Fréttablaðið - 19.11.2008, Page 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Á sjöunda áratugnum gekk síld-in um Íslandsmið sem aldrei
fyrr. Búinn ASDIC-fiskleitartækj-
um og kraftblökkum mætti
íslenski flotinn henni og hreinsaði
hana upp. Með öllu. Veiðin fór úr
770 þúsund tonnum árið 1966 í
síldveiðibann árið 1972. En síldin
var í okkar lögsögu og við vorum
því í fullum rétti.
NORÐMENN stóðu í ströngu við
Íslendinga í Smugunni á tíunda
áratugnum. Þar þótti okkur sjálf-
sagt að fá að veiða það sem okkur
sýndist, þvert ofan í ráðgjöf fiski-
fræðinga, af því Smugan væri
alþjóðlegt hafsvæði og við hefðum
rétt á því. Á dögunum bárust síðan
fregnir af því að Íslendingar hefðu
veitt fimm sinnum meira af makr-
íl en þeir höfðu kvóta fyrir. Í stað
20 þúsund tonna urðu þau 100 þús-
und. Við höfðum á þessu eðlilega
skýringu, þetta hefði verið með-
afli, við værum því í fullum rétti.
SPURNINGUM varðandi áhrif
Kárahnjúkavirkjunar var mis-
jafnlega vel tekið. Ábendingum
um slælegar rannsóknir á afleið-
ingum hennar fyrir vatnafar á
svæðinu, fyrir hrygningarstofna
undan landi og um þensluhvetj-
andi áhrif hennar, var vísað frá
sem nöldri. Okkur vantaði aura og
því skiptu óafturkræf áhrif engu
máli; við værum í fullum rétti.
ÍSLENSKU bankarnir stofnuðu
síðar reikninga erlendis. Þrátt
fyrir skýr lagaleg ákvæði þar um
fannst íslenskum stjórnvöldum
engin ástæða til að tryggja þann
hluta innstæðnanna sem þeim bar.
Það snerist upp í sjálfstæðisbar-
áttu að segja breskum sveitar-
félögum og ömmum með ævi-
sparnaðinn, að þrátt fyrir að Ísland
hefði sagst standa að baki ríflega
20 þúsund pundum á hvern reikn-
ing, þá gilti það ekki núna. Ástand-
ið hjá okkur væri bara þannig. Við
værum því í fullum rétti.
SÚ HUGSUN læðist að manni að
við Íslendingar séum rányrkju-
þjóð. Við einhendum okkur í verk-
in og köllum það að vera skorpu-
þjóð. Í raun reynum við að ná sem
mestum gróða inn á sem skemmst-
um tíma og sjáumst ekki fyrir um
afleiðingarnar. Um það vitnar
geirfuglinn í Eldey sem ekki þurfti
að kemba hærurnar. Við erum
dugleg, það vantar ekki, en ráð-
deildina skortir. Ef við teljum
okkur í fullum rétti þá erum við
sátt, þótt við skiljum eftir okkur
sviðna jörð.
KANNSKI má heimsbyggðin
þakka fyrir að við erum ekki nema
um 300 þúsund.
Skorpuþjóðin
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar Proppé
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Í dag er miðvikudagurinn 19.
nóvember, 324. dagur dagsins.
10.10 13.13 16.15
10.12 12.58 15.43