Tíminn - 25.07.1982, Side 23
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982.
23
á bókamarkadi
B(st ShoH
..Stork'sot
UOStíK'VSl^
...
í í .itisl.tk**! wkh
míiiUO(hioí«*nftv
M.^íHvÍMi k
Fjodor Dostocvsky:
The Best Short Stories of Dostoevsky
Modern Library 1980
■ Nú? Er bókin í dálkinum hinum
megin ekki nóg? Sýnilega ekki, nú
skulu lesnar fleiri smásögur Dostoévsk-
ijs. Þær eru hér i þessari skrýtnu útgáfu
Modern Library í Bandarikjunum, það
er David Magarshack sem valið hefur
sögurnar, þýtt og ritað formála. David
Magarshack er sami maðurinn og þýddi
að minnsta kosti þrjár hinna stóru
skáldsagan Dostoévskíjs fyrir hinn al-
ræmda bókaflokk Penguin Classics -
nefnilega Glæp og refsingu, Karamazov
og Fábjánann, og þó við vitum ekkert í
hausinn á okkur varðandi rússnesku þá
höfum við grun um að þessar þýðingar
hans séu nokkuð góðar. Hann er raunar
Rússi að uppruna en hefur búið hér á
Vesturlöndum áratugum saman. í
smásögum sinum er Dostoévskij ekki
jafn hamslaus og yftrþyrmandi þar sem
tilfinningar vella og flóa - en jafn
sannar fyrir þvi - svo hér er upplagt
tækifæri til að kynnast nýrri hlið á
þessum rússneska skáldjötni. Nýjum
hliðum jafnvel þvi hann er ekki alltaf
við sama heygarðshornið. í „Hvítar
nætur" er hann ósköp huggulegur og
rómantiskur, i„jólatré og brúðkaup"
bregður hann fyrir sig satirufætinum,
og svo er hér náttúrlega komin hin
magnaða saga „Minnisblöð úr undir-
hcimum". Alls eru sögurnar sjö talsins
og allar þess virði að kynnast þeim.
Magarshack ritar allýtarlegan formála
og hefur margt vitlausara verið um
Dostoévskij skrifað en það sem
þar stendur.
moÉI
John
'Gielí^ud '
AuAclnr
ciudl l/s
Tnm,
John Gielgud:
An Actor and His Time
Penguin 1981
■ Það fór aldrei svo að Sör John yrði
ekki filmstjarna. Núorðið leikur hann
næsta lítið nema í ameriskum kvik-
myndum; þar er hann bæði trekkingar-
tól og gæðastimpill. Snobb Ameriku-
manna fyrir raffíneruðum Bretum er
slíkt að sé Sör John eða Sör Laurence
á kredit-listanum, þá myndin öll fær
annan svip, hún verður nærmesk
klassísk. En þrátt fyrir allt er Sör John
hinn merkasti leikari og var á sínum
tima rómaður Shakespeare-túlkandi i
heimalandi sínu, lék flestöll af hinum
miklu hlutverkum Hristispjóts og fór
vel með öll. Hann segir sína eigin sögu
i þessari bók og gerir það næsta vel,
auk þess að vera hin ágætasta heimild
um breytta tíma i leikhúsinu og
kvikmyndunum er bókin skemmtileg
aflestrar og nóg af slúðri til að halda
manni við efnið. Ekki slæmu slúðri þó,
því Sör John er vammlaus maður,
náttúrlega. En hann segir hér frá Söru
Bernhardt og Edith Evans, frá E.G.
Craig og Granville - Barker, frá Noél
Coward og Somerset Maugham, frá Sör
Laurence og Sör Ralph Richardson, frá
Vivien Leigh og Peggy Ashcroft, frá
Peter Brook og Peter Hall, frá Ellen
Terry, frá Richard Burton, frá Bernard
Shaw og ótal fleirum. Og lesari fær
einnig að kynnast Sör John nokkuð vel,
alvarlegum iistamanni sem leggur sig
allan fram til að skapa list úr hlutverki
sinu. Hlutverk hans i Caligula er aftur
á móti ekki rætt....
r.Hrnnp
TH£ RUSSIAN
RJEVOLUTION FROM
LENINTOSTALIN
1917-1929
Neil Carson: Arthur Miller
Macmillan Modern Dramatists/Mac-
millan 1982
■ Þessi bók er ein hin fyrsta i nýjum
og sæmilega handhægum flokki sem
bandaríska forlagið Macmillan hefur
hafið útgáfu á og er um leikhús; af
öðrum bókum má nefna kver um
Pinter, Búchner, Eugéne Labiche og
Georges Feydeau, einnig um ameriska
leikritagerð upp á siðkastið. Neil
Carson, sem skrifar um Arthur Miller,
er reyndar aðstoðarprófessor i enskum
bókmenntum við háskólann í Guelph
(!) sem mun vera i Kanada. Það er
óhætt að segja að bók hans er ágætur
inngangur fyrir þá sem áhuga hafa á
verkum Millers - þess manns sem sumir
gerðust svo djarfir að fullyrða að hefði
skapað tragidíu nútimans með Sölu-
maður deyr. Þvi fór náttúrlega fjarri
enda er tragidian löngu dauð eins og
áfjáðir lesendur Steiners vita... Verk
Millers eru svolitið kyndug. Þar sem
honum tekst best upp er mikil
dramatísk spenna (eins og það heitir
vist!) i leikritunum, en annars staðar
skemma alvarlegar móraliséringar og
þunglamalegar vangaveltur um lífið,
tilveruna og dauðann allmjög fyrir.
Miller hefur heldur ekki tekist að fylgja
eftir þeim vinsældum sem hann aflaði
sér snemma á ferlinum með All My
Sons, Sölumanninum og fleiri verkum,
og núorðið þykir hann vart i húsum
hæfur sakir leiðinda. Carson telur að
visu að Sköpun heimsins og önnur af
nýrri verkum hans séu gagnmerk og eigi
gott skilið, en um það má deila.
E.H. Can-:
The Russian Rcvolution from Lenin to
Stalin 1917-1929
Papermac/Macmillan 1981
■ Já, ég veit það! Og þó þær séu tvær,
hvað með það? En hér er komin stutt
yfirlitssaga breska sagnfræðingsins Ed-
ward Hallett Carr um rússnesku
byltinguna og svo sannarlega veit
maðurinn um hvað hann er að tala!
Hann hefur ritað þessa sögu í allmiklu
lengra máli, hvorki fkiri né fæ rri en
fjórtán stórum og þykkum bindum, sem
raunar hafa verið gefnar út i pappirs-
kiljuformi af hinni ódrepandi mörgæsa-
útgáfu en eru vart fyrir aðra en sérstaka
áhugamenn og sérfræðinga. Þar að auki
hefur E.H. Carr ritað ýmislegt sem
tengist þessu viðfangsefni hans og hann
er einnig, þó það komi málinu ekki við,
höfundur What is History? sem sumum
þykir merkilegt kver. En sem sé, hérna
fer Edward Hallett fljótt yfir sögu og
kannski fullfljótt, bókin er ekki nema
tæpar 200 siður og margt sem gerist. En
hún er mjög læsileg og eins og
sérfræðingi sæmir er Carr lagið að
þjappa gífurlega vitneskju sina niður i
nokkrar linur, svo lesandi hneigist að
minnsta kosti til að álíta hann hafi allt
sitt á þurru. Sem hann auðvitað gerir.
■ Bækumar hér að ofan ero fengnar hjá Bókabúð Máls og menningar.
Tekið skal fram að hcr er um kynningar að ræða en öngva rítdóma.
OPIÐ í
ÖLLUM
DEILDUM
mánud.—miðvikud. til kl. 18
fimmtudaga til kl. 20
föstudaga til kl. 22
Jón Loftsson hf
HRINGBRAUT 121.
SÍMI 10600 Jkí
i 4 litir
1 RAUTT BRÚNT - BLÁTT - BEIGE
L HAGSTÆÐIR
Bk. GREIÐSLU-
SKILMÁLAR
I
A
Eggjaframleiðendur - Kaupmenn
Höfum jafnan fyrirliggjandi eggjapakkningar fyrir 10 og 12 egg.
Guðbjörn Guðjónsson heildverslun Korngarður 5 simi 85677
KANADA " Radial dekk
Eigum á lager hin margumtöluðu og
vinsælu kanadísku radial dekk.
Margra ára reynsla, frábært slitþol,
algeng ending 60.000 km.
Mýkt í sérflokki. Stór hluti atvinnubíl-
stjóra ekur á Kanadadekkjum
Lágt verð og miklir kostir Kanadadekkjanna
skapa hina miklu eftirspurn. Trúlega mest seldu
radialdekk á íslandi í dag.
Útsölustaðir: Gúmmívinnustofan h.f. Skipholti 35 Reykjavík
' Hjólbarðastöðin Skeifunni 5 Reykjavík.
Hjólbarðahúsið Skeifunni 11 Reykjavík.
Hjólbarðaþjónustan Fellsmúla 24 Reykjavík (Hreyfilshúsinu)
Sólning h.f. Smiðjuvegi 32-34 Kópavogi.
Hjólbarðaþjónustan Hvannavöllum 14 Akureyri.
Smurstöð Olis & Shell Fjölnisgötu 4a Akureyri.
GUMMIVINNUSTOFAN
Skipholti 36 Sinii 31055.