Tíminn - 25.07.1982, Blaðsíða 5

Tíminn - 25.07.1982, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982. 5 LOGANDI RAUÐUM ævir fjögurra drykkjumanna í skáldastétt ■ Nei, þetta er engin venjuleg ruslakompa á bak við hurðina þá arna: Hér undir lágreistri súð í „Fjalakettinum" við Aðalstræti, stóð dánarbeður Sigurðar Breiðfjörð að því best er vitað. Hér mun hann hafa ort svanasöng sinn árið 1846: „Sál mín þú líkjast svani skalt þeim hvíta.“ (Ljósra. Ari Kárason). „Þá var annað þegar í ranni Dana dansa vann við drósimar og dægur fann þar ununar.“ í Kaupmannahöfn kynntist hann nýjum skáldskaparstraumum sem seinna áttu eftir að setja mark sitt á skáldskap hans. En eftir fjögurra ára útivist hélt hann á ný til íslands. Sú iðn sem hann hafði lært leiddi sjálfkrafa til þess að húsbændur hans urðu kaupmenn og faktorar, danskir og íslenskir og skemmtistaðirnir búðarhol- urnar með brennivínstunnum og leka- byttu, dramblátum verslunarþjónum og þyrstum sjómönnum. Hann kom til íslands árið 1818 og gerðist beykir á ísafirði. Innan stundar var hann orðinn kunnur þar fyrir kveðskap sinn, en hann var ekki illskældinn og orti sjaldan níð um menn. Þó á hann að hafa drepið þar danska tík, svarta, sem honum var mjög illa við með því að ljóða á hana. Var því trúað á eftir að hann væri kraftaskáld. Þegar á ísafirði safnaði hann skuldum vegna drykkjuskapar síns og sá klafi átti eftir að fylgja honum æ síðan. Frá ísafirði lá leiðin til Stykkishólms og þá til Reykjavíkur. Þaðan vildi hann komast til Vestmannaeyja í beykisstarf, en fékk ekki fararleyfi vegna skulda sinna. Sneri hann sig út úr því með að selja jarðarpart vestra úr föðurleifð sinni, sem þá mun annars hafa verið að heita alveg upp urin. Hjónaband Sigurður Breiðfjörð varð skjótt þekkt- ur í Eyjum sem annars staðar, bæði vegna skáldgáfu sinnar og ofdrykkju og enn lá það orð á hver kvennamaður hann væri. Hann var nú 26 ára að aldri og reyndist mikill fagnaðarauki í samkvæmislífinu, meðan hann var í Eyjum. Hann orti að sjálfsögðu for- mannavísur Vestmannaeyinga og lagð- ist með tveimur konum og átti barn með báðum á sama árinu. Þegar fé þraut voru jafnan nógir að víkja að honum staupi eða bita fyrir góða vísu. í Vestmannaeyjum kvæntist hann Sigríði nokkurri Nikulásdóttur og átti við henni bam. Gengu þau í heilagt hjónaband árið 1826. Staða hins ráð- setta manns átti þó ekki við skáldið og 1828 flyst hann frá Eyjum og skildi konuna eftir. Þjóðsagan sagði að hann hefði selt hana fyrir danskan hund! En ekki var bitið úr nálinni með hjónaband- ið, þótt svo færi að Sigríði sæi hann ekki framar. Grænlandsför Um þetta leyti mátti taka einskonar „pungapróf" í lögum frá Kaupmanna- hafnarháskóla og fengu sumir sýslu- mannsembætti á íslandi út á slíkt próf. Datt nú Sigurði í hug að sigla á ný og gerast máske sýslumaður á íslandi að því loknu. Fyrirætlunin virðist óðs manns æði og engum nema þeim sem gæddur var ímyndunarafli skáldsins gat dottið slík fásinna í hug. Sigldi Sigurður með haustskipi 1830. Var fyrsta verk Sigurðar að kaupa sér bláan klæðisfrakka, sem var búningur menntamanna á þeirri tíð, en það varð líka eini árangur hans af menntaförinni. Hann hraktist senn út úr húsi hjá matmóður sinni Möngu kerlingu í Lille Regnegade og það við illan orðstír. Fékk hann þá leigt hjá brennivínssala einum og varð þar ölteiti mikið og fagnaður. Þar naut skáldið ástar og unaðar hjá Stínu vinnustúlku, sem var „mjúklyndasta píka.“ En um jólin var vasinn tómur, brennivínssalinn rak hann á dyr og tók af honum bláa frakkann upp í skuld. Þá tók vergjörn dönsk ekkja skáldið að sér og þáði líkamsyl hans upp í húsaleigu og fæðispeninga. En svo var ekkjunni úthýst vegna vangreiðslu á húsaleigu og skildi þar með þeim. Það var því ekki að undra að maður svo mjög á vonarvöl leitaði örþrifaráða og um vorið réðst hann sem beykir til Grænlands. Líklega eru Grænlandsárin flestum best kunn af æviárum Sigurðar og þeirra skal lítt getið hér. Þar komst hann í marga harða raun, en leið líka á ýmsan hátt betur en nokkru sinni síðar og á Grænlandi orti hann margt það besta sem eftir hann liggur. Hann átti að segja Grænlendingum til við hákarlaveiðar ásamt beykisstarfanum og mun hafa gert það, - veiddi m.a. 238 hákarla í einni veiðiförinni á fimm dögum. Auðvitað var brjóstbirtan með í þessari för sem öðrum og urðu þar „6 rommflöskur bráðkvaddar", eins og hann sjálfur segir. Sigurður kom aftur til íslands 1834 og sest að hjá frændum í Stykkishólmi. Útlegð hans var lokið og hann gat aftur vistað sig í þeim byggðum sem voru bæði böl hans og sæla. Tvíkvænismaðurinn Sigurður Breiðfjörð var nú kominn fast að fertugu, en ekki bar á öðru en að konur gætu enn kveikt í honum. Því var það að árið 1837 gengur hann að eiga Kristínu nokkra IHugadóttur, sem þótt hafði hættulegkarlmönnum, m.a. valdið hjúskaparslitum. Gekk mikið á áður en af giftingunni varð, því sterkur grunur lék á um að hið fyrra hjónaband Sigurðar væri enn í gildi. Var það hugdjörfum kapellán, Jóhanni Bjama- syni að þakka (eða kenna) að athöfnin var framkvæmd og átti hann eftir að missa fyrir kjól og kall. Þau Sigurður og kona hans settust að á Grímsstöðum á Snæfellsnesi og nutu þar ástarsælu sinnar. Hér verður fljótt farið yfir sögu: Yfirheyrslur hófust í tvíkvænismáli Sigurðar 1837, en málinu lauk 1838 í júní, eftir langt málastapp, því Sigurður þrætti fyrir réttinum, sór ranga eiða og laug eins og hann mest mátti. Var hann dæmdur til að hýðast þrisvar sinnum 27 vandarhöggum en Kristín var dæmd í hafði aðeins ógreinilegar spnrnir af þessu framtaki. í bréfum til hans út í Sórey um veturinn reyndu þeir Brynjólf- ur og Konráð með fimlegu móti að rökstyða skaðsemi áfengisdrykkju og gagnsemi bindindis. Settu þeir m.a. saman skrá um það vínmagn sem til íslands var flutt og það fé sem rann út úr landinu vegna brennivínskaupa og birtu þetta í Fjölni. Jónas hefur fylgst með þessu öllu og skrifar Brynjólfi það í janúarmánuði 1844 að hann hefði nú ekki smakkað brenriivín um skeið. Varð Brynjólfur yfir sig glaður, en Jónas tók samt hinum postulllegu bindindisprédik- unum fornvina sinna með semingi og vantrú, jafnvel ertni. Hann skrifar Brynjólfi 25. febrúar: „Hvað hófsemdarfélaginu ykkar við- víkur þá get ég gjarnan gert þér það til eftirlætis að ganga í það, - þótt mér satt að segja virðast þess konar félög hafa eitthvað hjákátlegt spíðsborgarasnið á sér. Þú getur sent mér reglumar ef þær eru búnar og sýnishorn af skuldbinding- unni, sem mér þykir sjálfsagt að verði að vera skrifleg, svo félagið standi lengur en hálfan mánuð í senn, - eins og lekandafélögin í fyrra.“ En það er skemmst frá að segja að Jónas stóð ekki lengi við þetta bindindis- fésektir. Þá var hjónaband þeirra leyst upp. Þau höfðu nú eignast barn, dreng, sem Sigurður lét heita Jens Baggesen, eftir uppáhaldsskáldi sínu dönsku. Það var ömurleg athöfn þegar yfirvöld komu að skrifa upp reiturnar á Grímsstöðum: „2 spilkomur brotnar, kaffikvarnar- garmur, rokkskrifli, tveir askar gamlir" og fleira smávægilegt í þessum dúr. Skuldir og veðbönd námu miklu meiru en verði jarðarinnar og búsmuna. Sigurður áfrýjaði héraðsdómnum til landsyfirréttar og ávannst það að vandarhöggunum var fækkað í 27 og hjónabandið skyldi ekki ónýtast. Áfrýj- aði Sigurður enn og er dómur Hæstarétt- ar kom var hann mjög á líka lund og dómur landsyfirréttar, en vardarhögg- um fækkað í 20. Með konungsnáð var loks hýðingardóminum breytt í 20 ríkisdala sekt. Allar eigur hans fóru í málarekstur þennan og drengurinn Jens Baggesen lést á fyrsja aldursári. Aftur eignaðist hann dreng með Kristínu og skírði hann sama nafni. En ást hcnnar til hans fór nú dvínandi og var hún þreytt orðin á þessu vandræðaskáldi, sem aldrei virtist ætla að verða matvinnung- ur. Þó mun nær sanni að meinleg örlög hafi flæmt Sigurð frá Grímsstöðum, því honum féll þar sjaldan verk úr hendi. Fann hann nú sem áður helst huggun í æskuvinkonu sinni, - flöskunni. Endalokin í Reykjavík Leiðin lá nú til Reykjavíkur. Þar settust þau hjón að á Seltjarnarnesi og síðar í Reykjavík, þótt þeim hefði stranglega verið bönnuð þar búseta og síðustu ár Sigurðar þar voru raunar stöðugt þvarg við yfirvöld út af öllum sköpuðum hlutum. Árið sem Sigurður kom til Reykjavík- ur að þessu sinni var þar fyrir í bænum annað skáld sem svalt tíðum heilu hungri eins og hann sjálfur og átti einnig huggun í brennivíninu eins og hann. Það var Jónas Hallgrímsson, en fundir þeirra urðu fáir, því með þeim var fjandskap- ur, vegna afstöðu til skáldskapar. Ekki mun Sigurður þó hafa borið kinnroða gagnvart háskólamanninum Jónasi, því eftir Sigurð lágu nú átta prentaðar bækur með kveðskap, en Jónas hafði aðeins birt lítils háttar í tímaritum. Árið 1842 á Sigurður í málaferlum við E. Siemsen kaupmann, en hann hafði brotið rúður í húsi hans, eftir að kaupmaður hafði neitað að fara í búð fyrir hann eftir brennivíni. Eftir langt málaþóf játaði Sigurður brot sitt og bað kaupmann fyrirgefningar, en hann sættist á málið, gegn því að Sigurður borgaði rúðumar og ómerkti gagnkæru sem hann hafði sent á kaupmanninn, þar heit sitt. Árið 1844-45 bjó hann mikið einn að sínu og ort meir en áður, - hafði verið náttúrufræðingur með Ijóðagerð í hjáverkum, en gerðist nú skáld með náttúrufræði í hjáverkum. Að dómi vina hans lifði hann hættulegu lífi. í eldinum logandi rauðum Hannes Pétursson bendir á nokkur erindi f kveðskap Jónasar sem virðast benda til illra hugboða sem hann hafði um það hvert ástríða hans kynni að leiða hann. Þar á meðal er kvæðið „Einbú- inn;“ en niðurlagsorð þess kvæðis eru þessi: „ég er einbúi nú og ég á mér nú bú í eldinum logandi rauðum.“ Merkingin sýnist auðskilin. Hannes segir: „sá er löngum situr við drykkju“ á sér bú í eldinum logandi rauðum...Jón- as kveðst búa einn í þessum eldslogum. Hinir eiga sér aðrar leiðir.“ Það dró nú að leiðarlokum. Ofan- greint erindi og ýmis önnur sem ekki eru tilfærð hér sýna að það er síst ofsögn að Jónas byggist við að stíga „hið dimma fet“ er hann nefndi svo hvað úr hverju, sem hann bar að hann hefði barið sig. Árið eftir er Sigurður enn í lögreglu- réttinum og nú er það ávísanafals sem á hann er borið, -þ.e. að hann hefði tekið án heimildar út í reikning annarra manna. Sigurður lét vegna þessa þrefs senda sér vottorð og ummæli bæði frá Eyjum og af Snæfellsnesi, þar sem ýmsir góðvinir hans báru honum hið besta söguna og meðmælabréf átti hann frá Sykurtoppnum á Grænlandi, þar sem honum var hælt á hvert reipi. Var hann kallaður á seðlum þessum „merkisskáld- ið og gáfumaðurinn Sigurður Breið- fjörð....“ „sá fluggáfaði, fjölhæfi, vel upplýsti, verðugi ljóðasmiður“ og sitt- hvað annað. Þessi gögn komu að nokkrum notum, því dómurinn var ekki harður eftir þeirra tíma mælikvarða. Meðan hann beið dómsins fór hann norður í land og það var á þeirri ferð sem hann hitti skáldbróður sinn Bólu Hjálmar og er fundur þeirra frægur orðinn. Þá hitti hann Gísla fræðimann Konráðsson í Húnavatnssýslu og tóku Húnvetningar honum með afbrigðum vel yfirleitt. Þessi ferð var líklega síðasti ljósgeislinná ævi hans. Sigurður Breiðfjörð var nú farinn að fá reglulega flogaköst sem afleiðingu ofdrykkjunnar og síðustu árin eru nánast aðeins sjúkdómssaga drykkju- mannsins. Sonur hans, Jens Baggesen, fer stundum með honum í brennivínsút- vegun fyrir föðurinn og í slíkum leiðangri er það að Sigurður kastar fram fyrriparti: „Breiðfjörð kom í búðina brennivíns að fala staup“ Drengurinn botnaði: „Flösku rak í rúðuna, rassskell átti að fá í kaup.“ Mikill fögnuður ríkti á heimilinu þetta kvöld, enda talið að skáldgáfan hefði fest rætur í brjósti Jens Baggesen. Það var þann 21. júlí sem Sigurður kvaddi þennan heim með brennivínskút- inn sér við hlið og orðinn þó of veikur til að halda brennivíninu niðri. Þetta eitt hið ástsælasta skáld af íslcnskri alþýðu fyrr og síðar beið svo vesælan dauðdaga. Það var í kytrunni sem hann dó f sem hann orti sinn svanasöng: „Sál mín þú líkjast svani skalt þeim hvita er syngjandi að dauðans porti fer, og hröð þér upp til himins Ijósa flýta, hvar þúsund fegri söngvar mæta þér.“ - AM þegar halla tók árinu 1844. Skáldskap-i ur hans segir til um það. Og Konráð Gíslason ber því einnig vitni. Hann ritar til að skýra hvers vegna Jónas gerði engum aðvart strax nóttina sem hann fótbrotnaði í stiga heima hjá sér í Sankti Pétursstræti, heldur beið morguns í herbergi sínu: „Þegar inn var komið til hans um morguninn og hann var spurður hví hann hefði ekki kallað á neinn til hjálpar, sagði hann að sér hefði þótt óþarfi að gera neinum ónæði um nóttina, af því hann vissi hvort sem væri að hann gæti ekki lifað.“ Krufningarskýrsla læknanna á Frið- riksspítala þar sem hann lá banaleguna talar sínu máli. Meðal þess er líkskurð- arhnífurinn leiddi í Ijós var alvarleg sýking í lungum og lifur eftir „langvinna áfengiseitrun." - AM ■ Jónas Hallgrimsson: I.íkskurðarhnífurinn leiddi í Ijós eyðilögð liffæri af drykkjuskap. Myndin er teiknuð af honum dánum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.