Tíminn - 25.04.1982, Page 31
Sunnudagur 25. aprll 1982
■ Ljdsmyndin af Myru Hindley um þaö leytisem moröin voru framin. Hár hennar var þá sítt og litaö
en nú er hún stutthærö og skolhærö. Teikning er gerö eftir lýsingu þeirra sem heimsótt hafa hana ný-
lega....”
máliö aösegja: „Tvennir foreldr-
ar hafa enn i' dag enga hugmynd
hvaö kom fyrir börn þeirra. En
hún sagöi ekki neitt. Hún sýndi
enga iörun. HUn sýndi yfirleitt
engar mannlegar tilfinningar.
Ekkineitt”.
I mai 1966 var Hindley flutt i
kvennafangelsiö I Holloway og
frá fyrstu stundu var hún al-
ræmdasti fanginn þar. Orðstir
hennar magnaðist i þröngu, yfir-
spenntu samfélagi fangelsis og
hið fyrsta sem nýir fangar geröu
var aö spyrja til vegar aö klefa
hennar. Alltaf var þeim sagt var-
kárri röddu að það væri ekki gott
að hafa nokkurt samband við
hana, hún væri utangarðsmaður
og það væri ekki sæmandi að
vingast viö hana.
Siðar var Hindley flutt til
kvennafangelsis i Durham og
bæði þar og í Holloway tókst
henni þrátt fyrir allt að eignast
nokkra vini, bæði meöal fanganna
og fangavarðanna. Og þessir vin-
ir hennar kynntust allt annarri
Hindley en hinni þvermóðskufullu
og tilfinningalausu moröynju sem
lýst hafði verið við réttarhöldin.
bvert á móti kynntust þeir gáf-
aðri, tilfinningarikri og öðru
hvoru tilfinningasamri konu sem
lagði sig alla fram um að komast
að áhugamálum þeirra og sinna
þeim á alla lund. Og það sem
meira var — hún virtist ekki hafa
neitt á móti þvi að ræða
morðmálið allt saman — og tókst
jafnvelað sannfæra allmarga um
að hún væri saklaus. Sumir þess-
ara vina hennar segja svo frá að
ekki hafi verið auðvelt að vingast
við Hindley, vinátta hennar hafi
verið kröfuhörö og stundum
snennt — oft hafi hún sýnt til-
hneigingu til að breyta lifi vina
sinna, og skildi stundum viö þá i
reiðileysi, fulla efa.
„Ég hallast að þvi að
Brady hafi gert það...”
Einn af fyrstu föngunum sem
varð var viö næstum yfirþyrm-
andi aðdráttarafl Hindley var Dr.
Rachel Pinney. Hún er dálitið
sérkennileg kona, kvekari og hef-
ur helgaö lif sitt baráttu fyrir
félagslegum umbótum . Ferill
hennar er langur og litrikur og
árið 1969 var hún dæmd fyrir að
virða ekki úrskurð dómstóls um
yfirráð yfir börnum hennar. Hún
var send til Holloway og man
óvanalegaskýrteftir fyrsta fundi
sinum og Hindleys.
„Myra sat frammi á gangi og
fól höfuðið i höndum sér”, segir
Dr. Pinney. „Ég haföi komið
þangað áður en ég sat i gæslu-
varöhaldi og þá hafði ég velt fyrir
mér hvar hiín væri i fangelsinu en
ekki fengið að vita það. Hún var
sú eina sem mig langaði til að
kynnast. Ég gekk til hennar og
sagði: „Ég er vinur þinn, má ég
tala viö þig?” Myra svaraði blið-
lega: „Auðvitað máttu það”. Sið-
an sagði hún: „Ég vildi að þú
hefðir komið til min áður”, og:
„Ég ávarpa fólk aldrei að fyrra
bragöi, vegna þess að svo margir
spýta framan i mig.””
Þetta hafði djiip áhrif á Pinney
og þær ræddu saman I hálfa
klukkustund. Eftir það skrifaði
Pinney I dagbók si'na: „Þaö hefur
eitthvað gerst innra með mér —
ég veitekki hvaöþaðer, en þaðer
eitthvað merkilegt. Mér finnst ég
hafa veriö f nálægö...”.Skömmu
siöar var Pinney boðið til te-
drykkju ásamt Hindley og tveim-
ur öðrum föngum. ,jílér fannst
mér vera geröur heiöur,” segir
hún.
Hindley talaði nokkrum sinnum
við Pinney um morðmálið. HUn
kvartaði undan ruddaskap lög-
reglunnar og sagði að engin sönn-
unargögn heföu verið lögð fram
gegn henni. Er Pinney spurði
hver hefði drepið börnin kom
svarið henni mjög á óvart.
Hindley sváraði aðeins: „Ég er
farin aðhallastað þvi að Ian hafi
gert það.” Siöar lét hún Pinney
sverja að segja engum frá þess-
um orðaskiptum.
10 dögum siðar fór Pinney frá
Holloway og var þá sannfærð um
að Myra Hindley væri enn eitt
fórnarlamb i þjóðfélaginu Hún
kannaði málið gaumgæfilega
næsta árið eða svo og reyndi að
finna nýjan flöt á þvi en tókst
ekki. Eftir sem áður er hún einn
af dyggustu stuðningsmönnum
Hindleys.
Örlagarik breyting
á samfanga
Onnur kvennanna sem drakk te
með þeim Hindley og Pinney var
Carole O’Callaghan, en hún var
sú fyrsta sem kynntist Hindley að
ráöi. O’Caliaghan er glaðsinna
kona frá London er dæmd hafði
vérið fyrir að svikja fé Ut úr
tryggingafélagi og hún kynntist
Hindley er þær tóku báöar þátt i
kúrs fangelsisins I enskum bók-
menntum. Hindley skrifaði eitt
sinn aö O’Callaghan heföi fyllt sig
„vongleði og það var henni að
þakka að næstum óbærileg tilvera
varð þolanleg. HUn stappaði i mig
stálinu.” Siðan bætti Hindley við:
„Mér finnst hUn vera mitt alter
ego, mitt annað sjálf...”
Fjórði gesturinn i tedrykkjunni
varung kona frá Bandarikjunum,
Joan Kleinert, sem hafði verið
dæmd i tveggja og hálfs árs fang-
elsi fyrir að smygla nokkru
magni af marjúana til Bretlands.
Féð fyrir sölu á efninu átti siðan
að nota til húsakaupa, segir hún.
Kleinert kynntist Hindley i Hollo-
way árið 1971 og þegar Carole
O’CalIaghan var látin laus
blómstraði vinátta þeirra. Klein-
ert leiö illa vegna þess aö hUn
fékk ekki að hafa samband við
tvær ungar dætur sinar en i Hind-
ley fann hún ákfan „huggara”.
Hún segir um Hindley: „Hún var
mjög viðkvæm og ákaflega aðlað-
andi á sinn hátt. Við töluðum um
allt milli himins og jarðar og i
meira en ár deildum við öllum til-
finningum okkar með hvor
annarri.”
Við Kleinert fjallaði Hindley
um morðmálið i smaatriöum og
þó bandariska konan hafi ekki
þekkt neitt til þess áður en hún
kynntist Hindley sannfærðist hún
um að Hindley væri saklaus. „Sú
manneskja sem ég kynntist hefbi
ekki getað framið þennan verkn-
að,” segir hún. Þess má geta að
er Kleinert var látin laus árið 1973
haföi Hindley gerbreytt henni. „1
fyrsta sinn hafði ég viðurkennt
fyrir sjálfri mérað ég laðaöist að
konum, og aukinheldur hversu
konur geta styrkt hver aðra.”
Enda þótt hUn segi að þær Hind-
ley hafi aldrei átt likamleg sam-
skipti segir hún að vegna sam-
bandsins við Hindley hafi hún
gerst lesbla. HUn breytti nafni
slnu I Sage Mountainfire og settist
að I kvennakommUnu utan við
San Francisco þar sem aögangur
var bannaður fyrir karlmenn. Þó
hún búi nú ekki lengur i kommún-
inni skrifast þærHindley ennþá á.
Þetta er dæmi um þau áhrif
sem persóna Hindleys hafði og
hefur á fólk. Fangar uröu ekki
aðeins fyrir þvi. Samband hennar
við nokkra fangaverði var ámóta
sterkt og krefjandi og sem fyrr
var hún leikin I að finna áhuga-
mál þeirra sem hún vingaöist við
og skipta siöan viö þá á sama
plani. Sálfræöingar hallast að
visu helst aö þvi að þetta geri hún
óafvitandi.
Mesti vinur hennar meöal
starfsliðsins i Holloway var
fangavörður að nafni Pat Caims.
Vinátta þeirra stóö um sama bil
og vinátta Hindleys við Joan
Kleinert og i bréfum hefur Hind-
ley lýst Caims á svipaðan hátt og
Carole O’Callaghan, ennþá vin-
samlegar ef eitthvað er./,,HUn er
glaðleg, óendanlega hamingju-
söm og ánægð manneskja... Það
kunna allir vel við hana i fang-
elsinu og hUn er þekkt fyrir hlýju
sina og skilning og hún er alveg
falslaus.” Ef til vill var hún lika
að lýsa þvi' hvernig hún vildi vera
sjálf, altént bætti hún við — eins
og er hún lýsti O’Callaghan: „1
henni bergmálar sál min, mitt
alter idem.”
Flóttátilraun með
fangaverði
Cairns var fyrsti fangavöröurinn
sem vingaðist við Hindley,
en áður höfðu flestir fangaveröir
verið vinsamlegir við hana er
hún var nálæg en baktalað
hana er hún var hvergi nærri.
Cairns og Hindley áttu margt
sameiginlegt, ekki sist kristilegt
uppeldi á svipuðum slóðum, og
þær notuöu hvert tækifæri til
að spjalla saman. Stundum
töluðu þær saman gegnum gat
á vegg milli skrifstofu Cairns og
vinnuherbergis fanganna, stund-
um skiptust þærá orðsendingum I
kapellu fangelsisins. Cairns
gaukaðiýmsu góðgæti að Hindley
og hún gekk svo langt að hafna
stöðuhækkun þvi þá átti hún á
hættu að vera flutt i annað fang-
elsi, burt frá Hindley.
Vinátta þeirra endaði snögg-
31
lega. 1973 baö Hindley Cairns um
aöstoð við að flýja. Flóttahug-
leiðingar hennar voru eintóm vit-
leysa — „er ég kemst út skulum
viðfara tilBrasiliuoghjálpatil við
trúboðið þar" — og frnmkvæmdin
varð heldur klén. Upp komst um
allt saman áður en langt um leið
og Cairns var dæmd i sex ára
fangelsi, annar fangi sem þær
höföu fengið i liö með sér fékk 18
mánaöa fangelsi I viöbótog Hind-
ley 12 mánaða. Er réttaö var I
þessu máli kvaöst Hindley taka á
sig alla ábyrgð en nú haföi Cairns
snúiö við henni baki. Er Hindley
tókst að smygla til hennar bréfi I
Styal fangelsið þar sem hún var i
haldi afhenti Cairns fangelsis-
yfirvöldunum bréfið óopnað.
Þannig að það var aldrei ró
kringum Hindley. Hún virtist
fylla loftið spennu. Ekki urðu þó
allir fyrir áhrifum af henni og
félagsráðgjafi nokkur segir: „Ég
féll aldrei istafi fyrir henni... Hún
er mjög óvenjuleg kona, einföld á
margan hátt en geysilega sterk
og áhrifarik... Stundum varð ég
að reyna á mig til að greina milli
þess sem var gott fyrir hana og
sem var gott fyrir mig.” Annar
félagsráðgjafi hefur á hinn bóg-
inn sagt að Myra Hindley hafi
haftdjúp áhrif ásig og aðhúnhafi
„hálfvegis” sannfært sig um sak-
leysi sitt. Hún bætti við: „Okkur
fannst öllum að við ættum sér-
stakt samband við Hindley.”
Merkilegast af þessum „sér-
stöku samböndum” er samband
Myru Hindley við sjálfan fang-
elsisstjórann i Holloway, Dorothy
Wing. Er Wing lét af störfum i
Holloway árið 1973 heiðraði Hind-
ley hana á kunnuglegan hátt:
„Ég mun sakna hennar mjög
mikið. Hún hefur stutt mig og
örvað mig mjög mikiö og með
timanum þótti mér afar vænt um
hana og ég virði hana mikils. Nú
hefurstórum hluta lifs mins verið
kippt i burtu. Frú Wing á sérstakt
sæti I hjarta minu og mun ætið
eiga það.”
Gönsíuferð með
fangelsisstjóranum
Wing kom til Holloway sem
aðstoðarfangelsisstjóri árið 1966
(aöeins einum eða tveimur
dögum eftir að Hindley kom
þangað) og hún var skipaður yfir
maður fangelsisins ári si'ðar. Hún
var þá 52ja ára og fyrrverandi
liðsforingi i hernum og leit á
fangana sem hermenn sina, hún
vildi að þeir nytu eins mikils
frjálsræðis og sjálfsvirðingar og
mögulegt var án þess þó að hún
teldist til þeirra sem vilja um-
bylta öllu skipulagi fangelsismála
á Bretlandi.
Með mikilli þrautseigju komst
Hindley að þvi aö þær Wing höfðu
báðar mikið álit á enskum ljoð-
skáldum 19. aldar, en þau hafði
Hindley lært aö meta I bók-
menntakúrsum i Holloway. Wing
bauö Hindley margoft til
ibúöar sinnar og þær sátu viö
arineldinn og lásu ljóö og ræddu
um skáldskap. Báðum var
þetta, að þvi er séð verður, jafn
mikils virði. 10. september
1972 gekk Wing lengra.
Eftir að hafa rætt málið við
félagsráðgjafa Hindleys fór hún
meö fangann i tveggja tima
gönguferð um Hampstead heiö-
ina. Hindley hefur lýst þvi hvi-
likrar hamingju hún varö aðnjót-
andi i þessari gönguferö en hún
hlautslæman endi. Fangavörður
einn sagði blöðunum frá þessu og
frétt um máliö var á forsiðum
allra blaðanna daginn eftir.
Innanrikisráöherrann Robert
Carr ávltaði Wing fyrir þetta
„dómgreindarleysi” og er hún lét
af störfum árislðar fékk hún enga
orðu eins og þó er titt.
I fyrstu virtist vinátta þeirra
Wing og Hindleys óbrotin. En er
Hindley var ákærö fyrir „flótta-
tilraun” sina geröi Wing sér grein
fyrir þvi að Hindley haf öi logið að
henni um samband þeirra Cairns
og þær lygar höfðu leitt til þess að
-öðrum fanga var refsað fyrir
falskar ásakanir sem i rauninni
höíðu verið sannar. Löngu siðar
lét Wing svo um mælt að hún hefði
verið „einföld” i sambandi sinu
við Hindley, og hún sagði vini
sinum: „Ennþá vil ég henni vel.
En eftir á velti ég fyrir mér
hversu vel ég þekkti hana, eða
hvort ég skildi hana yfirleitt.”
1 næstu viku segir nánar af
Myru Hindley, ýmsum þáttum
bæði persónuleika hennar og
morðmálsins i heild.