Fréttablaðið - 14.11.2008, Side 54

Fréttablaðið - 14.11.2008, Side 54
34 14. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500 SÍMI 564 0000 12 12 12 16 14 14 L L QUANTUM OF SOLACE kl. 6 - 8 - 9 -10.10* MAKE IT HAPPEN kl. 6 *KRAFTSÝNING 12 L QUANTUM OF SOLACE kl. 4 - 5.30 - 6.30 - 8 QUANTUM OF SOLACE kl. 9 - 10.30 - 11.20 QUANTUM OF SOLACE LÚXUS kl. 5.30 - 10.30 QUARANTINE kl. 10.10 MY BEST FRIENDS GIRL kl. 5.40 - 8 - 10.20 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.50 - 8 SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 3.45 LUKKU LÁKI OG DALTON BRÆÐUR kl. 3.45 5% FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI 50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ KAUPIR BÍÓMIÐANN Á 1 L 14 16 QUANTUM OF SOLACE kl. 5.30 - 7 -8.30 -10 -11.30 THE WOMEN kl. 5.30 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.40 - 8 - 10.10 MAX PAYNE kl. 8 - 10.15 5% 5% SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000 12 12 14 16 L TRAITOR kl. 5.30 - 8 - 10.20 QUANTUM OF SOLACE kl. 5.30 - 8 - 10.20 MY BEST FRIENDS GIRL kl. 5.45 - 8 - 10.15 BURN AFTER READING kl. 10.15 HOUSE BUNNY kl. 5.50 - 8 550kr. fyrir börn 650kr. fyrir fullorðna ÁLFABAKKA SELFOSS AKUREYRI KEFLAVÍK KRINGLUNNI PASSENGERS kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 PASSENGERS kl. 8 - 10:20 VIP HOW TO LOSE.. kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 RESCUE DAWN kl. 8 - 10:30 16 FERÐIN TIL TUNGLSINS 3D kl. 4 - 6 L HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 3:30 - 5 - 6 - 8:30 L EAGLE EYE kl. 8 - 10:20 12 EAGLE EYE kl. 5:40 VIP NIGHTS IN RODANTHE kl. 3:40 síð. sýn. L GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 3:40 L PASSENGERS kl. 3:40 - 5:50 - 8:20 - 10:30 12 RESCUE DAWN kl. 8 - 10:30 16 FERÐIN TIL TUNGLSINS 3D kl. 4 L HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 3:50 - 6 L SEX DRIVE kl. 8:20 - 10:30 12 JOURNEY 3D kl. 6 LDIGITAL-3D DIGITAL-3D DIGITAL DIGITAL-3D JAMES BOND kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40 L MY BEST FRIENDS GIRL kl. 8 14 BABYLON A.D. kl. 10:20 16 HOW TO LOSE FRIENDS kl. 6 - 8 - 10 12 HAPPY GO LUCKY kl. 6 L HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 L BANGKOK DANGEROUS kl. 10 16 QUANTUM OF SOLACE kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40 L EAGLE EYE kl. 8 síð. sýn. 12 MAX PAYNE kl. 10:20 16 SparBíó 550kr Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ APPELSÍNUGULU Anne Hathaway úr Get Smart og Devil Wears Prada kemur hér í mögnuðum spennutrylli. Mynd sem kemur stöðugt á óvart. - bara lúxus Sími: 553 2075 TRAITOR kl. 5.45, 8 og 10.15 12 QUANTUM OF SOLACE kl. 5, 7.30 og 10 - POWER 12 REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 10 12 LUKKU LÁKI - ÍSLENSKT TAL kl. 4 L MAMMA MIA - ATH 500kr. kl. 4, 6 og 8 L M Y N D O G H L J Ó Ð TEKJUHÆSTA MYND ALLRA TÍIMA Á ÍSLANDI ATH! 650 kr. POWERSÝNINGKL. 10:00DIGITAL MYND OG HLJÓÐ 500 kr. SÍÐASTA SÝNINGARVIKA Eftir ýmsar tilraunir, sumar mátt- lausar, með kántrí og suðureyja- músik hittir Baggalútur loksins í mark á nýju plötunni. Piparsveina- geimaldarpartípopp með kokteil- pinna- og diskóívafi svífur yfir vötn- um en Baggar búa svo um hnútana að allt er leyfilegt. Franskt hvísl- popp a la Gainsbourg skýtur þannig upp kolli í æsandi lokalaginu og frægasta lag Pulp er greinilega haft til hliðsjónar í titillaginu. Fjöl- breytnin er mikil, en heildarmyndin samt klár: stórskemmtilegt stuð- popp sem fagmenn hafa nostrað við. Bragi Valdimar Skúlason semur meirihluta laga og texta. Ég kemst ekki yfir það hvað hann er sniðugur og duglegur, hann semur jú allt á barnaplötuna Gilligill líka. Í textun- um hér vakna karlpungar til lífsins, á leiðinni á rall, setjandi á sig spíra, vongóðir fyrir nóttina. Sumir eru álappalegir eins og félagarnir í hinu misskilda „Þjóðhátíð ´93“, aðrir of vissir um sig eins og sá í „Laugar- dagskvöldi“. Í því lagi er uppáhalds- línan mín á allri plötunni: „Það var sagt mér að það væri partí hérna, sem vantar bara mig í sig“ – algjör snilld! Karlpungur á leið á rall-mótífið er þó oft brotið upp. Horfið góðæri birtist í titillaginu, nostalgíutaugar aðdáendahóps Baggalúts eru nudd- aðar í „Gamalt og gott“ og krúttin fá enn eina umfjöllunina í „Krútt“. Það er fyrsta lagið sem Bragi syngur á Baggalúts-plötu, sem er óþarfa hóg- værð því hann hefur ágætis rödd. Nýjasta nýtt er tvímælalaust besta plata Baggalúts. Hún er líka mjög neytendavæn því auk klukku- tímaskammts af eðalpoppi fylgir stórskemmtilegt partíspil í pakkanum. Þótt Baggalútur og Buff séu vissulega ólík bönd eru þau lík á þann hátt að bæði eru skipuð mikl- um fagmönnum að spila íslenskt popp. Bæði höfða því sterkt til „venjulegra“ Íslendinga. Líkt og Baggalútur byggði Buffið upp eftir- væntingu fyrir plötu sína með því að setja smelli í spilun með löngum fyrirvara. Fimm stórgóð lög með Buffinu höfðu heyrst, og mörg þeirra notið vinsælda, áður en plat- an var loksins gefin út. Þetta er þriðja plata bandsins en sú fyrsta sem vekur athygli, enda tekur Buff- ið sig nú loksins alvarlega sem skap- andi band, ekki „bara“ kóverband. Buffið hefur líklega úr besta söngvaravali íslenskra hljómsveita að moða. Snilli Péturs Arnar þekkja flestir, en Hannes trommari og Stefán Örn bæta við gríðarflottum bakröddum sem renna saman í unaðssætan samhljóm. Hljóðfæra- leikur er svo eðlilega frábær enda fá bönd sem spila jafn mikið. Áðurnefndur Stefán Örn er nýj- asti meðlimur bandsins. Hann legg- ur til mörg frábær lög en Pétur hefur hingað til samið flest lög Buffsins. Bítlarnir eru sterkasta kryddið á plötunni. Sums staðar æpa áhrifin á mann, annað minnir á ELO og hið frábæra „Enginn nema þú“, sem Stefán syngur gullfallega, hljómar eins og KK sé að spila með Spilverkinu. Buff er frábært poppband en það er helst að þeim bregðist bogalistin þegar á að rokka hressilega, eins og í Pelican-lega laginu „Svaka stuð í bænum“. Strákarnir eru þó full- sæmdir af þessari fínu plötu og ættu endilega að setja stefnuna á að toppa hana. Það eru allir nauðsynlegir hæfileikar innanborðs í bandinu til að þeim takist það. Dr. Gunni Partípopp og Bítlabuff TÓNLIST Buff Buff ★★★★ Söngkonan Elíza Geirsdóttir New- man er þessa dagana stödd í Lond- on að taka upp lög sem líklega verða á næstu sólóplötu hennar. „Þetta er eiginlega tilraun. Ég er að vinna með strákunum í Half Tiger. Mér fannst þeir voða sniðug- ir og þeir buðu mér að koma og prófa,“ segir Elíza. Half Tiger er skipuð tveimur Íslendingum, Gísla Kristjánssyni og Sigga Sadjei, sem var áður í Skyttunum. Gísli rekur hljóðver í London sem nefnist Good Beating, þar sem upptökur Elízu fara fram. Hún hélt fyrir skömmu óraf- magnaða tónleika á staðnum Slaughtered Lamb í London við góðar undirtektir. Dísa kom þar einnig fram. „Það var fullt hús og það gekk rosalega vel,“ segir Elíza. Hún segist ekki hafa orðið vör við nein leiðindi í garð Íslendinga af hálfu Breta. „Það er meira að fólki finnist þetta sorglegt og leiðinlegt að það skuli vera komið svona fyrir okkur.“ Sjálf segir hún það inni í mynd- inni að yfirgefa Ísland ef efnahags- ástandið fer ekki að lagast. „Ég vil vera á Íslandi ef ég get. En ef ástandið verður mjög slæmt verð- ur maður að skoða aðra möguleika. Stefnan er að halda áfram að gera tónlist og sjá hvert hún leiðir.“ - fb Upptökur hafnar í London ELÍZA Söngkonan Elíza er að undirbúa sína aðra sólóplötu í hljóðveri í London. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Nýjasta nýtt Baggalútur ★★★★ „Þunglyndislyf ársins.“ david prozac „Ég efast um að ég hefði komist til valda ef Aukablaðið hefði komið út á þeim tíma.“ adolf hitler „Þetta er bók fyrir alla sem vilja skilja samtíma sinn.“ snorri sturluson Spannáll Aukablaðsins 2003–2008 með drepfyndnar og hárbeittar fréttaskýringar í máli og myndum! öllu gríni fylgir alvara …

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.