðinu,“ útskýr- ir Kristjana, en viðurkennir þó að súkkulaði sé mesta freistingin. „Ég er ekki fanatísk þegar kemur að mat, en ég held að maður verði að breyta mataræðinu á eigin for- sendum, ekki af því að allir aðrir eru að gera það.“ VINSÆL Í ASÍU Frá því að hún útskrifaðist úr Kon- unglega Listaháskólanum í Haag í Hollandi árið 2000 hefur Kristjana gefið út fimm plötur. Fyrsta sóló- plata hennar, „Kristjana“, kom út í Japan árið 2005 og í fyrra var svo gerð safnplata með völdum lögum Kristjönu og Agnars Más Magn- ússonar píanóleikara sem gefin var út í Kóreu 2007. Nýjasta plata hennar, Better Days Blues, kom út í haust hér á landi og inniheldur bæði frumsamin lög eftir Kristjönu og önnur vel valin, en platan er sú fyrsta sem hún útsetur alfarið sjálf. Verið er að ganga frá útgáfusamn- ingum ytra en Better Days Blues verður þá þriðja plata hennar sem kemur út í þriðja Asíulandinu á næstu mánuðum. „Það er eitthvað í Austurlöndum sem þeir eru greini- lega að fíla, ég veit ekki hvað það er,“ segir Kristjana brosandi. Auk þess að starfa sem söng- kona hefur Kristjana kennt söng við FÍH frá því 2002, tekið leikara í raddþjálfun og leiðbeint keppend- um Idol- og X-factor-sjónvarpsþátt- anna. Í vor þreytti hún frumraun sína sem tónlistarstjóri í sýning- unni Dauðasyndunum í Borgar- leikhúsinu og hefur í kjölfarið verið fengin í annað verkefni í París í desember. „Rafael Bianciotto, leik- stjóri Dauðasyndanna, er að fara að setja upp Birting eftir Volta- ire í Frakklandi. Við unnum mjög vel saman svo hann bauð mér að vinna með leikhópnum sínum. Ég fer því til Parísar í tíu daga í desember og vinn við raddþjálfun og útsetningar í sýningunni,“ út- skýrir Kristjana, en á morgun held- ur hún í tónleikaferðalag um Suð- urland. Hún hefur leikinn á Café Rósenberg annað kvöld, en í kjöl- farið mun hún troða upp á Hellu, Þorlákshöfn og á Selfossi. TÍMI BREYTINGA Aðspurð segist Kristjana svo sann- arlega hafa fundið fyrir breyttum aðstæðum í kjölfar kreppunnar, en segist engu síður hafa verið lánsöm að hafa nóg að gera í tónlistinni. „Ég er búin að heyra af fólki sem er að koma skelfilega út úr þessu og finnst það mjög sorglegt. Kannski er það listamannseðlið í manni, en ég hef aldrei tekið þátt í þessu kjaftæði og á hvorki sjálf- virka kaffikönnu, uppþvottavél né flatskjá. Það eina sem ég daðr- aði við var hvort ég ætti að henda gamla bílnum mínum eða kaupa mér nýjan í vor, en þá ákvað ég frekar að eyða tugum þúsunda í að láta gera við gamla bílinn því ég á hann. Í dag er ég svo fegin að hafa ekki tekið lán fyrir nýjum bíl að ég klappa honum á hverjum degi,“ segir Kristjana og hlær. „Ég held að tónlistarsenan eigi eftir að breytast, fólk bíði ekki leng- ur eftir símtali um stór bankagigg heldur eigi sköpunarkrafturinn eftir að aukast og mikið af spenn- andi hlutum að gerast. Annaðhvort getur maður lagst í kör og orðið þunglyndur yfir ástandinu eða litið á það sem stórkostlegt tækifæri.“ segir Kristjana að lokum. ÞRIÐJA PLATAN Í ASÍU Kristjana Stefánsdóttir gaf nýlega út sína fimmtu sólóplötu. Hún fagnaði fertugsafmælinu sínu í vor, er um það bil að fara í tónleikaferða- lag um Suðurland og gefa út sína þriðju plötu í Asíu. Viðtal: Alma Guðmundsdóttir Ljósmyndir: Anton Brink Fimm sólóplötur Tvær plötur Kristjönu hafa komið út í Asíu og á næstu dögum skrifar hún undir útgáfusamning fyrir þá þriðju, Better Days Blues.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.