Fréttablaðið - 12.12.2008, Side 35
„Ungt fólk á Íslandi er ótrúlega
frumlegt og skapandi, en við aug-
lýstum eftir þátttakendum á jóla-
markað Hins hússins á netinu og
viðtökurnar létu ekki á sér standa,“
segir Berglind Sunna Stefánsdótt-
ir, upplýsingafulltrúi hjá Hinu hús-
inu – miðstöð ungs fólks, þar sem
opinn verður glæsilegur og spenn-
andi jólamarkaður ungs fólks á
aldrinum 16 til 25 ára á laugardag
milli klukkan 13 og 18.
„Við héldum jólamarkað með
svipuðu sniði í fyrra og ákváðum
að prófa aftur í ár. Hingað kemur
hópur ungs fólks með handverk
sitt og hönnun, eins og fatnað,
skartgripi, list, nytjamuni og fleira
fallegt sem býðst gestum til kaups
sem nýta vilja tækifærið og kaupa
flottar og nýmóðins jólagjafir
handa sínum nánustu,“ segir Berg-
lind Sunna í fagurskreyttu Hinu
húsinu við Pósthússtræti.
„Við eigum von á góðum gestum
og vonumst til að fólk kíki til okkar
á rölti sínu við jólainnkaupin í mið-
bænum. Við höfum skreytt allt
hátt og lágt og virkilega hátíðleg
stemning sem ræður hér ríkjum.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði
og smákökur, og tónlistarmennirn-
ir My Summer as a Salvation
Soldier, Loji, Einar Indra og
Pikknikk munu spila fyrir gesti og
gangandi,“ segir Berglind Sunna
sem hlakkar til að sjá hvað listelsk
ungmennin setja á markaðsborð
laugardagsins.
„Þetta er kjörið tækifæri fyrir
unga fólkið til að koma sér á fram-
færi og sýna hvað það er að fást við,
en þetta eru allt krakkar sem fylgj-
ast með því sem er að gerast og
stunda enga eftiröpun, heldur org-
ínal og frumlega listsköpun, enda
með skemmtilegar skoðanir og
nálgun á lífið og tilveruna,“ segir
Berglind Sunna.
Þess má geta að nemendur á lista-
sviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti
opna samsýningu í Gallerí Tukt í
Hinu húsinu á laugardag klukkan
16, en sú sýning endurspeglar vel
þann mikla kraft og gerjun sem á
sér stað hjá listnemum FB.
Allir eru velkomnir, og hvattir til
að kynna sér hvað unga fólki hefur
fram að færa. thordis@frettabladid.is
Nýmóðins og spennandi
Í listelskandi hugum íslenskra ungmenna leynast fjársjóðir frumlegrar sköpunar sem í senn ber með sér
fegurð og fágun. Handverks þeirra má njóta á jólamarkaði Hins hússins á morgun.
Berglind Sunna Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi í Hinu húsinu, í jólalegum glugga
gamla pósthússins á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. Í bakgrunni er plakat
jólamarkaðarins í ár, eftir Sigurð Atla Sigurðsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JÓLASVEINARNIR eru farnir að tínast til byggða og sá fyrsti,
Stekkjastaur, er væntanlegur á Þjóðminjasafnið klukkan 11 í dag. Bræð-
ur hans mæta síðan einn á dag á safnið á sama tíma fram að jólum.