Fréttablaðið - 19.11.2008, Blaðsíða 18
19. nóvember 2008 MIÐVIKUDAGUR2
ÖKUMENN á aldrinum 17 til 20 ára geta farið sér að kostnaðarlausu á gagnleg
og skemmtileg námskeið um ökutækjatryggingar og tjónamál sem Sjóvá For-
varnahúsið og Umferðarstofa bjóða upp á í samstarfi við Sjóvá og Vörð.
„Þetta eru frábær og rosalega
mannleg dýr,“ segir Dagbjört Rós
Helgadóttir um reynslu sína af
höfrungum eftir námskeið í höfr-
ungaþjálfun hjá ABC Dolphin
Trainer Academy í Mexíkó í sumar.
Er þetta í fyrsta sinn sem slíkt
námskeið er opið almenningi og
álítur Dagbjört sig lánsama að
hafa lent í tuttugu manna
úrtakinu.
„Þetta er mjög vinsæll bransi og
erfitt að komast í hann. Yfirleitt
eru svona námskeið bara fyrir
þjálfara,“ segir Dagbjört, sem lét
slag standa eftir að hafa heillast af
höfrungasýningu í Marineland á
Mallorca í vor. „Ég sagði vinkonu
minni að þarna væri draumastarfið
fundið.“
Dagbjört skráði sig á námskeiðið
á netinu og var með aðstoð vina og
vandamanna komin í þjálfunarbúð-
ir í Mexíkó áður en hún vissi af. „Ég
var úti í tvær vikur og lærði grunn-
inn í höfrungaþjálfun, sem byggist
á táknmáli og verðlaunaveitingum.
Þjálfararnir nota flautur til að gefa
höfrungunum til kynna að þeir hafi
lokið sínu og megi sækja verðlaun-
in sín, fisk, sem þeir fá fyrir minnstu
framfarir,“ segir hún. „Málið er að
ná augnsambandi við dýrin, sem
hænast mest að þeim sem fóðrar
þau.“
Dagbjört greiddi 1.000 dollara
fyrir námið fyrir utan uppihald og
gistingu og segir það hafa verið
hverrar krónu virði. Spurð hvernig
námið hafi nýst svarar hún hlæj-
andi: Ja, eru ekki einhverjar hnýsur
fyrir norðan? Nei, án gríns stefni
ég á Cayman Island í Karíbahafinu
þar sem Dolphin Discovery, sem
rekur skólann, er með starfsemi.
Ég ætla að senda ferilskrá út og sjá
hvað gerist,“ segir hún, bjartsýn á
framhaldið. roald@frettabladid.is
Dagbjört er lærður kafari en þess þarf
með til að geta lært höfrungaþjálfun.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Heilluð af höfrungunum
Dagbjört Rós Helgadóttir hefur sýslað ýmislegt spennandi um ævina og er meðal annars lærður kafari
og fallhlífarstökkvari. Síðast rak ævintýraþráin hana til Mexíkó þar sem hún lærði höfrungaþjálfun.
Tæknimenntaskólinn
• Almenn námsbraut
• Náttúrufræðistúdent - Flugtækni
• Náttúrufræðistúdent - Skipstækni
• Náttúrufræðistúdent - Raftækni
• Náttúrufræðistúdent - Véltækni
• Stúdentspróf af list- og starfsnámsbrautum
• Tæknistúdentspróf (frumgreinanám)
Byggingatækniskólinn
• Veggfóðrunar- og dúklagningabraut
• Tækniteiknun
• Múrsmíðabraut
• Málarabraut
• Húsgagnasmíðabraut
• Húsgagnabólstrun
• Húsasmíðabraut
• Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina
Ný t
Dagbjört er mikill dýravinur
og fékk útrás fyrir áhugamál-
ið með höfrungum, sæljón-
um og -kúm í Mexíkó.
M
YN
D
/Ú
R
EIN
K
A
SA
FN
I
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
Alla mmtudaga