Fréttablaðið - 12.12.2008, Qupperneq 2
2 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
Hvað það verður
veit nú enginn
En Pósturinn kemur
því til skila í tæka
tíð fyrir jólin.
Á mánudag er
síðasti öruggi
skiladagur
fyrir jólakort
til Evrópu.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
8
-
2
2
1
8
www.postur.is
FÓLK Súkkulaðijólakort að hætti
súkkulaðimeistarans Hafliða
Ragnarssonar í Mosfellsbakaríi
eru skemmtileg tilbrigði við
hefðbundin jólakort.
Á þau prentar Hafliði kveðju og
ljósmynd með sérstökum
súkkulaðilitum og eru kortin því
fullkomlega æt. „Það er svo bara
spurning hvort fólk tími að borða
ættingja og vini,“ segir hann og
hlær. Kveðjan er öðrum megin á
hvítri súkkulaðiplötunni en hina
hliðina bragðbætir Hafliði með
súkkulaðikúlum og öðru góðgæti.
- sjá allt / ve
Nýjung í jólakveðjum:
Hægt að borða
jólakortin
NÝSTÁRLEG KORT Hægt er að borða nýju
jólakortin hans Hafliða Ragnarssonar.
Bogi, er þetta enn ein Boga-
rúllan?
Jú, ef allt fer á versta veg þá gæti
þetta orðið hin eina og sanna Boga-
rúlla.
Bogi Jónsson lýsti því yfir að starfsemi
hans á Hliði á Álftanesi væri að fara á
hausinn. Hann rak eitt sinn veitingavagn-
inn Boga-rúllur á Lækjartorgi.
DÓMSMÁL Vilhjálmur Bjarnason,
hluthafi í gamla Glitni, krefst
tveggja milljóna króna í skaða-
bætur vegna starfslokasamnings
sem gerður var við fyrrum for-
stjóra bankans, Bjarna Ármanns-
son.
Vilhjálmur hefur stefnt stjórn
bankans, en í henni voru Þor-
steinn M. Jónsson, Björn Ingi
Sveinsson, Haukur Guðjónsson,
Jón Sigurðsson, Katrín Péturs-
dóttir, Pétur Guðmundarson og
Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Til vara stefndi Vilhjálmur
bankanum sjálfum, gamla Glitni,
en sökum neyðarlaga ríkisstjórn-
ar Íslands vegna yfirtöku bank-
anna og efnahagshrunsins var
þeim hluta málsins frestað. Eftir
stendur krafan gegn stjórnar-
mönnum.
Guðni Á. Haraldsson, lögmaður
Vilhjálms, bendir á að við starfs-
lokin hafi eigið fé bankans minnk-
að „og ekki um neinar smáræðis
fjárhæðir“.
Að auki hafi jafnræðisákvæði
hlutafélagalaga ekki verið virt
þegar öðrum hluthöfum var ekki
boðið að njóta sömu kjara.
Síðast en ekki síst hafi Glitnir
samþykkt sérstakar reglur sem
tóku fyrir viðlíka samninga, ein-
ungis mánuði fyrir starfslokin.
Lögmaðurinn er vongóður fyrir
hönd síns skjólstæðings. Málið sé
dálítið sérstakt og engin fordæmi
fyrir álíka skaðabótum í málum
sem þessum. Hins vegar séu nokk-
ur fordæmi af málum sem snúast
um ábyrgð stjórnenda fyrir-
tækja.
Heyrst hefur úr herbúðum
stjórnarmannanna að þeir telji sig
einnig geta farið með sigur af
hólmi en lögmaður þeirra, Ólafur
Eiríksson, sagðist ekki geta tjáð
sig um málið nema fyrir dómstól-
um.
Málflutningur verður eftir ára-
mót. klemens@frettabladid.is
Vill tvær milljónir í
bætur vegna Bjarna
Vilhjálmur Bjarnason hefur stefnt stjórn gamla Glitnis vegna starfslokasamn-
ings sem gerður var við Bjarna Ármannsson, fyrrum forstjóra bankans. Stefndi
einnig bankanum en því var frestað vegna neyðarlaga ríkisstjórnar.
Bjarni Ármannsson fékk nærri 900 milljónir króna þegar hann hætti störfum
hjá Glitni, vorið 2007. Hann hélt launum og árangurstengdum greiðslum
í eitt ár og hlutabréf hans voru keypt á yfirverði. Í staðinn hafði Bjarni
„ákveðnum skyldum“ að gegna við bankann í eitt ár og mátti hann ekki ráða
sig í vinnu í eitt og hálft ár. Takmörk voru sett við hvert hann gæti ráðið sig í
lengri tíma vegna trúnaðarskyldu við bankann.
Hluti þessara peninga er hagnaður Bjarna af sölu á hlutabréfum hans
í Glitni. Stjórn bankans samþykkti að greiða honum 29 krónur á hlut, en
þá var meðalverð á hlut 26,6 krónur. Sagt er að Bjarna hafi verið greiddar
eitthvað á milli fjögurra og sjö milljarða fyrir þá.
Í yfirlýsingu frá stjórn Glitnis vegna kvartana Vilhjálms Bjarnasonar, sem
birtist í febrúar síðastliðnum, sagði að stjórnin hefði heimild aðalfundar til
að greiða allt að tíu prósenta yfirverð á hlut. Enn fremur: „Gengið endur-
speglaði markaðsaðstæður og væntingar á þeim tíma. [...] Að mati stjórnar
leikur enginn vafi á því að umrædd kaup féllu innan valdheimilda stjórnar
og voru eðlileg í alla staði.“
NÆRRI 900 MILLJÓNIR FYRIR AÐ HÆTTA
VILHJÁLMUR OG BJARNI Vilhjálmur hefur stefnt stjórn gamla Glitnis fyrir starfs-
lokagreiðslur Bjarna, sem numu á milli átta og níu hundruð milljónum króna.
FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
DÓMSMÁL „Ákærði, sem var á fimmtugsaldri, braut í
tvígang svívirðilega gegn þroskaheftri sautján ára
stúlku, sem gat ekki spornað við brotum hans.“
Svo segir í sératkvæði tveggja hæstaréttardóm-
ara, þeirra Ingibjargar Benediktsdóttur og Garðars
Gíslasonar, vegna dóms Hæstaréttar yfir Sveinbirni
R. Auðunssyni. Hann var dæmdur í átján mánaða
fangelsi og til að greiða stúlkunni 800 þúsund krónur
í skaðabætur. Héraðsdómur hafði dæmt hann í
tveggja ára fangelsi og til greiðslu sömu upphæðar.
Manninum hafði verið trúað fyrir að aka stúlkunni
frá heimili hennar í skóla sem hún sótti á námsbraut
fyrir þroskaheft börn. Hann viðurkenndi að hafa
tvisvar haft kynferðismök við hana. Stúlkan gat ekki
spornað við verknaðinum vegna andlegra annmarka
og líkamlegrar fötlunar. Maðurinn kvaðst ekki hafa
gert sér grein fyrir því að hún væri þroskahömluð.
Talið var að honum hafi ekki getað dulist að stúlkan
ætti við andlega annmarka að stríða.
Ofangreindir dómarar skiluðu sératkvæði, því
þeir vildu að dómur héraðsdóms yfði staðfestur og
maðurinn fengi tveggja ára fangelsisdóm. - jss
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Mildaði dóm héraðsdóms yfir mann-
inum.
Karlmaður á fimmtugsaldri dæmdur í átján mánaða fangelsi:
Braut í tvígang svívirðilega
gegn þroskaheftri stúlku
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi
lauk í gær rannsókn á rangri
andlátsfrétt sem fangi á Litla-
Hrauni fékk birta um sprellli-
fandi samfanga
sinn í Morgun-
blaðinu. Óvíst er
hvort fanginn
verði ákærður.
Ólafur Helgi
Kjartansson,
sýslumaður á
Selfossi, segir
ekki mikið hafa
komið út úr
rannsókninni.
Ekki hafi auglýsingin orðið
fanganum að féþúfu, enda enginn
lagt inn á reikning sem getið var í
auglýsingunni. Skoðað verður
hvort ákært verði fyrir tilraun til
fjársvika, eða hvort litið verði á
málið sem ósmekklegt grín og
það látið niður falla. - bj
Andlátstilkynning samfanga:
Rannsókn
lögreglu lokið
ÓLAFUR HELGI
KJARTANSSON
FJÖLMIÐLAR Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra
hefur viðrað þá hugmynd að ríkis-
sjóður taki yfir lífeyrisskuldbind-
ingar Ríkisútvarpsins ohf. og eign-
ist í staðinn útvarpshúsið við
Efstaleiti. Bókfært virði hússins er
þrír milljarðar króna sem er sama
upphæð og lífeyrisskuldbindingar
fyrirtækisins.
Síðan Ríkisútvarpið var gert að
opinberu hlutafélagi árið 2006
hefur um 800 milljóna króna eigið
fé fyrirtækisins brunnið upp vegna
fjármagnskostnaðar vegna lífeyr-
isskuldbindinga og húseignarinnar
við Efstaleiti. Þegar endurskoðuð
rekstraráætlun RÚV var kynnt á
dögunum kom
fram að í byrjun
apríl 2007 var
eigið fé RÚV 880
milljónir en var
komið niður í
tæpa 31 milljón í
lok ágúst 2008. Á
því tímabili var
rekstrartapið
um 70 milljónir
króna.
Það sem
vinnst með þessari aðgerð er að
létta lífeyrisskuldbindingum gömlu
stofnunarinnar af RÚV ohf., og þar
með fjármagnskostnaði af þeim.
Ríkið sem eigandi er í raun að grípa
til aðgerða svo RÚV sligist ekki
undan þessum fjármagnskostnaði
og til að bæta eiginfjárstöðu fyrir-
tækisins. Í raun er um bókhaldslegt
atriði að ræða þar sem ríkið er eig-
andi RÚV ohf., og þar með útvarps-
hússins. Lífeyrisskuldbindingar
RÚV eru hjá Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins og hvíla á ríkissjóði
hvort sem þær heyra undir RÚV
sem fyrirtæki eða ríkið sjálft.
Til að af þessu geti orðið þarf að
vera heimild á fjárlögum. Hún er
ekki fyrir hendi á fjárlögum 2009
sem nú eru til meðferðar Alþingis.
Hugsanlegt er að gert verði ráð
fyrir þessari aðgerð á fjáraukalög-
um. - shá
Kemur til greina að ríkissjóður taki yfir lífeyrisskuldbindingar Ríkisútvarpsins ohf.:
Lífeyririnn að sliga reksturinn
ALÞINGI Staða sérstaks saksóknara
sem rannsaka á aðdraganda
bankahrunsins verður auglýst
fljótlega. Haft
verður samráð
við fulltrúa
allra þingflokka
um ráðningu,
segir Björn
Bjarnason
dómsmálaráð-
herra.
Alþingi
samþykkti
frumvarp um
sérstakan saksóknara á miðviku-
dag. Björn sagði á Alþingi í gær
að umsóknarfrestur verði tvær
vikur. Að þeim liðnum verði
fulltrúar allra flokka, valdir með
samráði við allsherjarnefnd,
kallaðir til samráðs í dómsmála-
ráðuneytinu um ráðninguna. - bj
Staða saksóknara auglýst:
Samráð haft
um ráðningu
BJÖRN
BJARNASON
DÓMSMÁL Þrjá stúlkur hafa verið
dæmdar í Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir hrottalega árás á
jafnöldru sína. Stúlkurnar sem
eru allar innan við tvítugt, stungu
meðal annars logandi sígarettu í
líkama hennar og neyddu hana
síðan til að borða sígarettuna.
Tvær stúlknanna fengu sex og
fjögurra mánaða skilorðsbundinn
dóm til tveggja ára. Þriðja
stúlkan hafði áður hlotið tólf
mánaða fangelsisdóm fyrir að
vera með fíkniefni innvortis er
hún var tekin í Leifsstöð. Hún
afplánar nú þann dóm og var ekki
gerð sérstök refsing nú. Árásin
átti sér stað í júlí á síðasta ári í
aftursæti bifreiðar í Fossvogs-
kirkjugarði. - jss
Þrjár stúlkur dæmdar:
Hrottaleg árás
á jafnöldru
NEYTENDUR Alþingi samþykkti í
gær hækkun á olíugjaldi og
kílómetragjaldi, vörugjaldi af öku-
tækjum og eldsneyti og bifreiða-
gjaldi. Lögin voru keyrð í gegnum
þingið með hraði, málið var
samþykkt rúmum klukkutíma
eftir að það var lagt fram.
Olíugjald hækkar úr 41 krónu af
hverjum lítra af olíu í 46,12
krónur og vörugjald af bifreiðum,
eldsneyti og fleiru hækkar einnig.
Bifreiðagjald er í mörgum
flokkum eftir þyngd bifreiða og
hækka þeir allir.
Hraði málsins skýrist líklega af
því að menn hafi viljað koma í veg
fyrir að bensín yrði hamstrað. - kóp
Alþingi hækkar gjöld:
Gjöld á olíu og
bíla hækkuðu
ÞORGERÐUR K.
GUNNARSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS