Fréttablaðið - 12.12.2008, Side 33
Gjafabréf PerlunnarGefðu einstaka kvöldstund í jólagjöf!
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég reyni að kaupa lífrænt ræktað
grænmeti og ávexti og núna í
kreppunni hugsa ég: Ég hlýt að
geta sparað eitthvað annað. Mat-
urinn verður að ganga fyrir og
ódýrasta ánægjan er að borða hollt
á hverjum degi,“ segir Áslaug sem
er í vikulegri áskrift hjá Græna
hlekknum og fær þaðan lífræna
ávexti og ferskt, íslenskt græn-
meti.
„Ávextirnir koma vissulega frá
útlöndum en ég fæ mér oft þeyting
og er háð þeim,“ segir hún. „Svo er
ég með pínulítið gróðurhús í sveit-
inni og rækta þar krydd sem ég
þurrka og frysti til vetrarins.“
Áslaug skrifar og myndskreytir
barnabækur. Í nýju bókinni henn-
ar, sem heitir Skrímslapest, færir
litla skrímslið stóra skrímslinu
heita súpu því til heilsubótar. Því
liggur beint við að spyrja Áslaugu
hvort hún lumi ekki á góðri súpu-
uppskrift. Þá hlær hún.
„Ég geri aldrei súpu eftir upp-
skrift. Hins vegar geri ég oft
naglasúpur því alltaf er eitthvað
til í þær, laukur, gulrætur, sellerí
og kartöflur. Ég nota líka chili og
hvítlauk frá honum Þórði á Akri í
súpur, hvort tveggja styrkir og
hressir. Svo er fínt að setja smá af
linsubaunum og mér finnst kórí-
ander og engifer líka gott í allt.
Auk þess að bragðbæta súpur með
teningi tek ég kryddið mitt úr
krukku eða frystinum og myl það
út í súpuna,“ segir Áslaug og
kemur með hollráð í lokin.
„Ég frysti kórianderinn ferskan
og það ráðlegg ég fólki að gera ef
það kaupir ferskt krydd og notar
það ekki samstundis. Hver kann-
ast ekki við að finna eitthvað dáið
í ísskápnum af því það var ekki
notað strax? Betra er að frysta
kryddafganginn og brjóta hann
frosinn út í súpuna eða réttinn.
Það er sparnaður.“
gun@frettabladid.is
Alltaf til efni í naglasúpu
Bókverkakonan Áslaug Jónsdóttir á alltaf til gott hráefni í súpu heima hjá sér. Hún fær nefnilega sent
ferskt, íslenskt grænmeti vikulega og lumar svo á kryddi úr eigin ræktun í krukkum og frysti.
HJÓLIN Í KÍNA er yfirskrift ljósmyndasýningar
sem opnar á morgun klukkan 15.00 í Galleríi Fold
við Rauðarárstíg. Myndirnar tók Jóhann Ágúst Hansen
þegar hann var í námi við Shanghai-háskóla í Kína.
„Ég tek eigið krydd og myl það út
í súpuna,“ segir Áslaug en í nýrri
bók hennar, Skrímslapest, færir
litla skrímslið stóra skrímslinu
heita súpu.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
gb
ro
t
23. des. Skötu- og jólahlaðborð í hádeginu
1. jan. Nýárskvöldverður Perlunnar
6. jan. Þrettándakvöld í Perlunni
Sannkölluð þrettándastemmning!
Flugeldar og „Allt í steik“ seðillinn!
Jólahlaðborð
Perlunnar
Verð 7.250 kr.
20. nóvember - 30. desember
Lifandi tónlist: Þrjár raddir alla fimmtudaga
og sunnudaga, Þórir Baldurs og Óli Sveinn Jónsson
alla föstudaga og laugardaga.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R