Tíminn - 25.07.1982, Blaðsíða 30

Tíminn - 25.07.1982, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982. síðara. Altént batnaði Georg eftir mjög hrottalega meðferð hvers kyns skottu- lækna og hélt enn um stjórnartaumana í áratugi. Það var ekki fyrr en um það bil 1810 sem hann varð klikkaður fyrir fullt og allt en þá var hann líka orðinn mjög gamall. { heilan áratug var Georg þriðji út úr heiminum, ráfaði um sali hallarinnar klæddur slopp, röflaði við sjálfan sig og hirti ekkert um útlit sitt. Hann var eins og Lér. Atvagl, fyllibytta, kvenna- bósi og vingull Þessi ár meðan Georg þriðji ráfaði um dimma hallarsalina í Windsor fór sonur hans með stjórnina og er Georg lést loks 1820 varð hann konungur. Georg fjórði þótti á sínum tíma ákaflega efnilegur ungur maður en hann fór illa með sig, eins og sagt er. Hann var bæði gáfaður og skemmtilegur og hafði svo sem alla burði til þess að verða fyrirtaks kóngur, el hann hefði haft einbeitni til þess. En það hafði hann ekki; aftur á móti var sagt að hann væri án nokkurs vafa besti gamanleikari og eftirherma í Evrópu og kom það ekki síst niður á aumingja föður hans. Hann var sömuleiðis átvagl og fyllibytta, kvennamaður og óáreiðan- legur vingull. Hann var fitukeppur og fór illa með fjölmargar ástkonur sínar. Einni þeirra giftist hann, frú Fitzher- bert, en það hjónaband var síðar lýst ólöglegt af þinginu og George var dauðfeginn. Hann var þá prins af Wales og þurfti einhverja virðulega prinsessu til að eignast afkomanda en ekki síður til þess að fá meiri peninga hjá þinginu. Án þess að hafa litið hana augum valdi hann Karólínu af Brunswick en varð fyrir iægilegum vonbrigðum þegar þau hittust fyrst. „Mér líður ekki vel,“ voru fyrstu orð hans við tilvonandi konu sína. „Gerðu svo vel að færa mér glas af brandí" Hún var heldur ekki hrifin af því sem hún sá - „hann er mjög feitur og ekki nærri eins fallegur og á málverkinu." Við brúðkaupið var prins- inn ofurölvi. Fýla af prinsessunni af Wales Karólína var varla ákjósanleg prins- essa af Wales. Hún var feit, gróf í fasi og ruddaleg í talsmáta, hafði þar fyrir utan ekki mikið fyrir því að þvo sér, svo oftast var af henni fyla. Eftir að hún ól dóttur Georgs í janúar 1796 bjuggu þau ekki saman og Karólína var flestum stundum á Ítalíu þar sem hún lifði í „viðbjóðslega nánu sambandi" við ítala nokkurn. Er George varð konungur þusti hún hins vegar aftur til Englands og heimtaði rétt sinn sem drottning. Georg var þá orðinn mjög óvinsæll með þegnum sínum og hinir óánægðu bundu trúss sitt við „drottninguna". George brást reiður við, lagði fram frumvarp þar hann er hann var aðeins 15 ára en þá náðist hann á hlaupum burt frá höllinni eftir að hafa reynt að stela sverði, dýrafitu og síðbuxum! í blöðum dagana eftir síðara innbrotið er skýrt frá þvi að „pilturinn Jones“ hafi haldið þvi fram við yfirheyrslur að hann hefði oft farið inn og út úr höllinni áður en hann var tekinn. Venjulega hafði hann sig á brott þegar fólk bar að, en að lokum ákvað hann að verða um kyrrt. Honum tókst að næla sér i matarbita úr búrinu og á daginn faldi hann sig undir ýmsum rúmum og legubekkjum. Eitt sinn kvaðst hann hafa „sest i hásætið , séð drottninguna og heyrt barnsgrát prinsessunnar“. Viktoria varð aftur á móti aldrei vör við „piltinn Jones“. Hún skrifaði í dagbók sina daginn eftir atburðinn: „Albert sagði mér að hann hefði heyrt, eftir að hann fór á fætur, að maður hcfði fundist undir Iegubekknum i setustof- unni minni... Við höfum síðan frétt að hann hafi komist inn í höllina einu sinni áður, að hann sé vangefinn og hafi komið fyrir forvitni sakir. Hugsa sér ef hann hefði komið inn í svefniherbergið - hvað ég hefði orðið hrædd." Þá mun sonarsonarsonardóttir hennar hafa ver- ið hugrakkari... „Ert þetta þú, Jones?“ Raunar er ólíklegt að „pilturinn Jones“ hafi verið vangefinn. Skýrslur lögreglunnar gefa til kynna að hann ■ Viktoría drottning. „Albert sagði mér...“ Æ, þetta slekt! Viktoría fékk líka heimsókn! ■ Það settist einhver deli á rúmstokkinn hjá Betu Bretadrottningu og allir urðu voða hissa og hneykslaðir. En þetta mátti Viktoria reyna líka. Þann 3ja desember 1840 birtist eftirfarandi frétt í Lundúnablaðinu The Standard: „Mikill æsingur greip um sig í Buckingham-höll i gærkveldi, eftir að ókunnungur maður hafði fundist undir legubekk i setustofu hennar hátignar." í Times var þetta i smáatriðum: „Skömmu eftir klukkan tólf fór einn þjóna hennar hátignar inn i snyrtiherbergi hennar, ásamt öðrum úr starfsliði drottningar. Er snyrtiherbergi þetta við hlið svefniherbergisins þar sem drottningin ól barn sinn fyrir skemmstu" - en þá var Viktoria nýbúin að eignast elstu dóttur sina. „Meðan þjónarnir voru þarna inni þótti þeim þeir heyra þrusk. Eftir nákvæma leit fannst grunsamlegur og skitugur náungi undir legubekk nokkrum sem hennar hátign hafði setið á aðeins tveimur klukkust- undum fyrr. Var hann undir eins dreginn fram úr felustað sínum og afhentur Stead, lögreglufulltrúa, sem þá var á vakt i höllinni.“ Innbrotsmaðurinn var 17 ára ungling- ur sem upp frá þessu var jafnan kallaður „pilturinn Jones“. í Ijós kom að þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann braust inn í höllina - rétt eins og Fagan, vonbiðill Elísabetar, virtist hann hafa það fyrir sið. Fyrsta innbrotið framdi Georg hefði látið myrða hann, höggva lt'kið í spað og grafa undir gólffjölum í höll einni. Meðferðin á Soffíu Dóróteu var þó á vissan hátt enn grimmilegri. Hann skildi við hana og lét síðan loka hana inni í Ahlden-kastala til æviloka. Soffía Dórótea var þá 28 ára gamall fjörkálfur og lifði innilokuð til sextugs. Þetta varð til þess að Georg Ágústus, sonur Georgs og Soffíu Dóróteu, lagði ofsalegt hatur á föður sinn, en óvild milli feðga virtist reyndar fylgja Han- over-ættinni. Þetta mál allt saman hcfði ef til vill átt að vekja ótta Breta við hinn nýja konung en reyndin var sú að þjóðin var alltof önnum kafin til að hlæja að honum til að mega vera að því að óttast. Georg fyrsti var mesti bjáni og hegðaði sér oft fjarska heimskulega, þó oftast hafi honum gengið gott eitt til. Ástkonur konungsins vöktu til að mynda mikla kátínu þegnanna en ekki varð betur séð en Georg kysi sér ástkonur eftir því hversu gamlar og Ijótar þær væru. Ýmist voru þær horaðar beinaslcggjur eða akfeitar hlussur, allar orðnar vel rosknar svo ekki sé meira sagt. Sem betur fer fyrir Georg varð hann lítið var við aðhlátur þegnanna því annars vegar hafði hann hvorki áhuga né getu til að fylgjast vel með málefnum Englands og hins vegar var hann í Hanover flestum stundum sem hann gat. Þar lést hann 1727 og þegnarnir voru ekki einu sinni að hafa fyrir því að fá bein bans „heim“ til greftrunar. „Sonur minn er asni, lygari, skíthæll, skepna og ég vildi hann væri dauð- ur!“ Georg Ágústus, hatursmaður föður síns, vað konungur eftir hans dag. Georg fyrsti hafði alla tíð komið í veg fyrir að sonur hans fengi nokkur áhrif að hafa á stjórn landsins en hann hafði samt sem áður öðlast nokkra reynslu af enskum stjórnmálum áður en hann varð konungur. Þar naut hann ekki síst hinnar aðlaðandi konu sinnar, Karólínu af Anspach, sem varð með tímanum vel heima í enskri pólitík og var til dæmis mikill vinur Roberts Walpole, valda- mesta stjórnmálamannsins á Bretlandi í stjórnartíð Georgs annars. (Fyrr á árum hafði Karólína haldið uppi andríkum samræðum við Leibnitz, heimspeking.) Hún var líka glaðsinna og dansfífl hið mesta, að minnsta kosti fyrr á árum, þegar hirð þeirra hjónanna hafði verið mun líflegri en hirð sjálfs konungsins, Georgs fyrsta, þar sem ríkti deyfð og drungi. Eftir að George annar varð kóngur færðist hins vegar flest í sama farið og hjá föður hans. Það varð leiðinlegt við hirðina og Karólína dansaði sjaldan. Georg varð fúll, haldinn dálitlu ofsóknaræði og fékk bókstaflega grænar bólur við að hugsa um son sinn og erfingja, Friðrik Loðvík. „Frumburður okkar,“ sagði kóngurinn, „er mesti asni, mesti lygari, mesti skíthæll og mesta skepna í veröldinni og við vildum óska að hann væri dauður!" En það fór eins og með Georg fyrsta og son hans, Friðrik Loðvík varð fljótlega vinsælli en faðir hans. „Guð minn góður,“ hrópaði kóngur. „Ég fæ alllaf í magann af vinsældum, en vinsældir Fretz fá mig til að æla!“ Georg öðrum tókst hins vegar að endurheimta nokkuð af hinum fornu vinsældum sjálfs hans árið 1743 þegar hann tók þátt í orrustu gegn Frökkum við Dettingen og hafði sigur. Hann var síðasti konungurinn sem hætti lífi sínu á orrustuvelli. Nokkru síðar sigraðist næstelsti sonur hans, hertoginn af Cumberland, á uppreisnarherjum í norðurhluta Bretlands og undir lok stjórnartíðar hans varð England hvað voldugast en þá höfðu herir þess unnið Kanada, Indland og Karabíska hafið. Sjálfur dó Georg annar 1760 úr hægðatregðu; sprakk í loft upp þar sem hann sat á konunglegu klósettinu... „Kærí Prússakóngur,“ sagði Georg III við eikartréð.. Eitt hafði Georg öðrum þótt gott. Það var þegar Friðrik Loðvík, sonur hans, dó árið 1751 og því kom aldrei til þess að hann yrði kóngur. í staðinn var það elsti sonur Friðriks, Georg Vilhjálmur Friðrik, sem varð Georg þriðji, þá tuttuguogtveggja ára gamall og var konungur í sextíu ár, og hefur enginn þjóðhöfðingi - nema Viktoría - ríkt jafnlengi yfir Bretlandi. Georg mun ekki hafa verið neitt sérlega heimskur maður og honum tókst að mestu að halda sínum hlut gegn stjómmálamönnunum sem færðu sig æ ofar á skaftið. Hann var alvarlega þenkjandi og vildi reynast landi sinu vel, var guðhræddur og æðrulaus á örlagastundum - framan af. Eftir tæpa áratugi í hásætinu varð Georg fyrir hræðilegu áfalli, uppreisn nýlendn- anna í Ameríku. Þær unnu frelsisstríð sitt eins og allir vita og urðu Bandaríkin en Georg lét þetta ekki á sig fá og þótti skána með árunum. Þangað til hann varð allt í einu vitlaus. í einkalífi sínu var Georg nokkuð ■ Elísabet II - líf og fjör á rúmstokknum. farsæll. Hann elskaði konuna sfna og átti með henni helling af börnum, sem honum þótti líka vænt um en þó skaut gamall djöfull Hanover-fólksins upp kollinum; það var kalt milli Georgs og ríkisarfans, sent auðvitað hét Georg It'ka. Konungurinn var ástríkur faðir en sonurinn kærði sig ekkert um óhóflega ást og verndun hans og talaði illa um pabba gamla þegar hann heyrði ekki til. Svo gerðist það um haustið 1788 að yftr kvöldverði í Windsor-höll þótti kóngsi nokkuð skrýtinn. Hann blaðraði stöðugt einhverja vitleysu og allt t' einu stökk hann á fætur og reyndi að brjóta höfuð sonar síns á veggnum. Um svipað leyti er sagt að hann hafi ávarpað eikartré nokkurt svofelldum orðum: „Kæri konungur Prússlands..." Það var greini- legt að Georg þriðji var orðinn spinnegal. Sérfræðingar hafa deilt um það síðan hvort veikindi hans hafi aðeins verið sálræn eða hvort orsakirnar hafi 'Verið líkamlegar, og nú eru flestir á því

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.