Tíminn - 14.02.1982, Síða 13

Tíminn - 14.02.1982, Síða 13
Sunnudagur 14. febrúar 1982 13 ég. Hvað mætti gera við þá peninga? Það er nefnilega margt að gera. Það þarf að setja þessum blessuðum listamannalaunum reglur og þvi ólikari sem þær eru núgildandi reglum þvi betra. Starfslaun listamanna eru annar handleggur og ekki visinn eins og þessi — þar eru veittar sæmilegar summur eftir umsóknum þar sem listamennirnir hljóta að tilgreina til hvers þeir ætla að nota pening- ana og hvort þeir þurfa yfirleitt á þeim að halda. Setjum nú svo að peningunum væri skipt niður i tiu staði en ekki 134. Þá fengi hver listamaður 111 þúsund og fimm hundruð krónur — það eru skikkanleg árslaun og mætti skapa margt gott listaverkið á þvi einaárisem listamaöurinn þyrfti ekki að hafa áhyggjur af brauðstriti. Þó fénu væri skipt niður i tuttugu staði væri upp- hæðin samt umtalsverö: 55 þús- und 750 krónur. Eitthvað mætti komast á þvi. Og ansi er ég hræddur um að nefnd sem skipuð er á þann hátt sem nú er gert yrði til trafala. Djöfulinn vita stjórnmála- flokkarnir um listir? Ekki par — þótt auðvitað séu einstaklingar innan þeirra sem eitthvað vita i hausinn á sér. Burtséð frá þeim mönnum sem nú og áður hafa skipað ntfndina þá er það ekki hlutverk stjórnmálaflokka að veita listamannalaun og/eða listaviðurkenningar. Við ná- kvæma skoðun á listanum mætti lika sjá fingraför pólitiskraflokka á ótrúlegustu stöðum en ég held ég láti það kyrrt liggja — að sinni að minnsta kosti. Nú er eins og ég hef minnst á áður eins vist að mennirnir sex i nefndinni séu að flestu leyti til fyrirmyndar, en það kann ekki góðri lukku að stýra þegar þeir vita að þeir eru fulltrúar stjórnmálaflokka og hegða sér eftir þvi. Náttúrlega gengur þeim gott eitt til og svo sem ekki við þá að sakast — það er bara bráðnauðsynlegt að breyta þessu sýstemi. Satt að segja get ég alls ekki imyndað mér hverjum þetta skipulag er til góðs. Er það ekki hálfgerð hneisa fyrir alla raun- verulega listamenn að þiggja smotteri af rikinu til einhvers konar staðfestingar þvi að þeir eru miklir og mætir á sinu sviði? Einum man ég eftir sem hefur af- þakkaðþennan „heiður”, Þorgeir Þorgeirsson og fleiri hafa brúkað munn. En „viðurkenningin” virðist vega þungt. Til skammar fyrir alla aðila Othlutun listamannalaun hefur •oft verið umdeild og undanfarin ár hefur gagnrýnisröddum fjölgað — ekki sist meðal lista- manna sjálfra. Ekki er betur farið með aumingjans skatt- borgarann, teknar af honum 1.115 þúsund krónur (ath. að i þessari tölu eru heiðurslaunin ekki inni- falin), skipt niður i 134 staði og út- býtt til listamanna sem hafa kannski eitthvað við féð að gera en geta altént ekki notað það til að skapa listaverk handa skatt- borgaranum svo hann fái eitthvað fyrir sinn snúð. Úthlutinin i ár hlýtur að verða til þess að eitthvað verði gert i málinu. Þetta gengur alls ekki lengur og er til skammar fyrir alla aðila. Háborinnar skammar. Undir hvern heyra þessi mál? —‘j P.S. Eitt gerði úthlutunar- nefndin sem ég vil fá að hrósa henni fyrir. Hún veitti engum „poppara” lágmarkslaun að þessu sinni sem er gott. Með þessu er ég hreint ekki að segja að popp-tónlistarmenn eigi ekki skilið sumir hverjir, að flokkast með listamönnum en undanfarin ár hefur eitt stykki poppari fengið þessi laun í neðri flokki og hefur verið sterkur hræsnikeimur af þeirri úthlutun. „Popparar” eiga skilið að hljóta sina viðurkenn- inguog ef til vill styrk til að gera eitthvað af viti en það var ekki gert með þessum hætti. Kannski þetta sé spor i áttina. Hvernig væri aðsleppa rithöfundum næst, siðan myndlistarmönnum, tón- listarmönnum og svo framvegis uns cnginn er eftir. Þá mætti nota peningana i eitthvaö af viti. al- mennilegan sjóð sem kæmi að raunverulegu gagni. Offset-skeyting Óskum eftir að ráða vanan skeytingar- mann Prentsmiðjan Edda h.f. Smiðjuvegi 3 simi 45000 Staða forstöðumanns Dalbæjar,heimilis aldraðra Dalvik er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. mars n.k. í umsókn skal greint frá aldri,menntun og fyrri störfum umsækjenda. Nánari upplýsingar um starfið veitir for- maður stjórnar óskar Jónsson simi 96- 61444. Útboð-Jarðvinna Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavlk óskar eftir tilboðum i jarðvinnu við Eiðs- granda. Útboðsgögn verða afhent á Skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30 frá og með mánu- deginUm 15. febr. gegn 500 kr. skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 23. febr. n.k. kl. 14 á sama stað. Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik. ÞREFAT T TIL FTÓRFAT T FÉí HÖNDUM EFTIR UMSAMINN SPARNAÐ / Útvegsbankanum býöst þér nú aö semja um lán sem þrefaldar handbært fé þitt, jafnvel fjórfaldar þaö. Þú safnar einhverri umsaminni upphæö inn á viöskiptareikning á umsömdum tíma og bankinn bætir láni viö hana til útborgunar aö söfnunartíma liönum, auk þeirra vaxta sem þú hefur áunniö þér. Þessi nýi lánaflokkurheitir Þlúslán, því lániö bætist viö þaö fésem þú safnaöir. Unnt eraö semja um Þlúslán á öllum afgreiöslustööum bankans. Jafnframt liggja þar frammi bæklingar sem veita nánari upplýsingar. Öllum er frjálst aö opna Þlúslánareikning hvort sem þeir hafa skipt viö Útvegsbankann hingaö til eöa ekki og Þlúslán hafa engin áhrifá aöra fyrirgreiöslu sem lántaki kann aö njóta íbankanum. Erekki Útvegsbankinn einmitt bankinn fyrirþig? ÚTVEGSBANKANS RJ SAFNAR OG BANKINN BÆTIR VIÐ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.