Fréttablaðið - 23.12.2008, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Maríanna Clara Lúthersdóttir hefur fyrir hefð að baka sörur fyrir jólin ásamt vinkonu sinni Esther Talíu Casey leikkonu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Við Esther vinkona höfum notað
nýjar söru-uppskriftir fyrir hver
jól. Af einhverjum ástæðum
hefur samt alltaf eitthvað farið
úrskeiðis í bakstrinum; mæling-
arnar ekki staðist eða eitthvert
hráefni sem hefur vantað,“ segir
Maríanna og bætir við að yfir-
leitt fari þó allt að lokum vel.
„Kökurnar hafa að minnsta kosti
alltaf verið dásamlegar.“
Fyrir þessi jól fóru þær vin-
konurnar eftir uppskrift frá
Baldri Trausta Hreinssyni leik-
ara. „Hún á að vera alveg stór-
kostleg. Uppskriftin fór hins
vegar eitthvað úrskeiðis sem
endranær. Við ætluðum að tvö-
falda hana en fjórfölduðum óvart
eggjamagnið. Til að vega upp á
móti því skundaði ég út í búð og
keypti meira af flórsykri og
möndlum, þó ekki til jafns við
eggin. Ég veit ekki alveg hvert
endanlegt magn af hráefni var en
kökurnar urðu samt frábærar að
vanda.“
Maríanna bætir við að þær hafi
líka ætlað að tvöfalda magnið af
suðusúkkulaði en fjórfölduðu það
óvart líkt og eggin. „Ætli niður-
staðan sé því ekki bara sú að við
sörugerð skipti mestu máli að
leggja í þær nógu mikla ást og
gleði. Þá sleppur þetta greinilega
alveg fyrir horn þótt uppskriftin
sé ekki hundrað prósent rétt,“
segir hún og hlær.
Maríanna viðurkennir að vera
almennt ekki liðtæk í eldhúsinu.
Hins vegar lumi hún á ýmsum
ráðum sem hafi reynst henni vel
í gegnum tíðina, meðal annars sé
tilvalið að nota nógu mikið af
góðu súkkulaði í eftirrétti. „Það
er aldrei hægt að fá of mikið af
góðu súkkulaði, til dæmis suðu-
súkkulaði eða súkkulaði með app-
elsínubragði. Það svínvirkar.“
Uppskrift Maríönnu er á síðu 2.
roald@frettabladid.is
Allt fer að lokum vel
Maríanna Clara Lúthersdóttir leikkona bakar sörur fyrir hver jól ásamt vinkonu sinni Esther Talíu Casey.
Hún segist þó alls ekki vera liðtæk í eldhúsinu og gengur því oft á ýmsu meðan á bakstrinum stendur.
JÓLATÓNLEIKAR verða haldnir í Jólaþorpinu í
Hafnarfirði á Þorláksmessu frá klukkan 18 til 22. Kvöld-
ið er tileinkað ABC barnahjálp en meðal flytjenda eru
Frostrósir og söngkonurnar Lay Low og Regína Ósk.