Tíminn - 25.04.1982, Qupperneq 14

Tíminn - 25.04.1982, Qupperneq 14
Sunnudagur 25. apríl 1982 Svahflí-sjoppan og drykkjutæknarnir ■ Fyrir áhugamenn um bjdr, kynþáttamál, spilakassa, skó- hælagerð, skipulagningu ibiiöa- hverfa, verslun og viöskipti er þetta bull: Ég bý á Amager I Kaupmannahöfn, I blokk sem stendur i miöri þyrpingu 16 annarra blokka, þetta er svona hverfi i hverfinu, nýjar blokkir og kósi. En engin sjoppa. Hér gegna sjoppur ekki sama uppeldishlut- verki og i Reykjavik meö lakkris- rörum og pikuskrækjum. Ég vann einu sinni meö manni sem leit Ut einsog Alfred Neuman (sem er altmuligmaður hjá hinu virta bandariska timariti MAD), maöur þessi sem viö skulum nefna Alfred var uppgjafa sjoppukaupmaöur af Nörrebro og hann sagöi mér aö þaö borgaöi sig ekki aö reka sjoppur nema meö þvi aö selja bjdr á kvöldin. A bjór- sölunni mætti stórhagnast, en þvi miöur væri hiin bönnuö. Sjoppu- kaupmenn sem seldu bjdr á kvöldin lifðu i stanslausum ótta viö lögregluna, eitt kvöldiö haföi hún bariö aö dyrum hjá Alla sjálfum og þaö þýddi bæbæ sjoppa, bæbæ heppiness, helló akranes fyrir kappann. Hérna i hverfinu hafa yfirleitt verið einhver ráð með að komast yfir ölflösku á viðráðanlegu verði eftir að skyggja tekur og um þessar mundir nýtur mestra vinsælda i þeim efnum „Svahilisjoppan”, kennd við eigendurna sem eru þriðja heims. Það var mikið ævintýri að koma i Svahilisjoppuna, sér- staklega fyrst eftir að hún opnaði. Maöur tritlaði út úr blokkaþyrpingunni, sem er upp- lýst og fögur, siöan eftir gang- stigum útvaöandi i hundasklt, drasli og einstaka fyllibyttum á bekkjum, gegnum dimmt skuggasund og þá var komiö i niöurnidda verslunar- og kráar- götu sem Holmbladsgade nefnist. 1 litlum glugga var hripað Kiosk á pappaspjald. Maöurgekk aö hurö viö hliö gluggans, bretti upp kraganná fallhlifafrakkanum, lét hattinn slúta og öruggast var að setja upp dökk gleraugu áöuren haldiö var inn. Innandyra sátu nokkrir þung- búnir skeggjaöir karlmenn meö túrbana á hausnum og talnabönd milli fingranna, einsog á rikis- ráösfundi I persiu, nema i staö myndanna af Khomeini voru td- baksvörui; sælgæti og timarit I bakgrunninum. Þessir brúnaþungu dimmrödduðu menn þögnuöu þegar viöskiftavinurinn birtist og maöur fann á sér hvila 8—12 tortryggin augu. Svo byrjaöi gamaniö. Enginn persanna kunni dönsku, þekkti vörutegundirnar, var almennilega klár á veröinu, þeir kunnu ekki einu sinni á pen- ingakassann, samt vildu þeir allt fyrir mann gera, auövitaö, þeir ætluöu aö græöa á þessu. Þaö var bitiö i peninga, velt vöngum, beðist fyrir og peningakassinn var flæktur svo i talnarunum aö honum lá viö yfirliöi, og eftir hálf- tima kabarett var fariö innfyrir og ræstur tiuára gamall svahili- drengur sem kunni dönsku. Sá kom Urillur fram með litinn túr- bana á husnum, gleraugu einsog hank marvin og kassettutæki sem glumdi einhverju sem liktist tyrkneskum þjóölögum, ef þiö vitiö hvaö ég er aö fara. Þarmeö gátu viöskiftin hafist, drengurinn afgreiddi umbeönar sigarettur og súkkulaöikex, aö þvi loknu hallaöi maöur sér fram á boröiö og muldraöi tvo bjóra. Þá upp- hófst enn meira samsærishvisl, og tortryggnin sveif einsog slæða á miöilsfundi um loftiö, aö lokum hvarf einn ajatollinn bakviö og kom svo fram meö bjórana I dökkum plastpoka, maöur borg- aöi kontant og laumaöi sér svo Ut i náttmyrkriö meö vöruna undir frakkanum. 1 venjulegum versl- unum á daginn kostar bjórinn tæpar fjórar krónur stykkið. A krám kostar hann 9—12 krónur á kvöldin, en Svahili'mennirnir selja hanná 4.50 þannig aö hér er augljóslega mikil þjóöþrifastarf- semi á feröinni. Svahilisjoppan blómstrar Yfirleitt eiga þessi ólöglegu viöskifti sér skamma sögu, maöur er ekki fyrr búinn að frétta af kinagrilii eöa sjoppuræksni sem verslar meö bjór á kvöldin, en löggan gerir rassi'u i hverfinu og upprætir glæpastarfsemina. Alfred Neuman hélt þvi fram aö þeim væri nær þessum djöflum aö kveöa niöur eiturlyfjasöluna sem blómgaöist fyrir opnum tjöldum viöa um bæ almennilegu fólki til ama og hrellingar og ég man aö um þetta uröu miklar umræöur i vinnunni án þess niöurstaöa feng- ist frekar en venjulega þegar danir deila. En Svahilisjoppan blómstrar, ætli hún fari ekki aö eiga ársaf- mæli bráöum, en þaö myndi lik- lega vera met i þessari viöskifta- grein. Helstu afgreiöslumennirn- ir kunna dönsku núoröiö og eru farnir aö þekkja vörutegund- irnar, komnir meö stereosett fyr- ir tyrkjatónlistina og þeir alira vestrænustuerubúnir aö sniöa tiu neöstu sentimetrana af skegginu og farnir aö gefa túrbaninum fri. Tveir þeirra eru komnir með nafn, Soldáninn og Jaminven. Viö hliöina á sjoppunni reka Svahillmennirnir verslun sem heitir BAZAR, þaö mun vera eina kjörbúöin I Skandinaviu sem heit- ir þvi nafni, en ég hef heyrt aö einhversstaöar iþriöja heiminum gangi öll verslun og viöskifti und- ir þessu nafni. Bazarinn er merkileg búö, innandyra er hálf- gertmyrkur og agaleg saggalykt, þar eru seldar venjulegar kjör- búðarvörur. Þarna er hægt aö versla m jög ódýrt, hægt að kaupa vörur á hálfviröi. Þær hafa bara þann ókost að vera ailt of gamlar, dagstimplarnir gefa til kynna að þær ættu aö vera komnar á ösku- hauga fyrir óralöngu. En þær þurfa ekki endilega að vera eitr- aöar fyrir þaö, þarna er tildæmis hægt aö kaupa vikugömul dag- blöö á krónu stykkiö og þegar grannt er skoðað kemur i ljós að þau eru ekkert verri. Aö hafa svona kjörbiíö viö hliðiná reddar liklega aö ein- hverju leyti sjoppurekstrinum fyrir svahi'limennina, þarmeð liöst þeim aö hafa standandi bjór- lager án þess aö vera grunsam- legir. En eitt sér væri þetta liklega of gagnsætt trikk, þeir eru slóttugri en þetta. Svahilimenn- irnir hafa nefnilega lagt undir sig allt húsið meö basarnum og sjoppunni og þar búa nokkrar svahilifjölskyldur, risastórar I einhverskonar kúmmúnubúskap, meö heilan sæg af börnum (þaö eru helst viö útlendingarnir sem hlööum niöur börnum i þessu landi, dönum sjálfum fækkar, liklega vegna áhrifa frá barna- fjandskap ’68 kynslóöarinnar, en hugmyndir hennar gegnsýra hér allt). Mér varsagt aö þegar lögg- an kom aö rannsaka bjórbirgöir svahilisjoppunnar hafi þeir fund- iö lagerinn I fjölskylduisskápnum bakviö, en i' Danmörku væri aldrei hægt aö draga mann fyrir lög og dóm fyrir aö eiga bjór I isskápnum, þaö yröi réttarglæpur aldarinnar. Fátækrahverfi á danska visu Þetta hverfi i kringum Holm- bladsgade er fátækrahverfi á danska visu, húsin eru flest upp- undir aldargömul, lekir fúnir og ljótir múrsteinshjallar byggðir af iönrekendum sem leiguhúsnæöi fyrir verkalýöinn. Kakkalakka- og silfurskottuparadisir. Lasnir útikamrac-i'bakgöröum. Fúnir og hriktandi stigar. Ég kom eitt sinn i svona hús með yngstu dætur mina tvær og mér var tekinn vari viö þvi aö bera þær upp á hand- leggnum, tröppumar myndu ekki þola þungann. Litlu stelpurnar eru reyndar I nokkuö vænum holdum, en samt.... Þegar uppi Ibúðina var komiö þurfti ég aö dúöa börnin vandlega, þetta var um haust og miklu kaldara, eöa hráslagalegra inni en utandyra. Ég var I fylgd meö kunningja minum sem gengur meö gler- augu, hann varð aö taka þau niöur þegar viö komum inn, sagg- inn var svo magnaöur aö þaö sett- ist móöa á linsurnar. Eldhúsinn- réttingin var svo fúin og kvik af skordýrum aö ibúarnir sögöu aö hún færðist til um nokkra senti- metra á hverri nóttu. Kamarinn i bakgaröinum treysti ég mér ekki til aö skoöa eftir að hafa heyrt honum lýst. Kaldhæöinn nágranni sem rak inn hausinn i kartöflu- harki sagði aö þaö væri ekkert mál aö komast útá kamar, ef maöur heföi gott öldubretti, þá væri hægt aö fleyta sér á rottu- gerinu alveg uppá setu. Þaö voru koppar undir öllum rúmum, bæði nýmóöins plast- kopparog emaléraöir stálkoppar, óregluleg tæming þeirra orsakaöi að einkennislykt búðarinnar var svona ammoniaks eða salmiaks- stækja, það-lyktar-öðruvisi-lykt. Seðlarnir vaxa ekki i vösum ibúa þessa hverfis. Viö Hólm- blaðsgötu er stofnun sem Kofoed- skóli nefnist, hversvegna hún heitir skóli veit ég ekki, þvi þetta er aöalhjálparstofnunin fyrir róna og útigangsmenn i aliri Kaupmannahctfn. 1 hverfinu eru yfirleitt fullir vesalingar i hundraöatali, danskir frakka- menn, nauðalikir Reykvisku starfsbræörum sinum fyrir utan Ingólfsapótek. Líka grænlend- ingar með heimskautajökulinn á heröunum. í kúfúöskólanum fá þeir súpu aö éta, vasapeninga, næturgistingu, félagsráögjöf og hjálp með gamlar mublur og annaö smálegt ef þeir ætla aö koma sér á réttan kjöl. Nærvera þessarar stofnunar er ekki til aö hækka fasteignaveröið I nærliggj- andi götum. Heimsmeistarakeppni ikóngakapal Þarna búa semsagt 'fátæklingar. Við Hólmblaðsgötu erukrárá nokkurra metra fresti, f mjög iburðarlausar og hallæris- legar honkitonk búllur, en ákaf- lega kósi. Hver knæpa á sina föstu ’ kúnna og hún er þeirra annaö heimili,þar þekkjast allir, þegja, rifast, verða vinir og óvinir og gestgjafamir sem yfirleitt eru drykkfelld hjón stunda félags- ráögjöf viö barboröiö. Alveg Ólafur Gunnarsson, rithöfundur, hefur nú, í bili að minnsta kosti, látið af leiguskriftum fyrir Helgar-Timann: vegna anna við ritstörf að því er hann segir okkur. I staðinn er það kollegi ólafs, Einar Kára- son, sem hefur tekið að sér að skrifa fyrir okkur frá Kaupinhafn, en Einar gaf út sína fyrstu skáldsögu nú um jóiin, Þetta eru asnar Guðjón. Væntum við góðs af honum. Einar Kárason, rithöfundur, skrifar frá Kaupmannahöfn

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.