Fréttablaðið - 23.12.2008, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2008 11
VINNUMARKAÐUR Frestur til
framboðs á uppstillingarlista
kjörstjórnar VR rann út á hádegi
í gær. Eitt framboð barst og var
það frá Gunnari Páli Pálssyni,
formanni VR. Hann er því
sjálfkjörinn á lista uppstillingar-
nefndar. Í sjö sæti á lista til
stjórnar bárust fimmtán framboð
og verða greidd atkvæði um þau í
janúar.
Athygli vekur að hvorki Lúðvík
Lúðvíksson né Kristófer Jónsson,
starfsmenn Mest, sem fóru fyrir
mótmælum gagnvart VR í haust,
buðu sig fram. Kristófer segir að
stefnt sé að því að koma með
heilan framboðslista í janúar,
nægur sé áhuginn í félaginu.
Hann segir ekki ákveðið hver
bjóði sig fram til formanns. - ghs
Framboðsmál í VR:
Koma með heil-
an lista í janúar
ÆTLA FRAM Í JANÚAR Lúðvík Lúðvíks-
son og Kristófer Jónsson, starfsmenn
Mest, ætla að koma fram með heilan
framboðslista í janúar.
STJÓRNSÝSLA Verið er að kanna
hvort starfsmaður hafi framið
trúnaðarbrot í opinberu starfi með
þeim afleiðingum að upplýsingar
úr bókhaldi embættis forseta
Íslands komust til fjölmiðla. Þetta
kemur fram í bréfi ríkislögreglu-
stjóra til dómsmálaráðherra.
„Ég hef ekki farið fram á neina
opinbera rannsókn í þessu máli,“
segir Örnólfur Thorsson forseta-
ritari. Hann vildi ekki tjá sig um
hvort einhvers konar athugun eða
könnun á málinu væri í gangi, eins
og ríkislögreglustjóri fullyrðir.
Ríkislögreglustjóri sendi dóms-
málaráðherra bréf 17. desember
síðastliðinn, í kjölfar færslu á vef
Össurar Skarphéðinssonar iðnað-
arráðherra. Þar sagði Össur for-
setann glíma við áhlaup óvildar-
manna, sem hafi komist yfir stolin
gögn úr stjórnsýslunni, og spyr
hvers vegna ríkislögreglustjóri
rannsaki ekki málið.
Fréttastofa Stöðvar 2 flutti í
byrjun desember fréttir af ýmsum
útgjöldum forsetaembættisins.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir
aðstoðarríkislögreglustjóri hafði
samband við forsetaritara vegna
málsins, segir í bréfi ríkislög-
reglustjóra. Þar er haft eftir for-
setaritara að ekki standi til að leita
til lögreglu vegna meints upplýs-
ingaleka úr bókhaldi embættisins.
Þar segir enn fremur að verið sé
að kanna hvort trúnaðarbrot í
opinberu starfi hafi átt sér stað
um meðferð upplýsinga í bókhaldi.
Hafi forsetaritari verið í sam-
bandi við fjársýslustjóra vegna
málsins.
Þetta vildi Örnólfur forsetarit-
ari ekki staðfesta í samtali við
Fréttablaðið í gær, og sagði aðeins
að hann væri í reglulegu sambandi
við Fjársýslu ríkisins.
„Það liggur fyrir að það voru
birtar einhverjar upplýsingar, en
hvaðan þær komu höfum við ekki
hugmynd um,“ segir Gunnar H.
Hall fjársýslustjóri. Hann segir
enga rannsókn í gangi innan fjár-
sýslunnar. Þar treysti menn á að
þetta gerist ekki aftur. - bj
Kannað hvort birting upplýsinga úr bókhaldi forsetaembættisins sé trúnaðarbrot, segir ríkislögreglustjóri:
Forsetaritari kannast ekki við rannsókn
SÍMREIKNINGAR Í fréttum Stöðvar 2
kom meðal annars fram að símreikning-
ur forsetaembættisins væri 5,7 milljónir
fyrir fyrstu tíu mánuði ársins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra segir að sér hafi ekki
verið kunnugt um að breska
fjármálaeftirlitið
hafi verið
reiðubúið að
heimila yfir-
færslu Icesave-
reikninga
Landsbankans í
breska lögsögu
gegn 200 milljóna
punda fyrir-
greiðslu.
Á þann veg
svarar hann fyrirspurn Sivjar
Friðleifsdóttur Framsóknar-
flokki.
Siv spurði Geir líka hvort
embættismenn eða ráðgjafar
ráðherra hafi haft vitneskju um
málið. „Ekki svo ráðherra hafi
verið kunnugt,“ svarar hann. - bþs
Forsætisráðherra um Icesave:
Vissi ekki um
tilboð Bretanna
GEIR H. HAARDE
Mesta fjölgunin á árinu
Íbúum Reykjanesbæjar fjölgaði um
952 á árinu, eða 7,2 prósent, og
eru þeir nú 14.208. Þetta er mesta
fjölgun íbúa á landinu. Miðað er við
íbúafjölda 1. desember hvort ár.
REYKJANESBÆR
NOREGUR Bankastjórn Noregs-
banka hefur ákveðið að lækka
stýrivexti um 1,75 prósentustig
eða niður í 3,0 prósent. Stjórn-
málamenn lýstu yfir ánægju sinni
með vaxtalækkunina og kröfðust
þess að bankarnir fylgdu þétt í
fótspor Noregsbanka og lækkuðu
vexti.
Forsvarsmenn í atvinnulífinu
óskuðu þess að stýrivextir myndu
lækka niður í 2,0 prósent, að sögn
norska ríkisútvarpsins NRK.
Stýrivextir hafa lækkað hratt í
Noregi að undanförnu, en með því
er verið að bregðast við hættunni
á efnahagssamdrætti. Þeir voru
tæp 6 prósent í september. - ghs
Stýrivextir í Noregi:
Hafa lækkað í
3,0 prósent
Vill banna lakkríspípur
Finnar vilja gera Finnland tóbakslaust
árið 2040. Vinnuhópur leggur til að
banna innflutning á munntóbaki
og allt sælgæti sem lítur út eins og
tóbak, til dæmis lakkríspípur.
FINNLAND