Fréttablaðið - 23.12.2008, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2008 5þorláksmessa ● fréttablaðið ●
Laugavegurinn iðar af lífi á
Þorláksmessukvöld og er
stemmingin jafnan einstök.
Búðargluggarnir skarta sínu
fegursta og fólk komið í jóla-
skapið.
„Starfsfólk sem er hætt að vinna
hjá mér biður jafnan um að fá
að vinna á Þorláksmessu því það
er svo gaman og góð stemming,“
segir Svava Eyjólfsdóttir, eigandi
herrafataverslunar Guðsteins á
Laugavegi. Svava er barnabarn
Guðsteins sjálfs og hefur því eytt
Þorláksmessukvöldum í búðinni
síðan hún man eftir sér.
„Þetta er fjölskyldufyrirtæki
og verður eins og annað heim-
ili mitt fyrir jólin. Hingað kemur
fólk sem tengist fjölskyldunni og
fær sér hressingu uppi hjá okkur
og svo er alltaf einstök stemm-
ing niðri í búðinni. Allt gengur vel
fyrir sig þó mikið sé að gera því
það liggur svo vel á öllum.“
Verslunin var stofnuð árið 1918
af Guðsteini Eyjólfssyni og vann
Eyjólfur sonur hans og faðir Svövu
við hlið hans í búðinni frá barn-
æsku. Svava er því þriðji ættliður
sem tekur við. Hún segir verslun-
ina hafa átt sína fastakúnna gegn-
um árin en á Þorláksmessu reki ný
andlit inn nefið.
„Fyrir jólin eru viðskiptavin-
irnir á öllum aldri að kaupa gjafir.
Við höfum einbeitt okkur að eldri
kynslóðinni en við erum alltaf með
úrval fyrir yngri líka. Mér finnst
sérstaklega ánægjulegt hvað unga
kynslóðin kemur vel fyrir og kann
að meta þetta gamla sem er búið
að vera til lengi.“
Á Þorláksmessukvöld segir
Svava það helsta sem fólk kaupi
í jólapakkana vera smávöru eins
og bindi og náttföt sem fljótlegt er
að velja. Sjálf segist hún þó leita
annað í jólagjafainnkaupum sínum
en í hillurnar í eigin verslun og er
mikið fyrir að gefa bækur í jóla-
gjöf. Hún segir viðskiptin ávallt
ganga ánægjulega fyrir sig á Þor-
láksmessukvöld.
„Ég er með góðan hóp starfs-
fólks og svo er fólk bara svo glatt
og ánægt þennan dag. Allir eru
komnir í jólaskapið.“
- rat
Svava Eyjólfsdóttir, eigandi herrafataverslunar Guðsteins á Laugavegi, er barnabarn
Guðsteins sjálfs. Hún hefur eytt Þorláksmessukvöldum í versluninni síðan hún man
eftir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þorláksmessa alltaf einstök
„Við hjónin erum vön að fara til
systur minnar, Hörpu Harðar-
dóttur, og mágs, Brynjars Freys
Stefánssonar, í skötuboð í há-
deginu. Allt verður þá að vera
frágengið svo jólin geti byrjað á
Þorláksmessu,“ segir Ólöf Kol-
brún Harðardóttir, óperusöng-
kona og -kennari, sem hlakkar
mikið til skötuveislu í dag þar
sem um tuttugu vinir og vanda-
menn ætla að hittast og hafa
það gott.
„Við borðum saman allar
mögulegar tegundir af skötu
sem hafa verið sérvaldar ofan í
mannskapinn. Með þessu er svo
borin fram heimagerð hamsa-
tólg, gerð í september þegar
slátur er tekið, en þá er mör-
inn bræddur. Þetta er eigin-
lega aldrei borðað eftir það á
árinu, ja nema við sérstök til-
efni. Þarna er líka vestfirskur
hnoðri, sem er of úldinn fyrir
minn smekk.“
Ólöf segist snemma hafa
lært að meta skötuna. „Ég lærði
að borða skötu hjá föðurafa
mínum, Haraldi Jónssyni prent-
ara, sem borðaði hana á laugar-
dögum. Þar sem ég söng í Þjóð-
leikhúsinu á sínum tíma var líka
til siðs að bera fram skötu og
saltfisk í mötuneytinu um helg-
ar allt starfsárið um kring.“
Foreldrar Ólafar tóku svo
upp á því að hafa skötu á Þor-
láksmessu þegar hún komst á
fullorðinsár og hélst sá siður á
meðan faðir hennar hélt heilsu.
„Harpa og Brynjar tóku síðan
við og taka alltaf höfðinglega á
móti öllum mannskapnum. Dag-
urinn hefur síðan smám saman
undið upp á sig og gestunum
fjölgað. Farið er í skemmtilega
selskapsleiki, þar sem gestir
þurfa að þola góðlátlegt grín.
Ekki er annað hægt að segja en
þetta sé virkilega skemmtileg-
ur eftirmiðdagur í faðmi þeirra
Hörpu og Brynjars á Þorláks-
messu.“ - rve
Ætlar í veglega veislu
Ólöf ætlar í skötuveislu til systur
sinnar og mágs í dag þar sem meðal
annars verður farið í alls kyns sel-
skapsleiki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Dreifingaraðili:
Fæst í verslunum um land allt
Nú er komið af því loksins á Íslandi
Stelpur á móti strákum
Inniheldur:
1200 spennandi spurningar fyrir stelpur og stráka
2 teningar fylgja
Hægt er að spila án spilaborðs
Hva
ð my
nda
r bó
ksta
finn
O í
plak
ati
kvik
myn
dari
nna
r Th
e sim
pso
ns M
ovie
? Hvert var söluhæsta ítalska
tískuvörumerki heims árið 2007?
Hvaða söng-og leikkona
kallaði fyrsta ilmvatnið
sitt Glow?
Hva
ða ís
lens
ka h
ljóm
svei
t
sön
g um
kind
ina E
inar
?