Tíminn - 28.03.1982, Blaðsíða 15

Tíminn - 28.03.1982, Blaðsíða 15
Sunnudagur 28. mars 1982 15 heldur frá öörum eftirminnileg- um viðburði á ferlinum, frétt sem aldrei varð frétt. Frétt sem þögguð var niður — með sam- þykki allra. Ég man ekki einu sinni árið lengur. En þetta var fagur vor- dagur og það var boðaöur blaða- mannafundur i ráðherrabústaðn- um. Tilefni hans var að nú átti að sæma hinn mikla meistara is- lenskrar málaralistar, Jóhannes Kjarval, Fálkaoröunni. Gott ef tilstandiö var ekki allt út af ein- hverjum tímamótum i ævi hans. Asgeir forseti Asgeirsson hlýtur að hafa verið fjarstaddur, þvi að ég man að Bjarni Benediktsson þáverandi forsætisráðherra var þarna staddur sem fulltrúi hand- hafa forsetavalds og einnig Gylfi Þ. Gislason, þáverandi mennta- málaráðherra. Meistarinn lét eitthvað biða eft- ir sér, svo að byrjað var aö dreypa á einhverjum veigum á kostnað lýðveldisins. Kjarval kom þó seint og um siðir með töluverðum fyrirgangi og á eftir honum vinur hans Sigurður Bene- diktsson, uppboöshaldari, afar áhyggjufullur. Seremónian hófst þó aldrei. Kjarval sveif fljótlega á þá ráðherrana og gerði uppreisn. Hann lýsti þvi yfir i töluverðri geðshræringu að þeir væru að reyna að eyðileggja hann með þvi að veita honum orðuna. ,,Þið eyðilögðuð Gunnar Gunnarsson, sem hefur ekkert skrifað eftir að hann fékk orðuna og þið eruð að eyðileggja Laxness”, hrópaði meistarinn með sinni mikilfeng- legu raust. Og honum varð ekki snúið. Ég hef aldrei séð jafn kindar- lega ráðherra og þá Bjarna og Gylfa meðan á þrumuræðu Kjar- vals stóð. Athöfnin var auðvitað runnin út í sandinn og i þann mund sem við blaðamennirnir vorum að læðast út, komu þeir Bjarni og Gylfi og Bjarni sagði: „Við skulum bara gleyma þessu, strákar”. Og það stóð. Samsæri þagnarinnar var algjört. Fáeinum dögum siðar barst fréttatilkynning frá orðuritara um að Jóhannesi Kjarval hefði verið veitt orðan góða. Að þessu sinni hafði athöfnin greinilega farið fram i kyrrþey. Uppreisn þessa bóhems allra tima hafði verið bæld niður. Og ég á minn þátt i þvi. Sæmundur Guðvinsson: Lausa fregn sem varð að fimmdálk ■ Það er úr vöndu að ráða þegar ritja á upp þá eftirminnilegustu frétt sem ég hefi skrifað. Sem blaðamaður hefi ég auðvitað þurft að skrifa um mörg mál á degi hverjum árum saman og það er vonlaust að geyma allt i minnisbankanum. Tilurð „skúbb- frétta” (það er að ná fréttinni fyrstur) er lika oft með þeim hætti að ekki má segja frá þvi. Það verður að virða trúnað viö heimildarmenn. Upprifjun á sumum stórfréttum sem ég hefi komið nálægt geta lika orðið til að ýfa gömul sár einhverra einstakl- inga er komu við sögu og þvi best að láta kyrrt liggja. En eitthvað má nú nefna, enda er hann Illugi minn Jökulsson ótrúlega ýtinn á sinn hógværa hátt þegar hann vill ná einhverju út úr fólki. Fyrir nokkrum árum barst okkur á Visi lausafregn um að yfirvöld hér væru eitthvað að snudda utan i hugsanlegum bankainnistæðum tslendinga er- lendis. Ég var settur i að kanna málið. Mig minnir að það hafi verið uppúr klukkan niu um morgun- inn, i miðri viku og ekkert að ger- ast, sem ég lyfti simtólinu og sló á til skattrannsóknarstjóra. Spurði hvort nokkuð væri tiðinda. Garð- ar Valdimarsson skattrann- sóknarstjóri er maður orðvar og kvaðst ekki vita til þess. Ég spurði hvort verið væri að gera rassiu varðandi bankainnistæður tslendinga vitt og breitt um heim- inn. Garðar neitaði þvi eindregið. Ekki vildi hann heldur kannast við að rannsókn þessa eðlis færi fram á öllum Norðurlöndum að beiðni yfirvalda hér. Þegar hér var komið sögu þótti mér horfur hafa daprast. Allar likur á að þetta væri enn ein kjaftasagan. Best að halda áfram að skjóta út i loftiö smástund: — En er það rétt, að dönskum bönkum hafi veriö skrifað og þeir beðnir að gefa upp innistæður Is- lendinga? — Nei, það er ekki rétt — ekki bönkum? Biðiði við. Þarna býr eitthvaðundir. Hvað á hann við — ekki bönkum. Ætli þeir hafi skrif- að sparisjóðum? Eða bara einum banka? — Er það biara eian banki sem hefur gefið ykkur upplýsingar? Mér er sagt að þeir séu fleiri. (Þetta siðasta var nú tilbúningur) — Ja, sjáðu til. Við höfum bara fengið upplýsingar um innistæður tslendinga i einum banka núna... Ég lyftist i sætinu. Þetta var þá mál, sennilega stórmál, sjens aö redda fimmdálki á forsiðuna i dag. Og áfram var Garðar spurð- ur og loksins toguðust megin- atriðin uppúr honum. Tæplega 30 bankareikningar Islendinga i Finansbanken danska höfðu verið afhjúpaðir, peningarnir sviknir undan skatti, upphæðir mismun- andi háar, heildarupphæðin lá fyrir. Nei, engin nöfn, kemur ekki til mála. Svona nú færðu ekki meiri upplýsingar frá mér. Nei, meira get ég ekki sagt, nei, ja, jú sumir hafa átt þessa peninga lengi, nei, ekki meira nei, nei.... Allt i þessu fina. öll megin- atriðin lágu ljós fyrir, en nú reið á að skrifa þetta i hvelli svo blaðið kæmi út á réttum tima. Þetta gekk upp og eftir að hafa skilað fréttinni gafst mér loksins tóm til að njóta þeirrar tilfinningar að hafa krækt i alvörufrétt sem vekti þjóðarathygli og við vorum fyrst- ir með hana. Það er óþarfi að rekja þetta mál frekar. Visir sló fréttinni vel upp og aðrir fjölmiðlar tóku siðan málið upp lika. Finansbankamál- iðvar helsta umræðuefni almenn- ings. En það er þó rétt að skjóta þvi inn, að hér reyndist ekki vera neitt stórsvindl á ferðinni, enda skipta þeir við svissneska banka sem þurfa að fela eitthvað um- talsvert, eins og allir vita. Nú svo er mér það ógleyman- legt þegar Mogginn tók siðdegis- pressuna i bælinu með þvi að birta frétt á þriðjudagsmorgni um handtöku nokkurra Islend- inga i Kaupmannahöfn á laugar- deginum áður, fyrir kókain- smygl. Visisliðið æröist. Morgun- vél Flugleiða til Kaupmanna- hafnar farin. Svo fréttist að Mogginn væri ekki búinn að senda mann. Nú varð aðleita allra ráða. Um miðnætti var ég kominn um borð i sænska SAS vél sem hafði millilent i Keflavik þar sem ólendandi var á Grænlandi. Far- þegarnir urðu eftir i Keflavik. Is- lensk vél átti að reyna að fljúga þeim daginn eftir. Ég var eini farþeginn i þotunni út og hló hug- ur i brjósti. Þarna næði ég for- skoti á hina sem kæmu meðFlug- leiðum daginn eftir... Nei annars. Það er best að láta þetta nægja þvi annars væri erfitt að stoppa þegar minningarnar halda áfram að streyma upp. En það er nú svo, að sumar fréttir af slysförum liða manni seint úr minni. Við vinnslu slikra frétta koma oft i ljós átakanleg atvik i kringum slysin sem aldrei er hægt að segja frá. En það er erfitt að gleyma þeim. hJ/LJ' 2^ BEINN I BAKI - BELTIÐ SPENNT ||UMFERÐAR Borgarspítalinn Staða hjúkrunarfræðings við göngudeild lyflækningadeildar er laus nú þegar. Vinnutimi kl. 8.30-12.30 virka daga. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra simi 81200 (207 — 201 — 360). Reykjavik, 26. mars 1982. Borgarspitalinn Fullkomnasta heydreifikerfið völ er á í dag Dreifir í hvern krók og kima i hlöðunni, án þess að mannshöndin komi þar nærri. Tvær gerðir fáanlegar, með eða án electronic. Bændur athugið! Nú er síðasti möguleiki að panta heydreifikerfi fyrir sumarið. Verðið er einstaklega hagstætt Hafið samband við söiumenn okkar sem s gefa allar nánari upp- lýsingar. G/obuse LAGMÚLA 5 - SlMI 81555 - REYKJAVIK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.