Fréttablaðið - 19.11.2008, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 19. nóvember 2008 5
Nú er tími heitra og gómsætra
drykkja sem gott er að ylja sér á
kvölds og morgna.
Heitt kakó, Swiss mokka, kaffi og
te eiga svo sannarlega við á þess-
um árstíma, þegar húmar að og
þörf er á að hita kropp og sinni.
Fátt er huggulegra en að setjast
niður í góðra vina hópi og gæða
sér á gómsætum drykk með nota-
legu hjali. Við látum hér fylgja
með eina góða uppskrift að hátíð-
arsúkkulaði frá Te & kaffi.
Hátíðarsúkkulaði
2 tsk. kanilsíróp
20 cl mjólk
60 g dökkt súkkulaði að eigin vali
Vanilla (ef þið viljið)
Þeyttur rjómi
Kirsuberjasíróp
Hitið mjólkina og súkkulaðið
saman í potti. Gott er að hræra
smá vanillu út í. Setjið kanilsíróp í
botninn á bollanum og hellið súkk-
ulaðinu yfir. Setjið rjómakúf ofan
á og setjið smá kirsuberjasíróp
yfir. Njótið! - hs
Ylur í kroppinn
Heitt súkkulaði kallar á skemmtilegar minningar og veitir vellíðan.
Tímabært er að huga að jóla-
skreytingum enda aðventan
handan við hornið. Heimagerðar
skreytingar eru jafnan augna-
yndi og vinnan við þær kjörin
leið til að komast í jólaskapið.
Fyrir þá handlögnu sem ætla sér
að gera jólaskreytingarnar sjálfir
eru möguleikarnir óteljandi. Gott
gæti verið að fá hugmyndir og til-
sögn í skreytingagerð en í kvöld
og annað kvöld frá klukkan 20 til
22 stendur Blómaval í Skútuvogi
fyrir kynningu á jólaskrauti.
Skreytingameistarar Blómavals
taka á móti gestum og kynna það
nýjasta í jólaskrauti og skreyting-
um. Réttu handbrögðin verða sýnd
við kransa og skreytingagerð og
ýmsar uppákomur og aðrar kynn-
ingar verða á staðnum.
Athugið að takmarkaður sæta-
fjöldi er í húsinu en aðgangur er
öllum ókeypis. Nánar á www.
blomaval.is - rat
Jólaföndur
Allt það nýjasta í jólaskrauti verður kynnt
í Blómavali í kvöld og annað kvöld.
FRÉTTABLAIÐ/HEIÐA
KANILL minnir alltaf svolítið á jólin. Þegar líða fer að jólum er
því tilvalið að koma nokkrum kanilstöngum fyrir á góðum stað
svo ilmurinn af þeim berist um húsið og allir komist í jólaskap.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki