Fréttablaðið - 08.12.2008, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 08.12.2008, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 8. desember 2008 19 UMRÆÐAN Lilja Sigrún Jónsdóttir skrifar um nytjagarða Það er margt í deiglunni um þessar mundir og umræða samfélagsins nokkuð miðuð við hvað eigi að gera til skemmri tíma. Án þess að vilja gera lítið úr mikil- vægi þess, er tilefni þessara skrifa hvað við gætum verið að gera núna, sem mun örugglega koma sér vel á næsta ári. Með þessum línum vil ég hvetja sveitarfélög til að fylgja fordæmi Hvergerðinga og undirbúa aukna ræktun matjurta næsta sumar. Það má fullvíst telja að stór hópur fólks muni hafa bæði áhuga og aðstæður til að sinna matjurta- rækt næsta vor, en hugsanlega skorta hentugt landrými. Innan hvers sveitarfélags er misjafnt hversu mikið land er laust til slíkra nota og hve lengi. Það má vel hugsa sér að taka lóðir þar sem jarðvegur er hagstæður til rækt- unar undir slíka notkun, þó þær hafi átt að vera byggingarlóðir húsa í skipulagi, og úthluta þeim sem ræktunarlandi með ákveðn- um skilyrðum ef til vill til 2-3 ára í fyrstu. Sveitarfélög myndu setja reglur og skilyrði um umgengni og frágang og huga þarf að aðgengi að vatni til vökvunar. Fyrirkomu- lag gæti verið með tvennu móti, annars vegar úthlutun skika fyrir fólk sem hefur reynslu af mat- jurtarækt og treystir sér til að sjá um þetta sjálft og hins vegar mat- jurtagarðar þar sem sveitarfélag- ið leggur til einhvern stuðning við framkvæmd í formi leiðsagnar í skipulagningu garða og vali á mat- jurtum til ræktunar. Þar gætu skólagarðar barna verið fyrir- mynd þó að ytri umgjörðin væri einfaldari. Vil ég leggja til að kalla slíka garða nytjagarða. Til að styðja uppbyggilega umræðu um þetta mál hefur verið sett upp bloggsíða (nytjagardar. blog.is) sem sýnir bæði vefslóðir á erlendar fyrirmyndir að slíku og þennan pistil. Til að styðja sveitar- félög landsins við að fá yfirsýn yfir áhuga fólks fyrir þessu úrræði hef ég stofnað sérstakt netfang til að sækja um lóð til matjurtarækt- unar. Ef þið viljið lýsa áhuga á að sækja um skika til matjurtarækt- unar fyrir sumarið 2009 þá sendið endilega tölvupóst á netfangið nytjagardar@gmail.com með póst- númeri ykkar, upplýsingum um nafn og heimilisfang og hvort reynsla er af matjurtaræktun eða hvort áhugi er fyrir hendi en þið þyrftuð leiðsögn við framkvæmd. Þá er fljótlegt að koma upplýs- ingum á framfæri við sveitarfélög landsins um hve margir hafa áhuga á úrræði af þessu tagi. Sá fyrirvari verður að vera á þessu máli að ekkert hefur verið kannað hvaða möguleika sveitarfélög hafa á að veita þessa þjónustu né heldur hvort eða hvaða endurgjald kæmi fyrir. Það kunna að vera fleiri en ein leið til að fá aðgang að ræktunarlandi, því ef sveitar- félög geta ekki útvegað það, er hugsanlegt að aðrir landeigendur vilji plægja land og veita aðgang að því til tómstundaræktunar á matjurtum. Nálægð við þéttbýli- skjarna hlýtur þó alltaf að vera mikilvægur þáttur í því að umönnun sé viðráðanleg og að ræktun þróist far- sællega. Erlendis er hefð fyrir hverfum nytjagarða í skipulagi og má finna þá í flestum þéttbýlisstöðum í Danmörku sem dæmi. Þeir kallast kolonihave og má sjá nánar um það á vefslóðinni http://www. kolonihave.dk/. Enn fremur eru til samtök slíkra garða í Bandaríkj- unum (sjá http://www.communit- ygarden.org) og er á báðum þess- um stöðum hægt að fá góð ráð varðandi skipulag svæða og umsýslu. Fyrir mörgum árum bauðst Reykvíkingum að fá rækt- unarland innan borgarmarkanna og muna eldri Reykvíkingar eftir görðum í Vatnsmýri, Kringlumýri og upp við Korpu. Áralöng hefð er fyrir skólagörðum og hafa þeir verið þéttsetnir undanfarin sumur og ekki annað eftirspurn. Vísast þarf að útvega geymslupláss til leigu, einkum fyrir kartöfluupp- skeruna, en það er einungis úrlausnarefni. Úrræði af því tagi sem hér er kynnt þarfnast undirbúnings, land þarf að skipuleggja og undirbúa og kartöflu- og matjurtaræktend- ur þurfa fyrirvara ef búast má við stóraukinni eftirspurn eftir inn- lendum matjurtum til ræktunar næsta vor. Frumkvæði Hvergerð- inga er til fyrirmyndar og væri það vel ef fleiri fylgdu því for- dæmi. Auðar lóðir í borgarlandi geta orðið uppspretta bæði hollrar útiveru, næringar og ómældrar ánægju. Höfundur er læknir. Erlendis er hefð fyrir hverfum nytjagarða í skipulagi og má finna þá í flestum þéttbýlis- stöðum í Danmörku sem dæmi. SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein- ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. LILJA SIGRÚN JÓNSDÓTTIR Úthlutum fleiri lóðum til ræktunar matjurta

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.