Fréttablaðið - 10.12.2008, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 10. desember 2008 3
Rósa Guðný Þórsdóttir og Jakob
Þór Einarsson leikstjórar halda
utan um námskeið í leiklist og tal-
setningu inn á teiknimyndir hjá
Sýrlandi. Námskeiðin eru fyrir
börn og unglinga og nú er einnig
boðið upp á námskeið fyrir full-
orðna.
„Það eru ekki mörg leiklistar-
námskeið í boði fyrir fullorðna,“
útskýrir Jakob. „Við vorum með
þau fyrir nokkrum árum en svo
duttu þau upp fyrir vegna anna
hjá okkur. Nú hefur mikið verið
spurt eftir þeim og við vildum
mæta þeirri þörf.“
Á námskeiðunum fá nemendur
tilsögn í grunnatriðum leiklistar,
raddbeitingu og upplestri og tala
svo inn á teiknimynd. Rósa og
Jakob leiðbeina á námskeiðunum
sem hefjast eftir áramótin en kalla
til leikara til að leiðbeina eftir
þörfum. En hvernig lærir maður
að tala inn á teiknimynd?
„Fyrst förum við yfir almennar
leiklistaræfingar til að ná stress-
inu úr fólki. Nemendur fá handrit
og teiknimyndabút í hendurnar til
að fara með heim og æfa sig að
búa til persónu með röddinni. Í
tímanum er svo farið yfir hvernig
persónan er búin til og hvernig
röddinni er beitt. Stundum er per-
sónan eitthvert undarlegt dýr með
skrítin hljóð en ekki mannsrödd
þannig að það getur verið svolítið
ýkt leiklist að leika inn á teikni-
mynd,“ segir Jakob.
Hann segir sviðsskrekkinn
minni í þessum leik en sviðsleik
því í talsetningunni megi alltaf
taka upp aftur og laga. Mörgum
finnist þó spennandi að koma inn í
hljóðver og leika og stundum taki
tíma að koma fólki af stað.
„Það getur tekið tíma að fá fólk
til að ýkja röddina nóg. Þeir sem
eru að gera þetta í fyrsta skipti
átta sig oft ekki á því að þeir þurfa
jafnvel að gefa fimmtíu prósent
meira í röddina en þeim þykir eðli-
legt. Teiknimyndaleikur er ýkju-
leikur en ekkert stofudrama og
fólk gæti til dæmis þurft að leika
krókódíl sem er að róla sér.“
Að námskeiðinu loknu fá allir
viðurkenningarskjal og DVD-disk
með efninu sem þeir talsettu. Eftir
námskeiðið geta þátttakendur átt
möguleika á að komast í að tal-
setja teiknimyndir fyrir sjónvarp
eða kvikmyndahús. Nánari upp-
lýsingar má finna á vefsíðunni
www.syrland.is. heida@frettabladid.is
Ýkjur en ekkert drama
Ný námskeið í talsetningu teiknimynda eru að hefjast eftir áramótin hjá Sýrlandi. Námskeiðin eru sniðin
fyrir börn og fullorðna og fá nemendur tilsögn í leiklist og tala svo inn á teiknimynd.
Gunnar Ólafsson, fimmtán ára, fór líka á talsetningarnámskeið í fyrra. Hann vinnur
nú við að talsetja teiknimyndina Gló magnaða fyrir sjónvarpið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
EFNAHAGSLÍFIÐ Gylfi Magnússon dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands heldur
fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 12. desember klukkan 12-13.30. Fyrirlest-
urinn fjallar um þær slæmu horfur sem nú eru í efnahagslífi um heim allan, hverjar skýring-
arnar virðast vera og hvað geti verið fram undan.
Viltu hefja nýtt nám, rifja upp eða bæta við þekkingu þína?
Þá er Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð lausnin. Þar starfa vel menntaðir og
reyndir kennarar. Við Öldungadeildina er hægt að stunda nám til stúdentsprófs á
þremur bóknámsbrautum; félagsfræðabraut, málabraut og náttúrufræðibraut.
Kennsla fer fram seinnipart dags, frá mánudegi til fimmtudags.
Fólk getur aðlagað tímasókn að eigin þörfum, þar sem ekki er mætingaskylda í Öldun-
gadeildinni og námsefnið er allt sett inn á aðgengilegan námsvef.
Innritun
Innritun í deildina er í fullum gangi á vef skólans www.mh.is. Jafnframt verður innritað í MH dagana 6., 7., og 8. janúar kl. 9–12
í símum 595 5207 og 595 5200 og í skólanum kl. 12–18.30. Flestöll stéttarfélög taka þátt í menntunarkostnaði félaga sinna.
Kennsla hefst mánudaginn 12. janúar. Heimsækið okkur á mh.is.
G
ra
fik
a
08
Fyrir þá sem liggur á
LOTUKERFI – Nýtt námsfyrirkomulag í Öldungadeildinni
Á vorönn er nemendum líka gefinn kostur á að taka þrjú fög á tvöföldum hraða.
Hver áfangi er kenndur tvisvar í viku, alls í 3 klst. Önninni er skipt í tvær lotur.
Fyrri lotan 12. janúar – 1. mars
Áfangar í boði: ÍSL203, SAG103 og STÆ403.
Seinni lotan 5. mars – 30. apríl
Áfangar í boði: ÍSL303, SAG203 og STÆ503.
Öldungadeild MH
ævinlega í fararbroddi
V O R Ö N N 2 0 0 9
danska
enska
norska
sænska
franska
ítalska
spænska
íslenska
saga
félagsfræði
afbrotafræði
þjóðhagfræði
myndlist
sálfræði
uppeldisfræði
eðlisfræði
jarðfræði
líffræði
stærðfræði
lögfræði
tölvufræði