Fréttablaðið - 23.12.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.12.2008, Blaðsíða 8
8 23. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR 1. Hvaða leikhúsmaður ætlar að reka leikhús í Loftkastalan- um? 2. Hvað er Fjarðarpósturinn gamall um þessar mundir? 3. Hvað heitir forstöðumaður Litla-Hrauns? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38 ALÞINGI Lögum um eftirlaun þing- manna, ráðherra og hæstaréttar- dómara var breytt í gær. Helstu breytingar eru þær að aldurslágmark til töku eftirlauna hækkar úr 55 árum í 60, réttinda- ávinnsla lækkar í 2,375 prósent úr þremur prósentum hjá þingmönn- um og sex prósentum hjá ráðherr- um og hæstaréttardómurum, ekki má taka eftirlaun og njóta samtím- is launa frá ríkinu og sérákvæði um forsætisráðherra hafa verið felld brott. Lögum um eftirlaun þessara hópa var síðast breytt 2003 við hávær mótmæli þá og allar götur síðan. Í athugasemdum frumvarpsins, sem kom fyrir þingið fyrir átta dögum, segir að þó of snemmt sé að segja til um hvort markmið þau sem stefnt var að með lögunum 2003 hafi náðst að fullu sé ljóst að tilteknar hliðar á eftirlaunakerfi æðstu embættismanna þjóðarinn- ar mæti ekki almennum skilningi í þjóðfélaginu. Við því þurfi að bregðast, meðal annars til að varð- veita nauðsynlegt traust milli almennings og ráðamanna. Nýju lögin, sem samþykkt voru síðdegis í gær, taka gildi 1. júlí á næsta ári. Er það gert til að veita þeim hópum sem í hlut eiga „ákveð- inn aðlögunartíma“ eins og það er orðað. Þrjátíu og sjö stjórnarþingmenn, auk Sivjar Friðleifsdóttur Fram- sóknarflokki, greiddu frumvarp- inu jákvæði. Aðrir stjórnarand- stæðingar sátu hjá nema Kristinn H. Gunnarsson, Frjálslynda flokknum, sem var á móti. Stjórn- arandstöðuflokkarnir sameinuðust um breytingartillögu í þá átt að fella þingmenn, ráðherra og hæsta- réttardómara undir A-deild Líf- eyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Enn njóti þessir hópar forréttinda, einkum þeirra að réttindaávinnsla þeirra er meiri en almennt gerist. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sem hafði á stefnuskrá sinni fyrir síð- ustu kosningar að fá lögunum breytt sagði mikil tímamót felast í samþykkt málsins, enda væru rétt- indi ráðherra og þingmanna til eft- irlauna takmörkuð verulega. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður flokksins, sagði vel koma til greina að fara að vilja stjórnarandstöðu- flokkanna síðar. Það þurfi að skoða vel. Hugsanlegt er að laun þing- manna, ráðherra og hæstaréttar- dómara hækki í kjölfar gildistöku nýrra eftirlaunalaga. Í lögum um kjararáð er kveðið á um að við ákvörðun launa þeirra hópa sem það fjallar um skuli taka tillit til lífeyrisréttinda. Guðrún Zoëga, formaður kjararáðs, kvaðst ekki vilja tjá sig um hvort hækka þyrfti launin en ljóst væri hvað stæði í lögunum. Málið yrði ekki tekið til skoðunar strax þar sem eftirlauna- lögin tækju ekki gildi fyrr en um mitt næsta ár. bjorn@frettabladid.is Dregið úr forréttindum Eftirlaunakjör þingmanna hafa verið færð nær þeim sem almenningur nýtur. Hugsanlegt er að laun þingmanna hækki við rýrari eftirlaunaréttindi. Á ALÞINGI Þingmenn breyttu lögum um eigin eftirlaun í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNMÁL Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, mun fara í launalaust leyfi frá störfum borgarstjórnar eftir áramót. Hann greindi frá þessu á bloggsíðu sinni í fyrrakvöld. Gísli hefur stundað nám í borgarfræðum við Edinborg- arháskóla síðan í haust og mætt á rúmlega helming borgarstjórnar- funda á þeim tíma. Gísli segir að næsta önn verði snúnari í skólanum og meira verði um álag. Auk þess vilji hann sleppa við tíð ferðalög milli landa. Sif Sigfúsdóttir mun taka sæti Gísla í borgarstjórn fram á sumar. - kg Gísli Marteinn Baldursson: Tekur sér launalaust leyfi SAMGÖNGUR „Ég er engu nær eftir þennan fund,“ segir Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Samgönguráðuneytið stóð í gær fyrir fundi með þeim starfsmönn- um flugleiðsöguþjónustunnar sem flytjast áttu til Flugstoða um ára- mót. Þar var þeim tilkynnt að til stæði að þeir flyttust til Keflavík- urflugvallar ohf. Félag flugumferðarstjóra hefur gert alvarlegar athugasemdir við að félagsmenn verði fluttir til hins nýja félags án samráðs. Loftur segir að fyrir liggi samn- ingur frá janúar 2007 milli flug- umferðarstjóra og Flugstoða og með honum séu lífeyrisréttindi þeirra tryggð. Gera þarf sams konar samning við Keflavíkurflugvöll ohf. ef þeir flugumferðarstjórar sem starfa við flugleiðsöguþjónustu eiga að taka til starfa hjá nýju félagi eftir áramót eins og samgönguráðu- neytið boðar, segir Loftur. „Eins og staðan er í dag er ég bjartsýnn á að það takist,“ segir Loftur. Engin ástæða sé til að ætla að Keflavíkurflugvöllur ohf. vilji ekki semja á sömu nótum og Flug- stoðir. Þar sem samningurinn við Flugstoðir sé til staðar sé fyrir- myndin tilbúin, aðeins þurfi að skipta um nafn á fyrirtækinu og skrifa undir nýjan samning. Ekki náðist í Kristján L. Möller samgönguráðherra við vinnslu fréttarinnar í gær. - bj Semja þarf um lífeyrismál við flugumferðarstjóra fyrir áramót, segir formaður FÍF: Bjartsýnn á að takist að semja LÍFEYRISMÁL Félag flugumferðarstjóra gerir alvarlegar athugasemdir við að flytja eigi starfsmenn til Keflavíkurflug- vallar ohf. án þess að samið sé um lífeyrismál. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl- maður, Andri Þór Eyjólfsson, hefur verið dæmdur í tveggja ára fang- elsi fyrir að reyna að smygla tæpum þremur kílóum af amfetamíni til landsins. Maðurinn tók á móti fíkniefnun- um í Amsterdam. Síðan fór hann með flugi til Parísar. Tollverðir fundu svo efnin falin undir botni í ferðatösku mannsins við komu hans á Keflavíkurflugvelli. Fíkniefna- leitarhundur hafði þá gert viðvart um að hann hefði fíkniefni meðferð- is eða hefði komist í tæri við þau. Maðurinn bar fyrir dómi að hann hefði skuldað um 800 þúsund krón- ur vegna fíkniefnakaupa. Hann hefði ekki átt peninga til að borga hana. Hefðu hann og fjölskylda hans sætt hótunum af þessum sökum. Sá sem hann skuldaði hefði boðið honum upp á þann kost að skuldin yrði felld niður tæki hann að sér að flytja fíkniefni til lands- ins. Fíkniefnin voru vandlega falin í töskunni. Í botninum hafði verið komið fyrir hörðu spjaldi úr plasti. Undir því voru tvær fíkniefna- pakkningar vandlega límdar við botn töskunnar. Maðurinn á langan sakaferil að baki. - jss Smyglaði amfetamíni til að borga fíkniefnaskuld: Burðardýr inni í tvö ár LÖGREGLUMENN Tveir piltar voru handteknir í Hlíðunum í gær en í bíl þeirra fundust fíkniefni. Um var að ræða rúmlega 100 grömm af marijúana og viðurkenndi annar piltanna að það væri ætlað til sölu. Sá hinn sami hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Lögreglan minnir á fíkniefna- símann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. - jss Höfuðborgarsvæðið: Fíkniefnasali handtekinn VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.