Tíminn - 28.03.1982, Page 24
■* «-*.
iS9,r ’icm ,8S mgBbuntius
. „ . - ^ - « - *• — tr-'*■'-
24
Sunnudagur 28. mars 1982
nútrminn
LESTER BOWIE
DON MOYE
ROSCOE MITCHEL.L
MALACHI FAVORS
JOSEPH JARMAN
ART ENSEMBLE
OF CHICAGO
■ Hingaö til lands er væntanleg
á vegum Jazzvakningar hljóm-
sveitin Art Ensemble of Chicago.
Hún mun leika á einum tónleikum
i Broadway mánudaginn 5. april.
Tónleikar þessir eru hinir viða-
mestu sem Jazzvakning hefur
haldiö.
T ónlistarhr æringar
í Chicago
Art Ensemble of Chicago er
stofnaö haustiö 1968 i Chicago upp
úr miklum tónlistarhræringum.
Aöal upphafsmaöur þessarra
hræringa var pianóleikarinn Mu-
hal Richard Abrams.Hann stofn-
aöi big bandiö Experimental
Band 1961 og upp úr þvi voru
samtökin Association for the Ad-
vancement of Creative Musicians
(AACM)n stofnuö 1965. Þessi
samtök höföu þau meginmarkmiö
aö efla alla svarta tónlistarsköp-
un jafnt sem aöra svarta listsköp-
un og koma af staö umræðum um
þróun jazztónlistar. 1 þessi sam-
tök gengu flestir af fremstu jazz
tónlistarmönnum Chicago s.s.
trompetleikarinn Lester Bowie,
saxafónleikarinn Roscoe
Mitchell, saxafónleikarinn
Joseph Jarmanog bassaleikarinn
Malachi Favors Maghostus, en
þeir stofnuöu Art Ensemble eins
og fyrr segir 1968. Lester Bowie
fæddist i Maryland 1941 og hóf
hljóöfæraleik 5 ára. Fyrir daga
Art Ensemble lék hann víöa og
t.d. meö blúsleikurunum Little
Milton og Albert King. Roscoe
Mitchellfæddist i Chicago 1940. 1
upphafi nam hann klarinettleik i
gagnfræðaskóla, en skipti siöar
yfir á saxafón. Hann leikur nán-
ast á öll blásturshljóöfæri og hef-
ur á siðustu árum vakiö athygli
sem tónskáld. Likt og Mitchell
leikur Joseph Jarman á öll
blásturshljóöfæri, en lætur ekki
þar viö sitja, þvi hann hefur einn-
ig skrifaö og gefiö út ljóö. Hann er
fæddur i Arkansas 1937, en fluttist
ungur til Chicago og hóf nám i
trommuleik. Þegar hann var i
herþjónustu skipti hann hins veg-
ar yfir I blásturshljóöfæri. Hann
hefur leikiö með ýmsum tón-
listarmönnum t.d. John Cage.
Malachi Favors. Maghostus er
fæddur I Chicago 1937. Hann hóf
að leika á bassa eftir aö hafa lokið
gagnfræöaskóla. Hann lék meö
ýmsum tónlistarmönnum t.d.
Andrew Hill áöur en hann gekk i
Experimental Band og siöar Art
Ensemble.
Leikhúsverk
Fyrstu ár hljómsveitarinnar
voru engin velmegunarár, hins
vegar tókst þeim aö þróa og
skapa sinn sérstæöa tónlistarstil
undir yfirskriftinni: „Great
Black Music — Ancient to the Fu-
ture.” Eins og nafnið bendir til
lögöu þeir mikiö upp úr uppruna
sinum og leituðu mikiö i gnægtar-
brunn afriskrar tónlistar. Jafn-
framt urðu tónleikar þeirra
meira leikhúsverk heldur en
hljómleikar. Ekki var hægt aö
setja neitt ákveöiö nafn á tónlist
þeirra og reyndar boöuöu þeir oft
dauða jazztónlistar eins og hún
var þá þekkt. Reyndar ægöi i
henni saman nær öllum tegund-
um svartrar tónlistar.
Til Frakklands
og heim
1969 fór hljómsveitin til Paris-
ar. I Frakklandi hefur alltaf verið
mikill áhugi fyrir bandarlskri
jazztónlist og þar náöi Art En-
semblemiklu meiri vinsældum en
það hafði náö I heimalandi sinu.
Eftir tveggja ára dvöl (1969-71)
I Frakklandi snéri hljómsveitin
aftur til Bandarikjanna sem
kvintett. Nýi meölimurinn var
trommuleikarinn Don Moye.
Hann er fæddur i Rochester 1946.
Hann hélt til Evrópu 1968 og lék i
Sviss, italiu, Júgóslaviu og
Skandinavtu þar til hann hitti
meðlimi Art Ensemblei Paris og
ákvaö aö ganga i hljómsveitina.
Tækifæri til hljómleikahalds
heimafyrir voru sem fyrr fá, en
er liða tók á áratuginn fór al-
menningur og gagnrýnendur að
veita hljómsveitinni athygli. Er
nú svo komiö aö Art Ensemble of
Chicago nytur ótvíræðrar
virðingar gagnrýnenda og
óhemju vinsælda tónlistaráhuga-
fólks.
Hingað til lands kemur Art En-
semble of Chicagofrá Evrópu eft-
ir 45 daga hljómleikaferöalag, en
meö hljómsveitinni kemur aö-
stoöarfólk og hljóöfæri sem vega
eitt og hálft tonn. Segja má að
hljómsveitin standi á hápunkti
frægöar sinnar og getu, þvi
undanfarin tvö ár hafa gagnrýn-
endur jazztimaritsins Downbeat
kosiö hana hljómsveit ársins.
vika.
Logic System:
Logic
EMI/Fálkinn
■ Logic System er japönsk
hljómsveit. Hún er hugmynd
Hideki Matsutake en hann sér
um tölvur fyrir Yellow Magic
Orchestra. Hann sá um upp-
tökustjórn útsetningar og
samdi texta. Tóniistin, sem
samin er af Roy nokkrum
Kawakami er tölvutónlist i
anda Kraftvcrk og leikin á
tölvur og hljóögerfla
(synthesizers) að mestu leyti.
Hún er mjög lifvana kerfis-
bundin og án tilfinninga á köfl-
um ekki einusinni melódisk.
Svo mikil er tölvuvinnslan aö 6
af 9 lögum plötunnar eru ná-
kvæmlega 4 minútur og 15
sekúndur á lengd.
Bestu lög: Unit, Clash
(Chinjyu of Sun). Domino
Dance.
vika
Beint í mark 1 og 2
Steinar h/f:
■ Erlendis hefur þaö lengi
tiökast aö gefa út safnplötur
og hafa mörg útgáfufyrirtæki
sérhæft sig i sliku s.s. Pick-
wickog K-Tel.Hér á landi hef-
ur hinsvegar litiö veriö gert af
þessu þar til nú siöustu ár. Um
ágæti slikra platna eru skiptar
skoöanir. Telja margir aö þær
séu algjört drasl, sem ein-
göngu sé gefiö út til þess aö
græöa peninga. Rétt er aö
safnpiötur njóta mikilla vin-
sælda hjá almenningi og stór
hluti kaupenda sáfnplatna
kaupir eingöngu slikar plötur.
Þykir mér þaö nægileg ástæða
til þess að þær séu gefnar út.
Vegna vinsælda safnplatna
hafa þær mikil áhrif I þá átt aö
móta tónlistarsmekk almenn-
ings. Meö þvi aö t.d. setja eitt
og eitt nýbylgjulag inn á safn-
plötu meö ,,skallapopp”tónlist
er hægt aö ná til fólks sem
aldrei dytti til hugar aö kaupa
nýbylgju tónlist: Safnplötur
eru þvi aö minu áliti nauösyn-
legar og sjálfsagaöar.
Steinar hf. sendu nýlega frá
sér tvær safnplötur, Beint i
Mark 1 og 2. Verðinu er mjög
stillt i hóf og þarf aðeins aö
kaupa aöra plötuna til þess aö
fá hina i kaupbæti. Lagaval
platnanna er óiikt og höfðar
þvi til tveggja hópa ef svo má
segja. Plata 1 inniheldur lög
meö Alvin Stardust, Match-
box, Tenpole Tudor, Leo Sayer
og Jóhanni Helgasyni svo ein-
hverjir séu nefndir. Plata 2
inniheldur hins vegar lög meö
t.d. Madness, Bubba
Morthens, Human League,
Ultravox og O.M.D. Semsagt
sæmilegustu safnplötur á lágu
veröi.
vika
Depeche Mode:
Speak & Spell.
Mute Records/Spor.
■ Þetta er fyrsta plata
hljómsveitarinnar Depechc
Mode en hún var stofnuð af
þeim Vince Clarke, Andrew
John Fletcher, Martin Lee
Gore sem allir leika á hljóm-
borð, og söngvaranum David
Gahan. Vince Clarke var aðal-
lagasmiöurinn en hann hætti
nýveriö i hljómsveitinni aö
sögn vegna þess aö frægöin
væri honum á móti skapi. 1
hans staö kom i hljómsveitina
Alan Wilder. Slöasta ár gáfu
þeir út smáskifuna Dreaming
of Me sem vakti strax verö-
skuldaöa athygli. 1 kjölfariö
fylgdu tvær smáskifur New
Lifcog JustCan’tGet Enough
sem nábu ofarlega á enska
vinsældalistann. 1 nóvember
siöastliönum kom siöan út
þessi breiöskifa Speak & Spell.
Hún náöi strax miklum vin-
sældum og fékk mikib lof frá
gagnrýnendum. Eins kusu
nokkur af bresku tónlistar-
blöðunum hljómsveitina
„björtustu vonina 1982”.
Tónlist Depeche Mode er
mjög poppuð „nýróman-
tisk-(hljóögerfla-synthesiz-
er)tónlist. Sumir kalla þetta
sjálfsagt diskó. Þaö sem þeir
hafa umfram margar svipaö-
ar hljómsveitir s.s. Human
League, er léttleikinn og ein-
faldleikinn. Þetta eru létt
danslög sem höfða fyrst og
fremst til fótanna.
Bcstu lög:
Photographic,
Just Can’t Get Enough,
New Life,
Boys Say Go!
vika.
Tvær nýjar íslenskar smáskífur
Valli og Víkingarnir
eru úti alla núttina
■ Plata Valla og Vikinganna er
nú loksins komin út. Mikil leynd
hefur hvilt yfir þessari plötu og
hljómsveitinni. Sagt er aö viking-
arnir sjálfir viti ekki einusinni
hverjir séu i hljómsveitinni. Gróa
á Leiti tjáöi mér aö Start hafi
sést i námunda viö Hljóðrita um
þaö leyti sem platan var tekin upp
og eins aö Þorgeir Ástvaldsson
væri loksins kominn i friiö. Ég sel
þaö ekki dýrara en ég keypti þaö.
Lög Valla og Vikinganna, Úti alla
nóttinaog Til i allteru bæöi létt og
hress rokklög sem sjálfsagt eiga
eftir aö hljóma oft i framtiöinni.
Spilafíflin voru
inni allan
júnímánuð
n Fyrsta smáskifa Spilafifla leit
dagsins ljós fyrir skömmu. Hún
heitir 3.-30. júnien á þvi timabili
voru lögin tekin upp. Þrátt fyrir
þaö aö þetta séu gamlar upptökur
er alls ekki fariö aö slá i tónlist-
ina. Lagiö á hliö 1 heitir Playing
Fool og minnir mann svolitiö á
tónlist Killing Jokeer ekki verra
fyrir þaö. Lagiö á hliö 2 heitir Sæll
og er undir miklum áhrifum frá
David Byrne. Þessi fyrsta smá-
skifa Spilafifla sýnir vel viö
hverju má búast úr þessari átt i
framtiöinni og er óhætt aö biöa
meö tilhlökkun eftir næstu plötu
þeirra, sem væntanleg er með
vorinu og kriunni.
Meira um spilafifl siöar. vika
■ * im ■ -'
5PILRFÍFL
*—zd i__i —i f