Fréttablaðið - 12.12.2008, Síða 58
34 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál-
efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn orð. Ein göngu
er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari
leið bein ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi
eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Sigmundur Guðbjarnason
skrifar um nýsköpun
Á liðnum áratugum hafa Íslend-ingar af og til gert átak til að
efla nýsköpun í atvinnulífi og leit-
að ýmissa leiða í þeim tilgangi.
Viðleitnin hefur verið mest á
tímum aflabrests og efnahags-
lægða en með batnandi hag hefur
áhuginn á nýsköpun minnkað.
Nýsköpun og nýmæli í atvinnu-
lífinu verða með ýmsum hætti og
reynt hefur verið að skapa frjóan
jarðveg fyrir ræktun slíkra hæfi-
leika og nýrra hugmynda. Víða
erlendis er markvisst unnið að því
að rækta þá hæfileika sem styrkja
frumkvæði einstaklinga og frum-
lega hugsun, áræði og nýsköpun í
atvinnulífinu. Hér á landi hafa
einnig verið reyndar ýmsar leiðir
til að efla nýsköpun og framtaks-
semi í skólum og taka nemendur
þessari viðleitni vel og sýna frum-
kvæðið þegar færi gefst. Vert er
að vekja athygli á því sem gert
hefur verið á þessum vettvangi og
er mikilvægt að styðja það og
styrkja og kynna betur.
1. Nýsköpunarkeppni grunn-
skóla hefur farið fram um árabil á
vegum Fræðsluskrifstofu Reykja-
víkur. Uppfinningar þessara ungu
keppenda hafa verið kynntar opin-
berlega og þóttu margar þessara
hugmynda bráðsnjallar. „Félag
ungra uppfinningamanna“ var
stofnað 1994. Slík keppni krefst
kennara og stjórnenda sem hafa
brennandi áhuga á viðfangsefn-
inu. Þátttaka barna í slíku starfi
hefur áhrif á hugsunarhátt þeirra,
eykur frumkvæði og útsjónarsemi
og hvetur þau til að leita leiða til
að leysa vandann hverju sinni.
2. „Hugmyndasamkeppni ungs
fólks í vísindum og tækni“ eða
Hugvísir er þáttur í vaxandi sam-
vinnu atvinnu-
lífs og skóla í
Evrópu og eru
þátttakendur á
aldrinum 15-20
ára. Keppninni
er ætlað að efla
hæfileika til að
leysa vandamál
á nýstárlegan
hátt og sýna
eigið frum-
kvæði, mark-
visst vinnuferli og sjálfstæð
vinnubrögð. Þessi keppni er hluti
af mannauðsáætlun ESB.
3. „Nýsköpunarsjóður náms-
manna“ var stofnaður 1992 og áttu
stúdentar allt frumkvæði að því.
Hefur þessi sjóður veitt styrki í
fjölmörg athyglisverð rannsókna-
og nýsköpunarverkefni.
4. „Rannsóknanámssjóður“ var
stofnaður 1993. Hlutverk hans að
styrkja nemendur til frekari þjálf-
unar í vísindalegum vinnubrögð-
um, bæði á sviði grunnrannsókna
og hagnýtra rannsókna. Slík þjálf-
un er mikilvægur þáttur í mennt-
un til meistara- eða doktorsprófs,
þar sem nemendur temja sér
markviss og öguð vinnubrögð við
úrlausn flókinna viðfangsefna. Sú
reynsla og þjálfun nýtist vel í
hinum margvíslegu störfum sem
kandidatar takast á við, bæði í
heimi vísinda og viðskipta.
5. Vísinda- og tækniráð er arf-
taki Rannsóknarráðs Íslands og
veitir styrki úr nokkrum sjóðum,
m.a. Rannsóknasjóði (áður Vís-
indasjóði) og Tækniþróunarsjóði
(áður Tæknisjóði).
Ýmsar þær umbætur sem Rann-
sóknarráð Íslands gerði á starfs-
háttum og vinnubrögðum við
styrkúthlutanir hefur verið fram
haldið hjá Rannsóknasjóði en
Tækniþróunarsjóður hefur valið
önnur vinnubrögð.
Nýlega var haldið upp á 20 ára
afmæli Tæknigarðs en Háskóli
Íslands byggði tvo slíka tækni-
garða í tilefni 75 ára afmælis
Háskólans 1986. Þetta eru nýsköp-
unarhreiður fyrir sprotafyrirtæki,
hinn nýsköpunargarðurinn er
Efna- og líftæknihúsið á Keldna-
holti og er Orf líftækni þar starf-
andi. Tæknigarður hefur reynst
mjög farsælt frumkvöðlasetur.
Hafa þar verið starfrækt 77 fyrir-
tæki á þessu tímabili, 30 fyrirtæki
eru enn starfandi, 30 hafa hætt
starfsemi og önnur hafa samein-
ast öðrum fyrirtækjum. Þetta telst
mjög góður árangur.
Frumkvöðlar eru fólk á öllum
aldri sem vilja byggja upp eigin
fyrirtæki og getur það verið á
mjög ólíkum sviðum. Þeir sem
leggja út í slík ævintýri verða að
hafa dirfsku, framtakssemi og
úthald því þeirra geta beðið erfið-
ir tímar í mörg ár. Ef vel gengur
uppskera menn ánægjuna af því
að hafa skapað nýja starfsemi og
nýjar afurðir sem markaður er
fyrir. Reynsla frumkvöðla er eðli-
lega misjöfn en síðustu ár hafa
verið mörgum erfið. Stuðningur
við sprotafyrirtæki hefur yfirleitt
verið lítill, fjárfestar hafa í góð-
ærinu viljað glíma við stærri verk-
efni sem skila skjótt arði, Nýsköp-
unarsjóður hefur lengst af verið
máttlítill og vinnubrögð Tækni-
þróunarsjóðs eru umdeilanleg.
Eigi þessi nýsköpunarviðleitni að
skila því sem að er stefnt verður
að styðja betur við uppbyggingu
og markaðssetningu.
Við verðum að láta þekkinguna
og hugmyndaflugið vinna fyrir
okkur í auknum mæli og virkja
allt í senn listir, vísindi og tækni
til að auka samkeppnishæfni þjóð-
arinnar á öllum sviðum. Þetta er
vert að hafa í huga við endurreisn
Íslands.
Höfundur er prófessor emeritus.
Nýsköpun og ræktun frumkvöðla
UMRÆÐAN
Jón Gunnarsson skrif-
ar um krónubréf
Fagna ber þeirri þróun sem orðið hefur á
gengisskráningu krón-
unnar síðan takmarkað
flot hennar hófst í síðustu
viku. Styrking krónunnar
er vonandi varanleg
þannig að draga megi sem fyrst
úr þeim höftum sem sett voru á
gjaldeyrisviðskipti.
Líklegt er að inneignir erlendra
aðila í íslenskum krónum muni
leita úr landi þegar höftunum
verður aflétt. Hér er um að ræða
fjármuni fjárfestingasjóða sem
hafa það að markmiði að ávaxta
pund sitt sem best. Flótti þeirra
ræðst af áhyggjum af horfum í
íslensku efnahagslífi og sveiflum
á gjaldmiðlinum. Fyrirsjáanleg
afleiðing þessa er tímabundinn
þrýstingur til lækkunar á geng-
inu meðan sú þróun gengur yfir.
Hér vaknar sú spurning hvort
ekki sé hægt að gera samkomulag
við þessa aðila sem gæti haft þau
áhrif að þeir sjái hag sínum best
borgið með því að halda þessu
fjármagni í landinu næstu árin.
Slík aðgerð myndi takmarka
hættuna á veikingu íslensku krón-
unnar.
Í dag eru orkufyrirtæki okkar í
ákveðnum vandræðum með að
fjármagna mikilvægar fram-
kvæmdir vegna aðstæðna á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
Við þessar aðstæður væri æski-
legt að semja m.a. við eigendur
krónubréfanna um að í stað þess
að þessum fjárhæðum væri á
næstu misserum snúið í erlendan
gjaldeyri og hann fluttur úr land-
inu yrði þetta fjármagn lánað til
framkvæmda innanlands. Slík lán
gætu eftir atvikum þurft að vera
með ríkisábyrgð eða
möguleika á að breyta
þeim í hlutafé í viðkom-
andi fyrirtækjum eða
verkefnum eftir tiltekinn
tíma.
Lausn af þessum toga
gæti leyst tvö vandamál í
senn. Fjármagnið gæti
gert gæfumuninn í því að
ekki þyrfti að tefja fram-
kvæmdir við byggingu
nýrrar stóriðju og tengdra virkj-
ana. Jafnframt yrðum við ekki
fyrir tímabundnum erfiðleikum
við að greiða þessar kröfur út í
erlendum gjaldeyri með tilheyr-
andi þrýstingi á gengið. Ávinn-
ingur þeirra sem fjármagnið eiga
liggur í góðri langtímaávöxtun í
traustum verkefnum.
Við stöndum á miklum tíma-
mótum í efnahagsmálum og
umræða um framtíðargjaldmiðil
landsins er knýjandi. Almennt er
óumdeilt að minnkandi tiltrú er á
að hægt verði að byggja á krón-
unni sem framtíðargjaldmiðli
þjóðarinnar.
Langtímalausn þarf að liggja
fyrir í þessu máli áður en langt
um líður. Til skamms tíma er hins
vegar mikilvægast að stöðva
verðbólgu og lækka vexti. Sterk-
ari króna er lykilatriði í því sam-
hengi.
Atvinnusköpun er okkur einnig
gríðarlega mikilvæg á komandi
misserum vegna þess samdráttar
sem framundan er í landsfram-
leiðslunni.
Ofangreindar hugmyndir taka
á öllum þessum þáttum; vinna
gegn þrýstingu á krónuna og
tryggja fjármögnun mikilvægra
verkefna sem eru atvinnuskap-
andi og framleiðsluhvetjandi.
Hér þarf að hafa snör handtök.
Höfundur er alþingismaður.
Snar handtök
UMRÆÐAN
Stefán Eiríksson skrifar
um kynbundið ofbeldi
Stefna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
hefur frá stofnun emb-
ættisins verið að auka
öryggi og öryggistilfinn-
ingu íbúa. Til þess að
vinna að þessum mikil-
vægu markmiðum hefur verið
horft til nokkurra lykilatriða á
sviði löggæslu, eins og t.d. aukins
sýnileika lögreglu og öflugrar
hverfa- og grenndarlöggæslu.
Þegar kemur að rannsóknum saka-
mála er að því unnið að auka gæði
og skilvirkni rannsókna með
ýmsum hætti, þar á meðal aukinni
sérhæfingu og markvissri grein-
ingarvinnu. Þessir þættir ásamt
mörgum öðrum skipta miklu máli
ef árangur á að nást.
Lögreglan og raunar réttarkerf-
ið í heild hefur á liðnum árum
verið gagnrýnt fyrir frammistöðu
sína vegna meðferðar kynferðis-
brotamála. Þessi gagnrýni hefur
að mörgu leyti verið réttmæt. Til
þess að auka gæði og skilvirkni á
þessu sviði sérstaklega var við
stofnun LRH ákveðið að setja á
laggirnar sérstaka rannsóknar-
deild sem hefði það hlutverk að
rannsaka kynferðisbrot. Það var
mat embættisins að með stofnun
sérstakrar rannsóknardeildar
mætti bæði auka gæði og skil-
virkni rannsókna á þessu
flókna og erfiða sviði og
um leið tiltrú almennings
og einkum þolenda kyn-
ferðisbrota á getu og
áhuga lögreglu til að tak-
ast á við rannsóknir þess-
ara alvarlegu brota. Margt
bendir til að það hafi geng-
ið eftir.
Hjá LRH er nú unnið að
endurskoðun á skipulagi
rannsóknardeildar embættisins, í
samræmi við stefnu embættisins
og með hliðsjón af gildistöku
nýrra laga um meðferð sakamála.
Í þeirri vinnu er m.a. horft til auk-
innar sérhæfingar á ýmsum svið-
um, aukinnar samvinnu milli ein-
inga og aðgerða gegn skipulagðri
glæpastarfsemi. Eitt af því sem
nú er til skoðunar er að auka
áherslu embættisins á rannsóknir
heimilisofbeldismála, m.a. með
það að markmiði að grípa mun
fyrr til aðgerða en áður á þessu
viðkvæma og mikilvæga sviði.
Markmið slíkra breytinga er að
koma í veg fyrir áframhaldandi
heimilisofbeldi, auka gæði og skil-
virkni rannsókna og um leið tiltrú
almennings á lögreglu. Vonir
standa til að tillögur að nýju skipu-
lagi verði kynntar dóms- og kirkju-
málaráðherra um næstu áramót
og breytingar á skipulagi taki í
kjölfarið þegar gildi.
Höfundur er lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu.
Rannsóknir á kynferð-
is- og heimilisofbeldi
SIGMUNDUR GUÐ-
BJARNASON
JÓN GUNNARSSON
STEFÁN EIRÍKSSON
Umsóknarfrestur er til 15. desember
Kynntu þér námið á www.idnfraedi.is
IÐNFRÆÐI VIÐ HR
Iðnfræði er hagnýtt 45 eininga nám á háskólastigi. Markmið námsins er að styrkja stöðu
nemenda á vinnumarkaði og gera þá hæfari til að takast á við fleiri og fjölbreyttari störf.
Iðnfræði er eingöngu kennd í fjarnámi og er gert ráð fyrir að námið taki þrjú ár samhliða
vinnu.
Námið skiptist í þrjú svið: Byggingariðnfræði, rafiðnfræði og véliðnfræði. Skilyrði fyrir
inngöngu er iðnmenntun.
Í iðnfræðináminu bæta nemendur verulega við þekkingu og færni á sínu fagsviði, en náminu
lýkur með lokaverkefni þar sem þeir sýna fram á verkþekkingu og faglega hæfni við tækni-
legar úrlausnir í hönnun, skipulagningu og þróun.
Iðnfræðingar geta bætt við sig 15 einingum í rekstrargreinum og útskrifast sem rekstrar-
iðnfræðingar.
NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ STYRKJA STÖÐU SÍNA Á VINNUMARKAÐI