Tíminn - 29.05.1983, Síða 22
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
nútíminn
Tappi Tíkarrass
ogYonbrigði
með nýjar plötur
■ Hljómsveitin Tappi Tíkarrass cr
nú farin til London í þeim tilgangi að
taka upp stóra plötu. Upptökur, sem
fara fram í Southern Studios, munu
hefjast 1. júní og upptökumaöur
veröur Tony Cook. Það veröa
Grarrim óg Steríó sem gefa plötuna
út.
Vonbrigði hafa nú lokið viö upp-
tökur á plötu sem inniheldursex lög.
Ráðgert er aö hún komi út í byrjun
júní undir nierki Grammsins.
Þótt frekaí lítiö hafi komið út af
plötum þaö sem af er árinu virðist
einhvcr kippur vera kominn í útgáfu-
starfsemi, enda voriö loksins komiö
og ga’sirnar byrjaöar að kvaka. T.d.'
er hljómsvcitin Trúðurinn tilbúinn
meö þrjátíu mfnútna efni á kassettu
sem hún tók upp í Danmörku fyrir
skömmu, en óvíst er meö útgefanda
cf af verður. Bra
Björgvin Gísla
með Puppets
■ Hljómsveitin Puppcts hefur
áformaö aö halda í tónleikaför um
landiö í surnar og hefur sveitin fengiö
til liös viö sig Björgvin Gísiason sem
songvara í þessari ferð, hann er þó
ekki genginn í sveitína heldur vcröur
svona aukameölimur meö henni í
sumar eftir því sem viö komumst
næst.
Góð
sala á Grace
■ Góö sala er á miöum á tónleika
Grace Joncs hórlendis um næstu
helgi og mun nú vera næstum því
uppselt á seinna kvöldið í Safari.
Grcinilcgt er því að söngkonan á
dyggan hóp aödácnda hérlendis,
„Fingraför“
fá góðar viðtökur
■ Þriöja sólóplata Bubba
Morthens, „Fingraför" hefur hlotiö
góðar viðtökur og ntunu 1000 eintök
af henni hafa runniö út á fyrstu
dögunum þannig að strax var hafist
handa við aö steypá annað upplag af
hcnni.
Á þessari plötu hvcrfur Bubbi
aftur til blús- og vísnatónlistar og
tekur upp þráðinn þar sem frá var
horfið eftir „ísbjarnarblúsinn" 1980.
Ekki spillir þaö heldur fyrir að gamla
brýnið Megas er geslur á plötunni.
Tómas A. Tómasson stjórnaði
gerö þessarar plötu og var hún
hljóörituð í Grettisgati. Auk Tómas-
ar og Mcgasar lögöu hönd á plóginn
þeir Björgvin Gíslason, Ásgeir Osk-
arsson ogGuömundur Ingólfsson cn
sá síöastncfndi mun þenja ntkkuna í
lokalaginu.
*
„A stutt-
buxum“ í
sumarhlýind-
unum
■ „Á stuttbuxum" heitir nýjasta
safnplatan sem kemur út uppúr mán-
aðarmótunum maf/júní hjá Steinar.
Á þessari safnplötu eru t'jöldinn alíur
af dægurlögum laga sem finna má á
plötu þessari eru: (Kcep Feeling)
Fascination með Huntan League,
Church of the Poison Mind mcö
Culture Club, Forgive and Forget
með Blue Zoo, Breakaway meö
Tracey Ullman, The Last Film með
Kissing the Pink, Temptation með
Heaven 17, Na, Na Na Hey Hey Kiss
Him Goodbyc með Bananarama.
I
FRABÆRT THOMAS
■ Tónleikar David Thomas í Tjarnar-
bíói veröa örugglega eftirminnilegir
þeim sem þá sóttu enda tókst kappanum
að skapa frábæra stemmningu með söng
sínum og söguflutningi enda tókst hon-
um mjög vel aö ná sambandi við áheyr-
endur.
Undirritaður gat því miður ekki mætt
fyrr en kappinn hóf flutning sinn og
missti því af Þorsteini Magnússyni sem
kom fram á undan með nýtt efni.
Hinsvegar hafði ég heyrt áður spólu með
upptöku af þessu efni, að vísu án
gítarleiksins, en hún var mjög áheyrileg,
ekta „Neues dcutsch" tónlist, í dekkri
kantinum svona á svipuðum línum á
D.A.F. Textinn sem fluttur var með var
citthvað á þessum nótum:
„Þreyttur maður, þartkagangur
þrotabú á rústum andans
Vomar yfir barnagangur
vofubúinn andi fjandans
gekk að spegli glápti yfir
gekk svo burtu hinum megin
hvor er það sem hvergi lifir
af hvunndeginum burtu þveginn?
Sit á sviði
sálarfriði
rúinn
veð ég villu?
veld ég illu?
Búinn
Flutningur David Thomas var sem
fyrr segir frábær. Prógramm hans skiptist
á milli söngs (með aðstoð segulbands) og
sagna í fyndnari kantinum þannig að á
stundum minnti hann mann á „David
Thomas útgáfuna af Lenny Bruce".
Það fór ekki framhjá neinum sem las
tilkynningar um kappann að hann er
nokkuð þéttur á velli, í blöðunum voru
orð eins og „hinn akfeiti" og „sá feiti"
o.s.frv. en hann fléttaði oft líkamsvexti
sínum inn í sögurnar, gerði góðlátlegt
grín að þessu.
Ég ætla ekki að reyna að endurskrifa
beint neitt af sögum hans enda myndi
slíkt ekki fara neitt nærri því að ná þeirri
tilfinningu og persónulega hlýleik sem
einkenndi allan flutninginn, þótt ég hafi
líkt Thomas við Lenny Bruce er ástæða
til að taka fram að þar sem Bruce var
„grófur" er Thomas „snotur" í flutningi
sínum.
Hvað sönginn varðar þá hefurThomas
nokkuð sérstæða rödd og kann að beita
henni, en söngurinn var byggður upp á
svipuðum línum og sögurnar. Þeir sem
töldu að hann yrði eitthvað í líkingu við
það sem hann gerir með Pere Ubu
sveitinni urðu kannskifyrirvonbrigðum,
rnér fannst hinsvegar ánægjulegt að
kynnast nýrri hlið á þessum kappa.
-FRI
eg6
■ Fyrrverandi og núverandi Egó menn
að nýja trommaranum undanskildufn
komu saman yfir kaffi og vöfflum á
veitingahúsinu Torfunni þann 17. maí sl.
í því skyni að taka á móti gull-viðurkenn-
ingum fyrir metsölu á plötunum „Breytt-
ir tímar" og „í mynd". Báðar þessar
plötur seldust í vel yfir 5000 eintökum
en það er einmitt markið sem miðað er
við þegar gullplötur eru veittar.
Daginn eftir flugu Bubbi og Rúnar
suður til Portúgal í sólina og skömmu
síðar héldu Bergþór og Bjarni hljóðmað-
ur til Lundúna í því skyni að fjárfesta í
nýjum tækjum fyrir hljómsveitina. Nýr
trominari mun síðan' bætast í Egó innan
tíðar og hljómsveitin hefja störf af
fullum krafti þegar líða tekur á sumarið.
Bubbi Morthens, Bergþór Morthens og
Magnús Stefánsson fengu sitthvora gull-
plötuna, aðra fyrir „Breyttir tímar" og
hina fyrir „I mynd". Þorleifur Guðjóns-
son fékk gullplötu fyrir „BT" en Rúnar
Erlingsson fyrir „ÍM". Auk þess fékk
Tómas M. Tómasson afhentargullplötur
fyrir upptökustjórn.
J Núverandi og fyrrverandi Egó ásamt
Steinari Berg.
Classix
nouveaux
í Höllinni
— tónleikar með þeim þann 16. júní
■ Breska hljómsveitin Classix heldur
tónleika í Laugardalshöll þann 16. júní
n.k. en hingað kemur hljómsveitin á
vegum Hallvarðs E. Þórssonar umboðs-
manns.
Tónlist Classix er nýrómatíkin svo-
kallaða en þeir hafa notið nokkura
vinsælda hérlendis á undanförnum
árum, hver man ekki eftir laginu „Is it a
dream" af síðustu stóru plötu þeirra La
verité.
Hljómsveitin kemur gagngert hingað
til að halda þessa tónleika, ekki er um
að ræða millistopp á leiðinni austur eða
vestur eins og oftast er þegar svona
„númer" koma, en héðan fara svo tveir
meðlimanna beint til Helsinki til plötu-
upptöku, enda er einn meðlimanna J.
Sumen finnskur.
Hljómsveitina skipa nú þeir Sal Solo
söngvari, gítarleikari, lagasmiður og
yfirleitt allt í öllu hjá sveitinni, Mik
Sweeny, B.P. Herding, J. Sumen og S.
Paul Wilson.
Classix er upphaflega stofnuð af
tveimur félögum úr hljómsveitinni X-
Ray-Specks, annar þeirra hætti fljótlega,
en hinn B.P. Herding er enn með, en
hljómsveitin er stofnuð 1979.
Fyrstu plötu sína Robot dance gáfu
þeir út sjálfir en árið 1980 komust þeir á
samning hjá EMI og fyrsta plata þeirra
þar bar nafnið Guilty. Síðan kom fyrsta
stóra plata þeirra Night people og síðan
La Verité er á þeirri plötu voru nokkur
vinsæl lög, t.d. Never again auk ofan-
greinds.
Classix hefur lokið upptökum á nýrri
stórri plötu þannig að væntanlega gefst
íslendingum tækifæri til að heyra nýtt
efni frá þeim í Höllinni.
- FRI