Fréttablaðið - 14.11.2008, Page 55
FÖSTUDAGUR 14. nóvember 2008
Tónskáldið Jóhann Jóhannsson
fær 6,7 í einkunn af tíu möguleg-
um á bandarísku tónlistarsíðunni
Pitchforkmedia.com fyrir sína
nýjustu plötu, Fordlândia.
„Platan hljómar kunnuglega
fyrir aðdáendur Jóhannssonar.
Hún er uppfull af fallegum
strengjum sem eru studdir af
flottri raftónlist,“ segir gagnrýn-
andinn og bætir við að Fordlândia
sé dramatískasta verk Jóhanns til
þessa. Hann segir að platan sé
mjög góð og vel samin en einum
of fáguð. Jóhann hefur jafnan
fengið góða dóma á Pitchfork-
media fyrir plötur sínar og er
þessi engin undantekning. - fb
Jóhann fær
góða dóma
JÓHANN JÓHANNSSON Fær 6,7 í ein-
kunn fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia.
Vel heppnaðir tónleikar Þursa-
flokksins og Caput-hópsins, sem
voru haldnir í Laugardalshöll 23.
febrúar, eru komnir út á geisla-
diski og mynddiski í einum
veigamiklum pakka.
Á plötunni eru sextán lög frá
tónleikunum, þar á meðal
Brúðkaupsvísur, Pínulítill karl,
Nútíminn og Gegnum holt og
hæðir. Mynddiskurinn inniheldur
síðan tónleikana í heild sinni.
Í tilefni tónleikanna var gefinn
út kassi með heildarsafni
Þursanna og var honum einkar
vel tekið, bæði af gagnrýnendum
sem og aðdáendum Þursanna. Öll
hönnun nýja pakkans kallast á við
svarta kassann en í þetta sinn eru
umbúðirnar rauðar á litinn. - fb
Þursarnir í
rauðu boxi
TÓNLEIKARNIR GEFNIR ÚT Þursaflokkur-
inn og Caput-hópurinn spiluðu í
Laugardalshöll 23. febrúar við góðar
undirtektir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1000 KR Eittþúsund króna Gildir til 31. des 2008inneign á alla tungumáladiska Gefðu tungumál í jólagjöf!
Danska
Enska
Franska
Ítalska
Norska
Portúgalska
Rússneska
Spænska
Þýska
Afríkanska
Albanska
Arabíska
Búlgarska
Eistneska
Finnska
Gríska
Hebreska
Hindí
Hollenska
Írska
Íslenska
Japanska
Kínverska
Króatíska
Latína
Lettneska
Litháenska
Maltverska
Pólska
Rúmenska
Serbneska
Slóvenska
Tælenska
Tékkneska
Tyrkneska
Ungverska
Úkraínska
Zulu
Skeifan 550-4110, Smáralind 550-4140, Kringlan 550-4130, Hafnarfjörður 550-4120, Selfoss 550-4190, Vestmannaeyjar 550-4180, Egilsstaðir 550-4160, Akureyri 550-4150, Ísafjörður 550-4170