Tíminn - 28.03.1982, Page 6

Tíminn - 28.03.1982, Page 6
SH€Í i .85 mti&ár&' ~ ~f^f8OTÍ$Í- . Sunnudagur 28. mars 1982 fólk í listum „Við lesum ennþá gler augnalaust9 9 * * — Spjallað við Árna Reynisson, framkvæmdastjóra Operunnar ■ Fyrir þvi sem næst tveimur og hálfum mánuöi hóf tslenska óper- an sýningar með pompi og prakt. bá voru stór orö i hávegum höfð: viö hringdum i Árna Reynisson, framkvæmdastjóra Öperunnar, til að kanna hljóöið i þeim Öperu- mönnum nú. „Þú átt við hernig okkur liði til likama og sálar”, ansaði Arni, „einsog spurt er á stórafmælum. Hvort við séum vel ern og lesum gleraugnalaust. Ja, við erum eins bjartsýn og jafnan áður. Það eru komnar 35 sýningar og hefur alltaf verið uppselt — 35 sinnum 500, sem er sætafjöldinn, gerir hátt i tuttugu þúsund áhorfendur, svo við þykjumst sjá að Öperan hefur fengið hljómgrunn. Fólk vill hafa Óperuna til viðbótar öðr- um skemmtunum af svipuðu tagi. Og aðsóknin er sist að dvina.” — Gæti það stafað af nýjabrum- inu, eða heldurðu að þetta sýni raunverulegan óperuáhuga fólks? „Auðvitað er þetta i og með nýjabrum. Við gerum okkur alveg grein fyrir þvi aö hingaö hefur komið fólk sem annars hefði fussað og sveiað ef minnst væri á óperu. Ég held að þaö hafi hjálpaðmörgum þeirra, sem ekki voru óperuunnendur fyrir, að við fórum af stað með létt og skemmtilegt verk — ef fólkinu likar það vonum við að það komi siðarað sjá verk r.em eru harðari undir tönn. Tragidiur. Svo eru þaö auðvitað þegar reynt að þegar Þjóðleikhúsið hefur sett upp óperur á borð við Rigoletto eða La Bohéme þá hafa viðtökurnar orðið mjög góðar og sýningafjöldi skipt tugum. Og af hverju skyldi ekki fara eins hér i Gamla biói?” — Nú er auðvitað ekki vitað hversu lengi Sigaunabaróninn muni ganga, en eruð þið farin að hugleiða næsta verk? „Já, það er mikiö hugleitt, og ekki bara næstu verk, heldur lengra fram i timann. Ég vil hins vegar ekkert segja um hvert næsta gæti orðið, en við stefnum að þvi að setja það upp ekki seinna en næsta haust. Og höfum enn ekki visað frá okkur þeim möguleika að sýna i vor.” Sambúðin við Bó Derek — Þið hafið byrjað bió-sýningar samhliða óperunni. Hvernig hefur sambúðin við Bó Derek gengið? „Okkur hefur þótt mjög vænt um að hafa Bó Derek hér til að létta okkur lifið milli sýninga, og ég tel að það sé mikil framtið i að hafa bió-sýningar hér ásamt Óperunni. Þetta er ágætur fjár- öflunarpóstur, en við höfum ekk- ert dregið undan með það að það er erfitt að fá þessar sýningar til að bera sig. Húsið tekur ekki nema 500 manns og niðurgreiðsl- ur eru sáralitlar, andstætt þvi sem tiðkast af hálfu hins opinbera i leikhúsunum, svo hver gestur borgar að heita má fullt verð fyrir miðann sinn. Við höfum fengið dálitinn styrk frá rikinu, en það er sáralitið á viö það sem systur- stofnanir okkar fá. Og það er dýrt að setja upp óperusýningar.” — Hafið þið rætt við fulltrúa rikisins um aukna styrkveitingu? „Nei, þú mátt ekki skilja mig svo að viö séum að búa okkur undir að leita á náðir rikisins. Fremur hið gagnstæða. Við vilj- ■ Arni Reynisson: „Fólk vill hafa Óperuna til viöbótar öðrum skemmtunum af svipuöu tagi...” um kanna til þrautar hvort við getum lifað eigin lifi án opinberra styrkja. bá kemur til skjalanna styrktarfélagið sem við höfum stofnað og ýmsar aðrar fjáröfl- unarleiðir sem við erum að athuga, þar á meðal bió-sýn- ingarnar.” — Já, hvernig hefur söfnun styrktarfélaga gengið? „Mjög vel. Það er hátt á annað þúsund manns sem hafa gengið i félagið og leggja þvi fram fasta fjárhæð árlega, en svo erum við sem sagt að kanna hvað við get- um gert meira. Við höfum tvær leiðir, önnur er að leita til hins opinberá, hin að reyna að halda þessu gangandi sjálf. bað er sú leið sem við helst viljum fara en þó vanmetum við alls ekki þá hjálp sem við höfum þegar fengið frá ríkinu. Við fáum smádúsu frá þvi eins og ég sagði áðan og höf- um þar að auki notið ágætrar fyrirgreiðslu hjá ýmsum opinber- um stofnunum sem hafa létt okkur lifið. Þetta þykir okkur vænt um. En við fórum af stað með sjálfstætt leikhús og viljum reyna til þrautar hvort við getum haldið þvi úti sjálf.” — Þannig að þið lesið ennþá gleraugnalaust? „Jájá, við erum vel ern. Það hefurengin sú skelfing iient okkur sem gæti dregið úr okkur kjark- inn.” —ij. Rokk í Reykjavík frnmsýnd um páska ■ Um páska þykir kvikmynda- húsum við hæfi að tjalda þvi sem til er, það er ánægjulegt aö ein þeirra mynda sem verður frum- sýnd á upprisuhátiö frelsarans i ár er islensk og nýstárleg sem slik. Hér er auðvitaö um aö ræða mynd Friðriks Þórs Friðriksson- ar, Rokk i Reykjavik, heimildar- mynd. Myndin er nú á lokastigi, að þvi er segir i frétt hjá Hugrenningi, fyrirtæki þvi sem framleiöir myndina um rokkið, en eigendur þess eru auk Friðriks þeir Ari Kristinsson, Jón Karl Helgason og Þorgeir Gunnarsson. Mynda- taka stóö yfir i fjóra mánuöi og lögðu tólf kvikmyndatökumenn hönd á plóginn, bæði innlendir og erlendir. Þá sáu sjö menn um klippingu, fimm Islendingar, einn Englendingur og einn Banda- rikjamaöur. A fjöldi þessi bæöi aö tryggja gæöi klippingar og ekki siður fjölbreytni. baö segir sig sjálft að i mynd eins og þessari skipta hljómgæöi ekki minnstu máli og hefur enda mjög veriö til upptöku vandað. Rokk i Reykjavik veröur til dæmis fyrsta islenska myndin i Dolby-stereó. Upptökur fóru fram á 30 stööum viðs vegar á Reykja- vfkursvæöinu en það var stúdió Þursaflokksins sem hafði umsjón meö upptökunni. Hljóöblöndun er i höndum Alan Snelling hjá Anvil I Abbey Road Studios i London, en þess íná geta aö sömu aöilar sáu um hljóðið i svo frægum myndum sem Star Wars, The Empire Strikes Back og Flash Gordon. Þóttu hljómgæði þeirra mynda mjög góð svo hugrenningur er þarna á grænni grein, má ætla. Tónlistin gefin út á plötum Myndin byggist upp á filmum af hljómsveitum á tónleikum og var alls tekið upp 24ra tima efni, sem hefur verið klippt niöur i tvo tima. Hljómsveitirnar sem koma fram eru Baraflokkurinn, Start, Grýlurnar, Egó, Þursaflokkur- inn, Friðryk, Q4U, Þeyr, Tappi Tikarrass, Bodies, Mogo Homo, Bruni BB, Spilafifl, Sjálfsfróun, Vonbrigöi, Jonee Joness, Purrkur Pilnik, Fræbbblarnir o.fl. Ákveðið hefur verið að gefa út tvöfalda hljómplötu meö tónlist úr myndinni, upprunalegri sem kölluö er, og verður þar að finna flestöll lögin úr kvikmyndinni, að viðbættum nokkrum fleirum. Má nefna að hljómsveitunum bætist á plötunni liðsauki sem er Svein- björn Beinteinsson, allsherjar- goði og rimnaskáld. I fyrrnefndri frétt frá Hugrenn- ingi þessum segir aö búast megi viö að plötur þessar verði góður þverskurður af rokktónlist á Is- landi nú um stundir og gætu þvi orðið merkur safngripur er fram liða stundir. Hugrenningur gefur plöturnar út. Rokkunnendur geta fariö að hlakka til, og aukinheldur veröur án efa athyglisvert að sjá þessa fyrstu heimildarmynd i fullri lengd. -i]- ■ Q4U er meöal margra hljómsveita sem koma fram i kvikmynd Friöriks Þórs um rokkiö I borginni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.