Fréttablaðið - 12.12.2008, Qupperneq 44
8 föstudagur 12. desember
Rósa Guðmunds-
dóttir byrjaði að spila
á píanó fyrir fjögurra ára
aldur og var í klassísku
píanónámi þar til hún
varð átján ára. Eftir
það lét hún til sín taka
á mörgum sviðum en
hefur nú lagt tónlistina
fyrir sig og er búsett í
New York.
Viðtal: Alma Guðmundsdóttir
Ljósmyndir: Stefán Karlsson
Þ
egar ég flutti frá Vest-
mannaeyjum til Reykja-
víkur átján ára gömul
brann ég yfir á tónlist-
inni og fór að reka næt-
urklúbbinn Spotlight, sem ég gerði
í tvö ár.
Þegar ég varð nítján ára og eign-
aðist kærustu í fyrsta sinn gerðist
ég sjálfskipaður talsmaður Samtak-
anna ´78 því mér fannst svo margt
þurfa að breytast hér. Ég varð fyrir
fordómum fyrir að vera öðruvísi í
Vestmannaeyjum og fann fyrir því
sama þegar ég kom út úr skápnum,“
segir Rósa sem var ófeimin við að tjá
skoðanir sínar.
„Ég var umdeild á sínum tíma
því ég var að takast á við mjög heit
málefni, eins og til dæmis mál inn-
flytjenda. Ég var einn af forsprökk-
um þáttagerðarmanna Skjás eins og
var með þátt sem auglýsendur bökk-
uðu svo út úr að kosta því þeir voru
hræddir við hvað ég var eldfim,“ út-
skýrir Rósa og hlær.
„Ég stofnaði svo fyrstu íslensk/
amerísku umboðsskrifstofuna á Ís-
landi með amerískum fjárfesti. Þar
kynnti ég til dæmis Þórunni Ant-
oníu og Erp Eyvindarson á erlendri
grundu,“ segir Rósa. Eftir 11. sept-
ember 2001 voru þau með stórt
verkefni í burðarliðnum sem hét
Sýnum lit gegn kynþáttafordóm-
um og var unnið í samstarfi við
Reykjavíkurborg. Þau voru búin að
fá helstu tónlistarmenn landsins
ásamt Jungle Brothers til að spila á
Broadway. Eftir 11. september varð
þetta að engu.
Árið 2002 fór Rósa til Jamaíku og
tók upp í hljóðveri sem Björk, Gor-
illaz og No Doubt höfðu meðal ann-
ars tekið upp í. Ári síðar fór hún til
London í upptökur hjá Martin Heath,
sem tók hljómsveitina The Killers
upp á sína arma, og bauðst samn-
ingur sem lagahöfundur. „Þá var ég
með um 30 lög tilbúin en þeir vildu
að ég myndi byrja að semja nýtt efni
með öðrum höfundi og skipta öllu
jafnt með honum.
Ég vildi hins vegar bara einbeita
mér að því sem ég var komin með
svo ég afþakkaði tilboðið,“ segir
Rósa sem hélt ótrauð áfram.
FÖST Á ÍSLANDI
„Árið 2005 hélt ég tónleika á Joe’s
Pub í New York þar sem Motown
Records sýndu mér mikinn áhuga.
Ég planaði því aðra tónleika sem
áttu að vera stuttu síðar og var að
öllum líkindum að fara að skrifa
undir samning við þá. Ég fór heim
til Íslands í stuttan tíma í millitíð-
inni en þegar ég kom aftur út í byrj-
un 2006 kom í ljós að ég hafði óvart
gist yfir leyfilegan tíma í Bandaríkj-
unum fyrir heimförina, svo þegar ég
lenti var ég bara sett í járn og send
aftur til Íslands. Ég fékk algjört áfall
og veröld mín hrundi,“ útskýrir Rósa
sem var þá í sambandi við ameríska
stelpu. „Kærastan mín mátti ekki
einu sinni koma að sjá mig áður
en ég var send aftur heim, svo við
skildum ástfangnar á þessum tíma-
punkti og höfum ekki sést síðan,“
bætir hún við, en Rósu var meinað-
ur aðgangur inn í Bandaríkin í fimm
ár í kjölfarið.
„Ég réði lögfræðing í Bandaríkjun-
um og höfðaði mál. Ég fékk mikinn
stuðning frá Andreu Jóns og Óla Palla
á Rás 2, Jakobi Frímanni Magnúsyni
og tónlistarmanninum Lionel Richie
sem ég hafði kynnst í New York, en
þau skrifuðu öll undir stuðningsyfir-
lýsingu til að styrkja mitt mál ásamt
fleirum. Jón Baldvin Hannibalsson
bauðst líka til að fara í sendiráð-
ið fyrir mig hérna heima til að út-
skýra mína stöðu. Ég er mjög þakk-
lát þessu góða fólki sem lagði sitt
af mörkum til að hjálpa mér, því ég
vann málið og fékk inngöngubann-
ið stytt úr fimm árum niður í tvö,“
segir Rósa.
„Þegar ég kom út í byrjun þessa
árs smalaði ég saman stelpum sem
ég hafði verið að spila með áður en
ég „festist“ og hef notað allt þetta ár
í að æfa, semja og útsetja strengja-
tónlist. Ég sem og útset allt sjálf frá
a til ö svo það er gífurleg vinna,“
segir Rósa, sem hefur umboðs-
manninn John Doumanian sér til
halds og trausts, en hann var hátt
settur í Columbia Records á sínum
tíma og hefur framleitt kvikmyndir
Woodys Allen.
„Við stelpurnar köllum okkur The
Ultra Tight og héldum tónleika í The
Cutting Room í New York fyrir ýmis
plötufyrirtæki um miðjan nóvem-
ber. Það gekk vonum framar og ég er
núna í viðræðum við NBC Universal
og Jive Records sem Britney og Pink
eru meðal annars hjá. Ég er samt
bara að skoða málin og ætla ekki
að taka neina ákvörðun fyrr en ég
hef haldið tvenna tónleika í viðbót
og vonandi fengið fleiri tilboð,“ segir
Rósa sem fékk frábæra dóma eftir
fyrstu tónleikana hjá blaðamanni
Rolling Stone. Þar segir blaðamað-
urinn Tiffany Bakker meðal annars
að Rósa sé eflaust næsta nafn á lista
yfir heimsþekkta íslenska tónlistar-
menn, með Sigur Rós og Björk.
Í STÓRA EPLINU
Spurð hvort það sé dýrt að búa í New
York og reyna fyrir sér í tónlistinni
segir hún svo vera. „Ef maður hefur
tilgang og fjárhagsöryggi í New York
vinnur borgin með manni, ef maður
er ekki með tilgang og áhyggjur étur
borgin mann upp. Þannig upplifi ég
það. Það er rándýrt að búa sæmilega
í New York en ég er með fjársterk-
an aðila með mér sem ég stofnaði
fyrirtækið mitt með og er viðskipta-
félagi minn til tíu ára. Við gerðum
fjármagnssamning og fjárfestum
í mínum ferli svo ég er á launum
á meðan ég er að vinna í tónlist-
inni. Þegar ég næ svo mínu mark-
miði semjum við um arðskiptingu,“
útskýrir Rósa sem býr í íbúð við
Empire State-bygginguna og segist
kunna vel við sig í borginni.
FRAMTÍÐARDRAUMAR
„Í framtíðinni langar mig að byggja
mér hús á Íslandi og kaupa íbúð á
Manhattan, svo langar mig að stofna
fjölskyldu þegar ég er búin að því.
Þó svo ég muni líklegast enda með
konu ef mér er ætlað samband,
höfum við viðskiptafélagi minn
ákveðið að eignast saman börn
einn daginn, sama hvort ég verði
komin í samband þá eða ekki. Ég hef
aldrei orðið ástfangin af karlmanni,
en hann kemst svona næst því að
vera maðurinn í mínu lífi,“ segir
Rósa og hlær við. „Annars á tónlist-
in hug minn allan í dag. Ég á efni á
yfir tvær og hálfa plötu, svo næsta
skref er bara að gera góðan samn-
ing við það plötufyrirtæki sem ég
enda hjá og koma tónlistinni minni
á framfæri.“
„FESTIST“ Á ÍSLANDI Í TVÖ ÁR
Eftirsótt Rósa Guðmundsdóttir skoðar nú tilboð frá plötufyrirtækjum sem hafa sýnt henni áhuga í New York.
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n Stjörnumerki:
Fiskar.
Besti tími dagsins:
Kvöldin og nóttin.
Geisladiskurinn í spilaranum:
Spilarinn er heilinn á mér.
Uppáhaldsmaturinn:
Hollir grænmetisréttir.
Líkamsræktin:
Spin-tímar, hlaup, sund,
jóga, pilates eftir skapi
bara. Það er nauðsynlegt að þjálfa hjarta-
vöðvann. Oft er þetta meiri geðrækt en
líkamsrækt hjá mér. Ég sigraði þung-
lyndi með íþróttum og get alltaf haldið því
í skefjum með þeim. Pillur geta EKKI
komið í stað hreyfingar.
Mesta dekrið:
Nudd! Fótanudd
sérstaklega. Gott að
láta gæla við
líkamann.
Ég lít mest upp til:
Sjálfrar mín og almættisins.
Saman erum við ósigr-
andi!
Áhrifavaldur-
inn?
Madonna fyrir
sjálfstæðið,
pabbi fyrir agann,
mamma fyrir
skilyrðisleys-
ið, guð fyrir
skilninginn, Karen Carpenter fyrir
sorgina, systir min fyrir hvatninguna
og Susan vinkona fyrir óbilandi trú.
Draumafríið?
Eitthvað afskekkt í sólinni er fínt.
Hverju myndirðu sleppa ef þú
yrðir að spara?
Að borða jafnmikið úti, annars
kann ég alveg að vera hagsýn
og er það almennt.