Fréttablaðið - 10.12.2008, Qupperneq 4
4 10. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
SLYS Harður árekstur fólksbíls og
lítillar rútu varð við gatnamót
Kringlumýrar- og Suðurlands-
brautar í Reykjavík á ellefta
tímanum í gærmorgun.
Slökkviliðið á höfuðborgar-
svæðinu beitti klippum til að ná
tveimur farþegum úr fólksbíln-
um og voru þeir fluttir á slysa-
deild ásamt tveimur farþegum
rútunnar. Ekki fengust upplýs-
ingar um líðan þeirra þar sem
læknir á slysadeild neitaði í gær
að ræða við fjölmiðla.
Bílarnir voru báðir töluvert
skemmdir og fjarlægðir með
kranabíl. Rútan er sérbúin fyrir
flutninga með hjólastóla. - kóp
Rúta og fólksbíll skullu saman:
Fjórir meiddust
á árekstri
KLIPPUR Beita þurfti klippum til að ná
farþegum úr fólksbílnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALÞINGI Þingmenn allra flokka
sögðu starfsemi Ríkisútvarpsins
mikilvæga í utandagskrárum-
ræðum á Alþingi í gær.
Rætt var um málið að ósk Katr-
ínar Jakobsdóttur, varaformanns
VG, í ljósi rekstrarvanda fyrir-
tækisins og hagræðingaraðgerða.
Lýsti hún áhyggjum af frétta-
flutningi RÚV í ljósi þess að
fækkað hefur um 25 starfsmenn
á fréttasviði þess á árinu. Furðaði
hún sig jafnframt á háum launum
útvarpsstjóra.
Þá spurði Katrín menntamála-
ráðherra hvort til greina kæmi
að ríkið tæki yfir lífeyrisskuld-
bindingar RÚV og dró í efa að
rekstrarformið, opinbert hlutafé-
lag, væri hið rétta.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra benti á
að aðstæður í efnahagslífinu
hefðu valdið öllum fjölmiðlafyri-
rækjum búsifjum, ekki bara Rík-
isútvarpinu. Auglýsingamarkað-
urinn hefði dregist saman um 40
prósent og allur rekstrar- og fjár-
magnskostnaður stóraukist.
Tugum hefði verið sagt upp störf-
um á öllum fjölmiðlum. Þorgerð-
ur sagði rekstrarform RÚV ekki
skipta máli í þessu sambandi,
nema þá hugsanlega til góðs.
Hún sagði athugandi hvort
ríkið gæti aflétt lífeyrisskuld-
bindingum RÚV og hvort það
ætti að kaupa Útvarpshúsið við
Efstaleiti. Þá sagði hún það sitt
mat að hagræðing fyrirtækisins
bitnaði ekki á fréttaflutningi
þess. Þorgerður ítrekaði þá skoð-
un sína að takmarka beri svig-
rúm RÚV á auglýsingamarkaði.
Tekjutapi vegna slíkra aðgerða
yrði þó að mæta með auknum
framlögum.
Höskuldur Þór Þórhallsson
Framsóknarflokki, Katrín Júlíus-
dóttir Samfylkingunni og Kol-
brún Halldórsdóttir VG sögðu
rétt að endurskoða rekstrarform
RÚV og Grétar Mar Jónsson,
Frjálslynda flokknum, sagði að
hætta ætti öllum auglýsingum í
Ríkisútvarpinu.
Einar Már Sigurðarson Sam-
fylkingunni benti á að einhugur
hefði ríkt um hagræðingarað-
gerðirnar í stjórn Ríkisútvarps-
ins. Í stjórninni ættu fleiri en
stjórnarflokkarnir sæti.
Lífeyrisskuldbindingar Ríkis-
útvarpsins ohf. nema um þremur
milljörðum króna og vegna þeirra
þarf fyrirtækið að greiða um 300
milljónir króna á ári.
bjorn@frettabladid.is
Hagræðingin bitnar
ekki á fréttum RÚV
Til greina kemur að ríkið yfirtaki lífeyrisskuldbindingar Ríkisútvarpsins og
kaupi hús þess. Margir þingmenn lýsa áhyggjum af stöðu RÚV og vilja endur-
skoða rekstrarformið. Menntamálaráðherra telur fréttaflutningi ekki ógnað.
RÍKIÐ LÉTTI BYRÐARNAR Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Katrín Jakobsdóttir
eru sammála um að skoða beri hvort ríkið eigi að yfirtaka lífeyrisskuldbindingar
Ríkisútvarpsins ohf. Rætt var um RÚV utan dagskrár á Alþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ranglega var sagt í Fréttablaðinu í
gær að Jón Ásgeir Jóhannesson væri
eini eigandi Sýnar ehf., sem á 365
miðla ehf. Ari Edwald, forstjóri 365
miðla, segir að Jón Ásgeir eigi ríflega
70 prósenta hlut í Sýn. Hann segir
Pálma Haraldsson vera næststærsta
hluthafann í Sýn, en sagði ekki
tímabært að upplýsa hverjir aðrir eigi
í félaginu. Ari segir unnið að því að fá
inn nýja hluthafa, og vonir standi til
þess að hægt verði að tilkynna um þá
fyrir jól. Markmiðið sé að Jón Ásgeir
og félög honum tengd eigi innan
við 40 prósent í 365 miðlum, eins
og raunin hafi verið með 365 hf., nú
Íslenska afþreyingu.
ÁRÉTTING
SKIPULAGSMÁL „Ég gaf húsið bara,
yfirtók skuldir og tapaði 40 milljón-
um á þessu,“ segir Óli Þór Barðdal,
fyrrverandi eigandi húss við Lauga-
veg 46.
Óli Þór keypti húsið í október á
síðasta ári en þá hafði það staðið
autt um nokkurn tíma og höfðu úti-
gangsmenn gert sig heimakomna í
húsinu. Hann áætlaði að gera húsið
upp svo það yrði sem líkast því sem
var árið 1905, þegar það var byggt.
Hönnun endurbóta var lokið auk
þess sem deiliskipulagsbreytingar
höfðu fengist samþykktar.
Óli Þór segist hafa fengið munn-
leg loforð um framkvæmdalán og
því hafi hann hafist handa við
skipulagningu og grenndarkynn-
ingu. „Bankinn sveik svo það sem
áður var lofað svo það var ekkert
hægt að gera,“ segir Óli Þór. Hann
segist hafa beðið í hálft ár eftir
framkvæmdaláni. „Ég gat bara
ekki beðið lengur þar sem ég hafði
ekki efni á að borga milljón á mán-
uði í ekki neitt,“ segir Óli Þór. Hann
hafi því neyðst til að láta húsið frá
sér í október síðastliðnum.
Sigurður Jensson, fjármálastjóri
Sola Capital ehf. og núverandi eig-
andi hússins, segir að enn standi til
að færa húsið til þess útlits sem það
var í þegar það var byggt. „Götu-
myndin verður óbreytt en forskaln-
ing verður tekin af húsinu auk þess
sem viðbygging verður aftan við
húsið,“ segir Sigurður. - ovd
Eigandi húss við Laugaveg tapaði 40 milljónum vegna svikinna loforða banka:
Fjármagnsskortur tefur framkvæmdir
LAUGAVEGUR 46 Lítill sómi er að húsinu
þar sem það stendur lokað við Laugaveg
en vonast er til að framkvæmdir við
endurgerð þess hefjist von bráðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MENNTUN Mun fleiri sóttu um að
komast inn á vorönn í kennara-
nám fyrir listamenn við Listahá-
skóla Íslands en á sama tíma í
fyrra.
Alls bárust 47 umsóknir og
getur skólinn ekki orðið við þeim
öllum. Í fyrra bárust átta
umsóknir, að sögn Álfrúnar G.
Guðrúnardóttur, kynningar-
stjóra LHÍ.
Arkitektar, hönnuðir og
myndlistarmenn eru meðal
umsækjanda í námið.
Um miðjan mánuðinn verður
ljóst hverjir fá inngöngu í námið,
en þeir verða um tuttugu talsins.
- kóþ
LHÍ þarf að vísa frá nemum:
Fjölgar mjög í
kennaranámi
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
14°
6°
4°
3°
3°
4°
5°
3°
2°
4°
19°
4°
15°
28°
-6°
3°
14°
3°
5
2
3
2 2
3
6 13
9
7
10
8
5
4
3
4
6
6
6
8
7
8
3
2
2 1
1
3 1
1
1
1
1
Á MORGUN
8-13 m/s en suðaustan
stormur um kvöldið
MÁNUDAGUR
8-15 m/s hvassast
sunnan og vestan til
VATNSVEÐUR
Í dag eru tvenn úr-
komukerfi að störfum
ef svo má að orði
komast. Núna með
morgninum verður
víða rigning á landinu,
síst þó á Vestfjörðum.
Eftir hádegi kemur
lægð upp að landinu
með vaxandi vind og
vætu. Má búast við
10-18 m/s á landinu
með kvöldinu en
hvassara á hálend-
inu. Samfara þessu
má búast við mikilli
rigningu sunnan til og
vestan.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
SJÁVARÚTVEGUR Forsvarsmenn
útgerðarfyrirtækisins Samherja
útloka ekki aðild að Evrópusam-
bandinu. Þetta
sögðu þeir
Þorsteinn Már
Baldvinsson
forstjóri og
Kristján
Vilhelmsson
útgerðarstjóri í
fréttum Stöðvar
2 í gær.
Þorsteinn
segir mjög erfitt
að reka útgerðarfélag í þeim
gengisólgusjó sem nú sé. Umræða
um málið fari fram í Samherja og
dótturfélögum og verði tilkynnt
um niðurstöðu hennar í janúar.
Fyrirtækið hefur rekið
starfsstöðvar innan Evrópusam-
bandsins og í Afríku og er erlend
starfsemi um 70 prósent af
heildarstarfsemi þess.
- kóp
Tilkynnir afstöðu sína í janúar:
Samherji úti-
lokar ekki ESB
ÞORSTEINN MÁR
BALDVINSSON
REYKJAVÍK Borgarfulltrúar koma
til með að lækka í launum í
hlutfalli við fyrirhugaða launa-
lækkun alþingismanna, en laun
þeirra eru 80 prósent af þingfar-
arkaupi.
„Þetta er ólíkt launum í flestum
öðrum bæjarfélögum því þetta
gerist bara sjálfkrafa,“ segir
Kjartan Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks.
Spurður hvort til greina hafi
komið að ganga enn lengra og
lækka launin frekar, segir
Kjartan að ýmsar hugmyndir hafi
verið uppi um launalækkanir: „En
fæst orð bera minnsta ábyrgð.“
Bæjarfulltrúar í Bolungarvík
lækkuðu laun kjörinna fulltrúa
um allt að 20 prósent nýlega. - kóþ
Þingfararkaup lækkar brátt:
Borgarfulltrúar
lækka í launum
GENGIÐ 09.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
190,7223
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,43 111,97
165,11 165,91
143,36 144,16
19,241 19,353
15,653 15,745
13,661 13,741
1,202 1,209
166,16 167,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR