Fréttablaðið - 12.12.2008, Page 66
42 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Spilarðu
óskalög?
Jói, ég held
að það sé
eitthvað að
gerast!
Eitthvað að
ske? Ertu að
segja að þetta
sé að gerast!?
Jáa
ALLT Á FULLT!
Þetta var bara æfing
til að sjá hvort hann
væri nógu snöggur að
pakka því niður sem við
þurfum!
Stóð
hann
sig?
Þarf ég á boltapumpu
og grilltöng að halda?
Við
skulum
vona
ekki!
Palli, ég var
að pæla í að
fara í feðga-
veiðiferð.
Það
hljómar
vel!
Finnst þér
ekki? Ja, nema
að...
Nema
hvað?
Ég hélt að
afi væri
dáinn.
Ég meina mig
og þig!
Borða. Labba. Leika. Sofa. Ég er
hundur
með
einfaldar
þarfir.
Mamma,,
ég held
að Hann-
es hafi
verið að
æla!
Ha?
Hvenær?
Bara núna. Þetta er mjög
ógeðslegt... hvítt dót með
gulum klessum í, litlir
grænir boltar við hliðina
sem eru svolítið eins og
baunir.
Bíddu, hvar sástu
þetta?
Á diskn-
um hans,
á eldhús-
borðinu.
Þetta er
ekki æla
- þetta er
maturinn
hans!
Í alvöru? Nú
held ég að
ég sé að fá í
magann!
Horfðu á björtu hliðarnar“ sungu fjandvinirnir Stefán Hilmarsson og Sverrir Stormsker fyrir margt löngu.
Enn fyrr höfðu ensku æringjarnir í Monty
Python-hópnum hvatt alla til að „Always look
on the bright side of life“, og þannig tekið
enn dýpra í árinni. „Eru álfar kannski
menn?“ velti Magnús Þór Sigmundsson fyrir
sér, en það er önnur saga og flóknari.
Ég kýs að hlíta tilmælum þeirra
fyrrnefndu á séríslenskan hátt, með
gamaldags, sígildri afneitun. Ég
horfi á björtu hliðarnar með
því að neita staðfastlega að
trúa því, sem víða hefur komið
fram í fréttum síðustu daga, að
landsmenn ætli sér að viðhalda
jólagjafabrjálæðisstigi síðustu ára nú
í miðri efnahagskreppu. Í mínum huga
er málið einfalt. Þjóðin hlýtur hrein-
lega að vera nægilega skynsöm til að
átta sig á því að það er margt, allt!, þarfara
við aurana að gera nú fyrir jólin en að
spreða þeim í jólagjafir í tugatali.
Þú og ég, diskógrúppan góða, gerði vel í að
skilja kjarnann frá hisminu:
„þetta aðfangadagskvöld
fyrsta aðfangadagskvöld
er enn barnahátíðin mest,
la la la la, barnahátíðin best.“
Höfum það í huga að jólin eru fyrst og
fremst fyrir börn. Ekki svokölluð „jólabörn“,
sem er í raun fínt orð yfir seinþroska
fullorðið fólk, heldur alvöru börn á leik- og
grunnskólaaldri.
Gerum því vel við börn og maka þessi
jólin, og jafnvel ung skyldmenni ef þess er
þá kostur. Ef eitthvað er aflögu er ekki úr
vegi að gefa þær krónur í hjálparstarf.
Aurarnir gera meira gagn þar en í formi
kertastjaka handa Lovísu langömmusystur
eða geisladisks handa Bödda bekkjarbróður.
Búum til betri jólabörn
NOKKUR ORÐ
Kjartan
Guðmundsson