Tíminn - 03.07.1983, Blaðsíða 7

Tíminn - 03.07.1983, Blaðsíða 7
SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1983 7 ■ Það er vel við hæfi að sýna útlitið á lostætinu sem við fengum að snæða: Laxafiðrildi, er nafn með rcntu, eins og sjá má á þessari mynd, en því miður nýtur hún sín engan veginn í svart hvítu. ■ Innbakaði lambalærisvöðvinn var hreint lostæti. ■ Appelsínutangóinn er einfaldur en einkar Ijúffengur ábætir. Tímaniyndir - G.E. ^oáiuha örbylgjuofnar kynnir algera tækninýjung i gerð örbylgjuofna. ER 672 með DELTAWAVE SF Tæknilega fullkomnasta og besta nýting á örbylgjunum ER672 EITAWAVEwerSF puts microwaves to work where you need them most with Toshiba's exclusive new SUPER STIRRER FAN . Spara tíma, orku og uppþvott Verð frá kr. 11.535.- Vertu velkominn í hóp ánœgðra örbylgjuofnseigenda frá TOSHIBA. Abyrg Einar Farestveit & Co. hf. Bergstaðastræti 10A . Sími 16995 Þjónusta Veitingahöllin býður upp á: Breiðfjörð tíl heiðurs Breiðfjörð ■ Oskar leggur gjörva hönd á loka- undirbúning tlallarcocktailsins. Tímamynd - G.E. ■ Untm... Hallarcocktail og Breið- fjörð cru eitthvaðsem Drykkjarhornið mælir óhrætt nteð. Það er Óskar Ár- sælsson, þjónn í Veitingahöllinni sem gefur okkur uppskriftina að helgar- drykkjunum, enda cr viðurgerningur- inn slíkur í Vcitingahöllinni. að við sjáunt enga ástæðu til þess að hverfa þaðan þótt við fáum okkur í glas. Óskar hefur starfað í Veitingahöil- inni síðan hún opnaði, en til þjóns lærði hann á Hótel Loftleiðum, og starfaði þar sl. 8 ár. v Drykkirnir sem Óskar býður okkur Guðjóni Ijósmyndara upp á eru annars vegar Hallarcocktail, sem hann mælir mcð fyrir mat og hins vegar Breiðfjörð, Leifi Brciðfjörð myndlistarmanni til heiðurs, en Leifur annaðist mynd- skreytingu af sinni alkunnu smekkvísi í Veitingahöllinni. Hallarcocktail 3 cl Gin Beefeater 2 cl Dubonnet 1 cl Dom Benedictine Hrært santan í ís. Borið fram í kampa- vínsglasi. Skreytt með kirsuberi. Breiðfjörd (long drink) 3 cl Baccurdi Rom 1 1/2 cl Southern Comfort 1 1/2 cl Cointreu Safi úr 1/4 sítrónu Hrist saman og fyllt upp með sprite. Skreyting: Kirsuber, sítrónusneið og sogrör. Það skal játað að ég var orðin ólöglega kát eftir að hafa prufað þessa tvo öndvegisdrykki, en bragðlauka- kerfið var í fullu lagi, þannig að ég leyfi m2r að segja skál við þá sem 'ætla sér að prófa guðaveigarnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.