Tíminn - 25.04.1982, Síða 20
Sunnudagur 25. aprll 1982
20
erlend hringekja
.
’/y^wvv/-
■ Opinberir starfsmenn á italiu hafa nú verið teknir
inn á teppi sakir fjarveru úr starfi. Eins og oft vill
verða eru það hinir lágt settu sem verða verst úti en
stóru fiskarnir sleppa...
50% fjarvist-
ir á ftalíu
— meðal opinberra starfsmanna
■ Á Italiu hefur það
gerst að bflaumferð á
morgnana hefur aukist
svo stórlega að til vand-
ræða horfir. Ástæðan er
sú að upp komst að
starfsmaður vatnsveitu
einnar hafði leikið i marki
fótboltaliðs heimahéraðs
sins meðan hann var i
sjúkraleyfi vegna fót-
brots.
Confused? You won’t
be... Málið er einfaldlega
það, að itölsk yfirvöld
hafa hafið mikla herferð
gegn fjarvistum opin-
berra starfsmanna frá
vinnu. Og árangurinn læt-
ur ekki á sér standa. Þús-
undir opinberra starfs-
manna æða nú af stað i
vinnuna á hverjum
morgni og það hefur jafn-
vel gerst, sem fáheyrt var
áður en herferðin hófst,
að sumir mæta á réttum
tima! Það þurfti að visu
mikið til. Yfirvöld höfðu
sem sé lýst þvi yfir að
þeir sem væru frá vinnu á
fölskum forsendum yrðu
sóttir til saka og gætu átt
fangelsisdóm yfir höfði
sér.
Ýmislegt skrýtið hefur
komið upp á yfirborðið.
Starfsmaður öryggis-
eftirlits rikisins hafði
verið i sjúkrafrii i marga
mánuði en þegar að var
gáð hafði hann fengið sér
vel borgaða, en ólöglega,
vinnu sem næturvörður.
Kona nokkur sem vann á
póstinum reyndist aðeins
vera tvo tima á dag i
vinnunni, en fékk að sjálf-
sögðu borgað fyrir átta.
Svona sögur og aðrar i
þessum dúr ganga nú
þvers og kruss á íraliu.
Það er til dæmis sagt að
útvega hafi þurft fjöl-
mörg ný skrifborð i land-
búnaðarráðuneytið vegna
þess að nú mæti skyndi-
lega allir þeir sem eru á
launaskrá til vinnu i einu!
Einnig er sagt að kaffi-
húsin i grennd við hús-
næðismálastofnun rikis-
ins séu öll að fara á haus-
inn, af þvi að afgreiðsla
þar gangi nú svo fljótt
fyrir sig að viðskiptavin-
irnir þurfi ekki að biða
klukkutimum saman og
bregða sér á kaffihús út
úr leiðindum.
Það var árið 1980 sem
gerð var nákvæm rann-
sókn á fjarvistum opin-
berra starfsmanna og
niðurstöðurnar voru
svakalegar, svo ekki sé
meira sagt. Fjarvistir i
heild voru 50% en i land-
búnaðarráðuneytinu sem
fyrr var nefnt voru fjar-
vistirnar enn meiri, eða
60%! Til samanburðar
má geta þess að við Fiat-
verksmiðjurnar, sem eru
i einkaeign, eru 3.5%.
Einkafyrirtæki
rekin af vinnu-
stað!
Vegna herferðarinnar
hafa 150 opinberir starfs-
menn af öllu tagi verið
dregnir fyrir dóm og ver-
ið er að ihuga málsókn
gegn f jölmörgum læknum
fyrir að gefa út fölsuð
sjúkravottorð. Margir '
læknar á sjúkrahúsum
hins opinbera hafa einnig
starfrækt einkastofur i
vinnutima sinum.
Vinstri menn á ítaliu
hafa gagnrýnt meðhöndl-
un yfirvalda á þessu máli
en þeir segja að það séu
aðeins lágt settir opinber-
ir starfsmenn sem séu
tuskaðir til, eins og vana-
lega sleppi hinir stóru.
Hafa blöðin tekið undir
þetta og sýnt fram á að
fjöldi mjög háttsettra
opinberra starfsmanna
dundi sér við hin ólikustu
verk er þeir ættu að vera i
vinnunni. Hinir lágt settu
hafa varið sig með þvi að
laun þeirra séu svo lág að
þeir verði að hafa tvö, og
jafnvel þrjú störf til að
framfleyta fjölskyldum
sinum. Meira en helming-
ur opinberra starfs-
manna reyndist hafa
meira en eitt starf og einn
þriðji rak alls konar
einkafyrirtæki frá vinnu-
stað sinum!
Eftir þvi var tekið
þegar Vatikanið blandaði
sér i málið. 1 málgagni
klerkarikisins, L’Os-
servatore Romano, var
grein eftir guðfræðinginn
Gino Concetti þar sem
hann sagði m.a. að þeir
væru fjarri vinnu á fölsk-
um forsendum, væru með
þvi að neita að taka þátt i
áætlunum Guðs og Krists
um að bæta mannfélagið.
Ekki nema það þó!
Herferðin hefur einnig
orðið til þess að deilur
hafa aukist milli þeirra
sem búa i hinum iðn-
vædda norðurhluta Italiu
og þeirra sem búa i hin-
um fátækari suðurhelm-
ing. Oft hefur verið
grunnt á þvi góða milli
þessara hópa og nú saka
Norður-ítalir Suður-ltali
um að eiga sök á ástand-
inu, en meirihluti opin-
berra starfsmanna
kemur frá Suður-Italiu,
enda er þar fátt um aðra
vinnu.
Sannleikurinn i málinu
er þó sennilega sá, að
opinberir starfsmenn séu
alltof margir á Italiu.
Einn þriðji alls vinnuafls i
þjónustu og i alla vega
viðskiptagreinum eru
opinberir starfsmenn
sem er mun hærra hlut-
fall en i öðrum rikjum
Evrópu.
(AFP—ijsneri.)
■ Á mánudagsmorgnum
leggst kyrrð yfir stjórn-
arskrifstofur
vestur-þýskra i Bonn. Þar
sem venjulega er ys og
þys er nú þögn, háttsett-
ir embættismenn og ráð-
herrar loka að sér og
kveðast ekki svara i
sima, ákvarðanir verða
að biða, mikilvægum
skjölum er stungið út i
horn, gangarnir tæmast.
Der Spiegel var að koma
út. Þar til stjórnarherr
arnir hafa kynnt sér efni
þess nákvæmlega er ekki
unnið i Bonn.
Stundum er talað um að
blöð hafi vald. Areiðan-
lega er samt fátitt að
blöð, ellegar tlmarit, hafi
jafn mikið að segja og
Der Spiegel. A undan-
sóknarblaðamennsku.
Bild og það drasl telst (
auðvitað ekki með.
Timaritið er alls óhrætt
við að taka afstöðu i skrif-
um sinum enda sýnir sig
að Þjóðverjar kunna að
meta það. Blaðið stendur
mjög vel fjárhagslega og
er reyndar þykkasta
timarit sinnar tegundar
sem út kemur i Evrópu,
hátt i 300 siður I hverri
viku.
Der Spiegel var stofnað
árið 1947 en vakti fyrst
verulega athygli árið
1962. Þá birti blaðið
greinaflokk þar sem
starfshæfni Franz Josef
Strauss, varnarmálaráð-
herrans þáverandi, var
mjög dregin i efa. Stjórn-
völd snerust harkalega til
ÞEGAR
■ Kudolf Augstein, útgefandi. Sat fjóra mánuði i
fangelsi en hafði sitt fram að lokum. Franz Josef
Strauss varðaðsegja afsér.
SPIEGEL ÞRUM
hlustar Þýskaland
förnum mánuðum hefur
timaritið komið upp um
tvö hneykslismál i stjórn.
kerfinu og gæti annaö
þeirra haft mjög alvar-
fegar afleiðingar fyrir
stjórn Helmut Schmidts,
kanslara. The Times of
London — annaö ,,valda-
mikið” blað — sem venju-
lega tekur ekki stórt upp i
sig sagði nýlega að Der
Spiegel væri brimbrjótur
lýðræðis i Vestur-Þýska-
landi.
Spiegel, sem þýðir auð-
vitað „Spegilinn”,frétta-
timarit sem kemur út
vikulega og ekkert blað i
Þýskalandi hefur náð jafn
langt i fréttasöfnun og
-skýringum. Einna
þekktast er timaritið
fyrir gifurlega umfangs-
miklar úttektir sinar á
allskonar málum, þar er
svo sannarlega farið i
saumana og stungið á
kýlum! Þar aö auki er
Spiegel mun liflegra blað
en flest önnur blöð i þvisa
landi, það er að segja þau
sem hafa metnað i rann-
■ Fyrir 1500 árum lagöi
óþekktur þjóðflokkur upp
i hættulega siglingu yíir
Kyrrahal'ið.
Ákvörðunarstaðurinn
getur varla hafa verið
þekkturfyrirfram en eftir
mörg þúsund milna
siglingu lenti hópurinn á
eyju nokkurri sem nú er
nefnd Páskaeyja. Þar
settist flokkurinn að og
byggði upp stórmerkilega
menningu, flestir kannast
við „hausana” sem
dreifðir eru um eyjuna.
Þegar flest var er talið að
ibúar Páskaeyjar hafi
verið 10 þúsund en
skyndilega gerðist eitt-
hvað. Næstum allir
ibúarnir hurfu — að þvi er
virðist eftir grimmilega
borgarastyrjöld. Merki
um mannát eru hvar-
vetna.
Hópur visindamanna
sem rannsakað hefur
Páskaeyjuna kynnti ný-
lega niðurstöður sinar og
brjöta þær allmjög i bága
við hefðbundnar skoð-
anir. Hópurinn telur sem
Borgarastr
á Páskaeyj
sé að tveir þjóðflokkar
hafi sest að á eynni en
með löngu millibili. Fyrri
hópurinn hafi komið frá
Pólýnesiu en hinn siðari
frá Perú. Má það furðu
sæta að tveir aðgreindir
hópar skuli hafa fundiö
eynavegnaþessaðhún er
sú afskekktasta á heims-
kringlunni en visinda-
mennirnir nefna beina-
leifar og fornminjar til
stuðnings máii sinu.
Þeir halda þvi jafn-
framtfram að þegar tveir
ólikir þjóðflokkar hafi
verið sestir að á eynni,
hafi vaxið þar mikil
spenna. Eyjan er litil og
árið 1680, þegar, taliö er
að ibúar hafi verið flestir,
var mjög að þeim þrengt.
Braust þá út borgarastriö
milli flokkanna tveggja,
menning þeirra fór for-
görðum og mannát varö
daglegur viðburður til aö
sporna við hungri og
neyð. Að lokum varö,
segja visindamennirnir,
annar hópur ofan á en þá
brutust út deilur innan
hans og hnignun eyjar-
Ynnar hélt áfram. 1868
voru ibúar aðeins eitt
hundrað.
Siðan þá hefur heldur
miðað upp á við og nú eru
ibúar 1500, afkomendur
frumbyggjanna. Og ætið
eru á eynni fleiri eða
færri visindamenn að
rannsaka hina dularfullu,
auðugu fortið...
— ij endursagði.
Dánarorsök Ókunn
Dularfull dauðsföll meðal Hmong-fólksins frá Laos
■ Sagan er ætið hin
sama. Fullkomlega heil-
brigður og hraustur Asiu-
búi deyr skyndilega i
svefni. Læknar koma á
staöinn, rannsaka likið,
kryfja það, kanna lif,
mataræði, fyrri sjúk-
dóma hins látna en niður-
staða þeirra er alltaf
eins: Viö höfum ekki hug-
mynd um af hverju hann
dó.
Það er Hmong-
þjóöflokkurinn i Laos,
sem hér um ræöir, eöa
réttara sagt, sá hluti hans
sem flust hefur til Banda-
rikjanna siðustu árin
undan ofsóknum stjórn-
valda i heimalandinu
Hmongþjóðflokkurinn
lagði Bandarikjamönnum
lið i striöinu I Indókina og
fyrir það mátti hann þola
miklar hörmungar af
völdum Pathet Lao,
kommúnistasamtakanna
35 þúsund ættmenn
af þessum stolta þjóð-
flokki (en Hmong
pyðir „frjáls þjóð”) búa
nú i Bandarikjunum og
eru dreifðir um rúmlega
tiu borgir. Lifið hefur
verið erfitt, fyrst var
striðið sem rauf friðsælt
og kyrrlátt lif Hmong-
manna, siöan ofsóknir
kommúnista, hættulegur
og taugastrekkjandi flótti
til Bandarikjanna, og loks
kúltúrsjokkið eftir að
þangað er komið. Enda
þótt Hmong-menn fagni
þvi að vera komnir til
Bandarikjanna eiga þeir I
miklum erfiðleikum með
að aðlagast hinu æsandi,
tæknivædda þjóðfélagi —
hjarta þeirra er enn i
hæðunum i norðurhluta
Laos þar sem heimkynni
þeirra voru til skamms
tima. Fæstir Hmong-
manna eru menntaðir að
nokkru ráði og veitist þvi
erfitt að fá vel launuð
störf, ættbálkurinn er
sundraður og fjölmargir
hafa fallið i valinn ein-
hvers staðar á leiðinni.
Og nú eru það undarleg
dauðsföll sem skjóta
Hmong-fólkinu skelk i
bringu.
Engin skýring
fundin
36 Hmong-menn hafa
dáið óútskýranlegum
dauðdaga i svefni siðustu
fjögur árin. Flestir hinna
látnu voru karlmenn á
aldrinum 20-40 ára og
langflestir kenndu sér
einskis meins áður en
þeir lögðust til svefns og
vöknuðu ekki aftur. Það
heyrist hrygla i sumum,
þeir stynja nokkrum
sinnum, siðan eru þeir
látnir.
Sjúkdómseftirlitið i
Bandarikjunum hefur
rannsakað þetta dular-
fulla mál i þaula, en eins
og Roy Baron, einn yfir-
manna eftirlitsins, viður-
kennir, , þá höfum við
ekki komist að neinni
niðurstöðu”. Og það er
varla af þvi ekki hafi ver-
ið reynt. Likin hafa verið
krufin nákvæmlega en
dánarorsök óhjákvæmi-
lega ókunn. Hjartað nam
bara staðar, einhverra
hluta vegna. Þá hefur
' verið leitað til fortiðar-
innar.saga sér hvers sem
látist hefur á þennan hátt
könnuð gaumgæfilega,
hvaö hann lagði sér tií
munns vikurnar áður en
hann dó, hvort hann hafi
átt við hjartasjúkdóm að
striða, einhvern sjúkdóm
— ekkert. Þá var farið
lengra aftur: Getur þetta
stafaðaf eiturgasi Pathet
Lao sem verkar svona