Fréttablaðið - 14.11.2008, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 14.11.2008, Blaðsíða 56
36 14. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is > Valsmenn safna Fjölnismönnum Það eru engin kreppumerki á knattspyrnudeild Vals en félagið gekk í gær frá samningum við tvo leikmenn Fjölnis. Það eru þeir Ólafur Páll Snorrason og Pétur Georg Markan sem hafa ákveðið að söðla um og ganga í raðir Hlíðarendaliðsins en báðir voru í lykilhlutverkum hjá Fjölni síðasta sumar. Valsmenn eru því sem fyrr eina félagið á Íslandi sem er virkt á leikmannamarkaðnum en áður hafði félagið gengið frá samn- ingum við Reyni Leósson, Ian Jeffs og svo er Kristján Hauksson kominn til félagsins á ný en hann var í láni hjá Fjölni síðasta sumar. HANDBOLTI Júlíus Jónasson, landsliðs þjálfari kvenna, hefur valið æfingahóp til undirbúnings fyrir undankeppni HM sem fer fram í lok mánaðarins. Leikið er í Póllandi. Ísland er í riðli með Póllandi, Lettlandi, Slóvakíu og Sviss og fer efsta lið riðilsins á HM. - hbg Kvennalandsliðið: Júlíus velur 20 manna hóp RAKEL DÖGG Er í leikmannahópi Júlíusar sem fyrr. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL LANDSLIÐSHÓPURINN Markverðir: Berglind Íris Hansdóttir Valur Guðrún Maríasdóttir Fylkir Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir HK Aðrir leikmenn: Arna Sif Pálsdóttir HK Ágústa Edda Björnsdóttir Valur Ásta Birna Gunnarsdóttir Fram Dagný Skúladóttir Valur Elísabet Gunnarsdóttir Stjarnan Hanna G. Stefánsdóttir Haukar Hildigunnur Einarsdóttir Valur Hildur Þorgeirsdóttir FH Hrafnhildur Skúladóttir Valur Íris Ásta Pétursdóttir Valur Jóna S. Halldórsdóttir HK Ragnhildur Guðmundsdóttir FH Rakel Dögg Bragadóttir Kolding Rut Jónsdóttir Team Tvis Holstebro Sigurbjörg Jóhannsdóttir Fram Stella Sigurðardóttir Fram Sunna María Einarsdóttir Fylkir N1-deild karla í handbolta FH-Akureyri 32-34 (17-14) Mörk FH (skot): Aron Pálmarsson 11 (15), Ásbjörn Friðriksson 5 (10), Ólafur Guðmundsson 5 (15), Halldór Guðjónsson 4 (4), Guðmundur Pedersen 4 (6), Sigursteinn Arndal 2 (2), Sigurð- ur Ágústsson 1 (2). Varin skot: Magnús Sigmundsson 21/1 (54/4) 39%. Hraðaupphlaup: 8 (Ásbjörn 3, Halldór 2, Ólafur, Ásbjörn, Aron). Fiskuð víti: 0. Utan vallar: 8 mín. Mörk Akureyrar (skot): Árni Þór Sigtryggsson 11/3 (19/4), Hörður Fannar Sigþórsson 5 (5), Andri Snær Stefánsson 5 (9), Jónatan Magnússon 4/2 (11/2), Oddur Grétarsson 3 (6), Anton Rún- arsson 3 (9), Gústaf Kristjánsson 1 (1). Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 8 (23) 35%, Hafþór Einarsson 4 (22) 18%. Hraðaupphlaup: 1 (Árni). Utan vallar: 6 mín. Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson voru mjög góðir. Fram-HK 29-29 (13-13) Markahæstir hjá Fram: Rúnar Kárason 9, Haraldur Þorvarðarson 6, Guðjón Drengsson 5, Andri Berg Haraldsson 4. Markahæstir hjá HK: Valdimar Þórsson 12, Gunnar Steinn Jónsson 4, Ragnar Hjaltested 4. Valur-Víkingur 31-22 (17-9) Markahæstir hjá Val: Baldvin Þorsteinsson 7, Arnór Gunnarsson 5, Heimir Örn Árnason 4, Sigurður Eggertsson 4. Markahæstir hjá Víkingi: Sverrir Hermannsson 7, Sveinn Þorgeirsson 4, Davíð Ágústsson 4. Iceland Express-deild karla Grindavík-Keflavík 80-79 (39-36) Stig Grindavíkur: Brenton Joe Birmingham 19 (13 frák. hitti úr 6 af 7 3ja stiga), Páll Kristinsson 17 (10 frák.), Páll Axel Vilbergsson 17, Arnar Freyr Jónsson 13, Þorleifur Ólafsson 11 (6 frák., 6 stoðs., 4 stolnir), Davíð Páll Hermannsson 3. Stig Keflavíkur: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 21 (8 frák.), Sverrir Þór Sverrisson 19 (7 stoðs.), Gunnar Stefánsson 17, Vilhjálmur Steinarsson 6, Elvar Þór Sigurjónsson 6, Jón Norðdal Hafsteins- son 5 (11 frák.), Hörður Axel Vilhjálmsson 3, Eldur Ólafsson 2. FSu-Breiðablik 93-70 (45-42) Stig FSu: Sævar Sigurmundsson 23, Björgvin Valentínusson 22, Vésteinn Sveinsson 18, Árni Ragnarsson 11 (8 fráköst), Thomas Viglianco 9, Tyler Dunaway 5, Nicholas Mabbutt 5. Stig Breiðabliks: Nemanja Sovic 20 (10 fráköst), Kristján Sigurðsson 10, Daníel Guðmundsson 10, Halldór Halldórsson 10, H. Vilhjálmsson 5, Rúnar Erlingsson 5, Emil Jóhannsson 5, Loftur Einarsson 3, Rúnar Pálmarsson 2. Stjarnan-KR 81-90 (49-44) ÚRSLIT Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar hans í Burnley stálu senunni í 16 liða úrslitum enska deildarbikarsins í fyrrakvöld með því að slá stórlið Chelsea úr keppni eftir vítaspyrnukeppni og bráðabana og það á hinum alræmda Stamford Bridge-leikvangi. „Þetta var alveg ótrúlegt, en við höfðum samt mikla trú á því að við gætum slegið þá úr keppni. Knattspyrnustjórinn okkar sagði á liðsfundi fyrir leikinn að það væri alveg hægt að vinna Chel- sea á Stamford Bridge og að Liverpool hefði sýnt það um daginn, en tók svo reyndar strax fram að tæplega níutíu félögum í röð þar á undan hefði mistekist að sigra þar. Menn náttúrlega sprungu bara úr hlátri fyrst en síðan hélt hann áfram að telja okkur trú um þetta og menn fóru í leikinn með miklu sjálfstrausti, við spiluðum okkar leik og uppskárum eins og við sáðum,“ segir Jóhannes Karl sigurreifur. Jóhannes Karl var í byrjunarliði Burnley en þurfti að yfirgefa völlinn í upphafi framlengingar vegna meiðsla og gat því ekki tekið þátt í vítaspyrnukeppninni, þar sem Burnley vann 5-4 í bráðabana. „Ég hefði elskað að fá tækifæri til þess að taka víti en ég fékk högg á kálfann og var orðinn það haltur að ég varð að fara af velli. En ég verð vonandi orðinn klár í slaginn gegn QPR í Championship-deildinni á morgun,“ segir Jóhannes Karl. Á morgun verður einnig dregið í átta liða úrslit deild- arbikarsins og þar er Burnley í pottinum ásamt stórliðum Arsenal og Manchester United. „Það væri náttúrlega best að fá heimaleik en eftir að hafa slegið Chelsea út þá skiptir í raun engu hverjir móth- erjarnir verða ef við förum með sama hugarfari í þann leik og gegn Chelsea. Ég væri alveg til í að fara á Old Trafford og reyna að slá United úr leik,“ segir púlarinn Jóhannes Karl og hlær stríðnislega. JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON: LÉK MEÐ BURNLEY Í SIGRI Á CHELSEA Í 16 LIÐA ÚRSLITUM DEILDARBIKARSINS Vill fá United á Old Trafford í átta liða úrslitum Framhald bls. 12 Framhald á bls. 42 Þar kom í móti honum bergrisi og hafði járnstaf í hendi og bar höfuðið hærra en fjöllin og margir aðrir jötnar með honum... Njósnarinn ákvað því að fara suður um Reykjanes og reyndi hann ganga upp á Víkarsskeiði. KÖRFUBOLTI „Við spiluðum mjög vel fyrstu mínúturnar í leiknum en þá er það bara upptalið. Menn töldu þá greinilega að þetta yrði eitthvað létt, fóru niður á hælana og komust aldrei af þeim. Þetta eru tvö stig en þetta var ekki ásættanleg frammistaða,“ sagði Frið- rik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, eftir 80- 79 sigur Grindavíkur á Keflavík í gær. Grindavík komst í 16- 2 og 23-4 en Keflvíkingar unnu sig inn í leikinn með góðum öðrum leikhluta og voru síðan nálægt því að vinna leikinn í lokin. „Ég vil hrósa Keflvíkingunum. Þeir spiluðu gríðarlega vel að mínu mati miðað við að það vant- aði lykilmenn í þeirra lið,“ sagði Friðrik en Keflavík lék án þeirra Gunnars Einarssonar og Þrastar Leó Jóhannssonar í gær. Friðrik var langt frá því að vera sáttur en játti því að þeir Brenton Birming- ham og Páls Kristinsson hafi dregið vagninn í þess- um leik. „Við vorum langt frá okkar besta og mig grunar að fyrstu mín- úturnar hafi gefi til- efni til vanmats. Við komust aldrei aftur í takt við leikinn og vorum stálheppn- ir að vinna,“ sagði Friðrik. Brenton Birmingham tók af skarið hjá Grindavík í seinni hálf- leik og skoraði þá 13 af 19 stigum sínum. Hann var besti maður liðs- ins ásamt Páli Kristinssyni sem barðist út um allan völl. Það hefur mikið verið talað um breiddina hjá Grindavík en bekkur Keflavíkur skoraði 31 stig gegn aðeins 3 hjá Grindavík í gær. Sverrir Þór Sverrisson átti mjög góðan leik í liði Keflavíkur og það var sérstaklega aðdáunarvert að sjá hann koma Keflavík aftur inn í leikinn í öðrum leikhluta þar sem hann var með 11 stig og 3 stoð- sendingar. Sverrir átti síðasta skot leiksins en þurfti að taka það frá miðju og hitti ekki. Gunnar Stef- ánsson átti líka góða innkomu af bekknum og Sigurður Gunnar Þor- steinsson er orðinn mjög öflugur undir körfunum bæði í vörn og sókn. - óój Grindvíkingar komust aftur á sigurbraut með naumum sigri á Keflavík í gær: Vorum stálheppnir að vinna SÆTUR SIGUR Arnar Freyr Jónsson skoraði 13 stig fyrir Grindavík gegn sínum gömlu félögum í Keflavík. FRÉTTABLADID/STEFÁN HANDBOLTI Akureyri náði loksins að leggja FH í þriðju rimmu lið- anna í vetur. Í fyrstu tveim leikj- unum kom FH til baka og vann en nú snérist taflið við því Akureyri átti frábæra endurkomu og tryggði sér verulega sætan tveggja marka sigur, 32-34. „Við erum svo bilaðir enda erum við frá Akureyri,“ sagði brosmildur Árni Þór Sigtryggs- son eftir leik aðspurður um stemninguna í Akureyrarliðinu og leikgleðina sem skín úr andlitum leikmanna. Akureyringar faðmast innilega í upphitun, fagna hver öðrum í kynningu og syngja söngva eftir sigurleiki. Stemningin í liðinu dylst engum og hún virðist fleyta liðinu langt. „Þetta eru allt strák- ar frá Akureyri og við náum bara vel saman og förum langt á gleð- inni,“ sagði Árni sem átti frábær- an leik og þá sérstaklega í síðari hálfleik. Það var fátt sem benti til þess framan af leik að Akureyri myndi hafa sigur. Sprækir FH-ingar komust í 5-0 og virtust ætla að keyra yfir þunga Akureyringa. Vörn Akureyrar datt síðan í gang og í raun hélt liðinu inni í leiknum í hálfleik þegar FH leiddi með þrem mörkum, 17-14. Það hefur hingað til hentað FH betur að sækja sigur en verja for- skot og það sýndi sig í gær. Liðið virkaði á köflum taugaveiklað í síðari hálfleik og þegar Aron var tekinn úr umferð var lítið að ger- ast og munaði mikið um að hinn magnaði Ólafur Guðmundsson fann sig engan veginn. Hinir þungu Akureyringar voru allt í einu orðnir sprækara liðið í seinni hálfleik, keyrðu hraðar sóknir og þegar Hörður Flóki varði nokkra bolta komust þeir yfir í fyrsta skipti, 27-28, þegar sjö mínútur lifðu leiks. FH-ingar áttu ekkert svar og stemnings- strákarnir að norðan sungu í leikslok áður en þeir hlupu út úr húsi í búningunum sínum því þeir voru að missa af fluginu norður. „Ég held við höfum ekkert verið stressaðir heldur var reynsluleysið kannski frekar að há okkur,“ sagði Aron Pálmars- son sem skoraði 11 frábær mörk en sóknarleikur FH hrundi þegar hann var tekinn úr umferð. „Þetta er annað tapið í vetur og það aftur á heimavelli. Það er alveg skelfilegt því hér ætluðum við ekki að tapa,“ sagði Aron ákveðinn að lokum. henry@frettabladid.is VIÐ ERUM SVO BILAÐIR Stemningslið Akureyrar situr eitt á toppi N1-deildar karla eftir seiglusigur á FH í gær, 32-34. Árni Þór Sigtryggsson þakkar stemningunni í liðinu árangurinn. ILLVIÐRÁÐANLEGUR Árni Þór Sigtryggsson fór fyrir liði norðanmanna í Krikanum í gær og skoraði ellefu mörk í 32-34 sigri gegn FH í slag toppliðanna í N1-deild karla í handbolta. FRÉTTABLADID/ARNÞÓR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.