Tíminn - 13.11.1983, Síða 9
SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983
9
menn og málefni
Ranyrkja og ofnýting nátt-
úrugæða leiðir til vesældar
■ Þróun mála í veröldinni er um
margt á annan veg en spáð var fyrir
nokkrum áratugum. Framfarir í vís-
indum og tækni eru miklar og ekki síst
á sviði hernaðar og geimferða, sem í
mörgum tilfellum er samtvinnað.
Minna er nú hlustað á hagvaxtarpostul-
ana en áður. Mönnum er ljóst að
auðæfi jarðarinnar eru ekki ótak-
mörkuð og efnahagsspár.sem byggjast
á aukinni nýtingu auðlinda.eiga ekki
sama hljómgrunn og fyrr. Græðgi og
rányrkja er undirstaða skjótfenginna
auðæfa.en sé til lengri tíma litið veldur
slíkt háttarlag aðeins fátækt og neyð.
í lok síðasta mánaðar var fjallað
allítarlega um vöxt borga í fréttatíma-
ritinu Newsweek, og spáð um framtíð
þeirra, en stansað við árið 2000.
Lengra þora spámenn ekki að líta þótt
skammt sé til ársins 1984. Æðisgenginn
vöxtur borga.sérstaklega í þriðja heim-
inum,er martröð sem enginn sér fyrir
endann á. Borgir sem telja yfir 30
milljónir íbúa eru fyrirbæri sem eru
mannkyninu óþekkt. Þær verða þó
nokkrar eftir hálfan annan áratug.en
alls er reiknað með að aldamótaárið
verði 60 borgir í heiminum, sem telja
yfir 5 milljónir íbúa, þrjár af hverjum
fjórum í þriðja heiminum.
Mannfjölgunarsprengingin sem
margir hafa varað við er að verða að
veruleika. Þótt íbúum í nokkrum iðn-
ríkjum fjölgi ekki, og fækki jafnvel,
hefur það lítil áhrif á hina gífurlegu
mannfjölgun í þriðja heiminum. Fyrir
aðeins þrem áratugum bjuggu 700
milljónir manna í borgum. f dag býr
1.8 milljarður í borgum og um næstu
aldamót munu borgarbúar vera orðnir
um 3 milljarðar, sem er meira en
helmingur þess fjölda er þá er áætlað
að búi á jörðinni.
Það liggur ekki í augum uppi á
hverju allt þetta fólk á að lifa. Enn
síður hvernig á að veita þá þjónustu
sem kröfur eru gerðar um til borgar-
yfirvalda. Umferðarvandamálin verða
og eru víða óyfirstíganleg. Hvernig á
að veita hreinu vatni um borgirnar og
hvað á að gera við frárennslið? Hvers
konar skólakerfi er hægt að bjóða
unglingum upp á? í stórborgum þriðja
heimsins er þetta allt þegar orðið
mikið vandamál og eykst með hverju
árinu. Svo að aðeins sé tekið dæmi, þá
eru 2 milljónir barna í Mexikóborg
sem ekki njóta neinnar skólagöngu, og
er þetta aðeins eitt af óleysanlegum
vandamálum þar.
Stórborgir í Asíu og Suður-Ameríku
vaxa dag frá degi, að miklu leyti
skipulagslaust og án þess að nokkur
mannlegur máttur fái rönd við reist.
Afríka er ekki eins mannmörg og
margur virðist hyggja, en straumurinn
til borgannaþar og stækkun þeirra er
eigi að síður vandamál sem ekki sér
fyrir endann á, fremur en annars
staðar.
Spyrnt við fótum
í alræðisríkjum vilja valdhafar hafa
stjórn á sínu fólki. í Sovétríkjunum og
Kína þurfa þegnarnir að hafa vegabréf
innanlands og þarf sérstök leyfi til að
fá að flytja á milli staða. Langt er síðan
Rússar fóru að takmarka flutninga til
Moskvu og annarra stórborga, sem
fólk sótti mjög til. Þetta er tiltölulega
auðvelt þar sem stjórn efnahagsmála
er á einni hendi og hægt er að beina
fjármagni til atvinnuuppbygginga þar
sem stjómendum best líkar.
í Kína er fólksfjölgunarvandamálið
mikið og barnmörgum foreldrum er
gert óhægt um vik að sjá fyrir ómegð-
inni. Með .þessu hyggjast stjórnendur
koma í veg fyrir að hjón freistist til að
eignast of mörg böm. Eins og gefur að
skilja em stórar borgir í Kína og
verður að beita hörku til að stemma
stigu við útþenslu þeirra. Shanghai er
fjölmennust kínverskra borga og er
fyrir löngu orðin alltof fjölmenn til að
hægt sé að halda þar uppi þeirri sjórn
og þjónustu sem teljast verður eðlileg.
Sú herferð sem yfirvöld standa nú
fyrir á hendur afbrotalýð, eins og það
er kallað,fer fyrst og fremst fram í
stórborgunum. Þeir sem ekki geta sýnt
fram á að þeir hafi fasta búsetu og
atvinnu eru hiklaust stimplaðir glæpa-
menn og farið með þá samkvæmt því.
Nokkrir eru teknir af, en margfalt
fleiri fluttir- til afskekktra héraða, þar
sem ekki þykir fýsilegt að búa.
Þetta er sem sagt stjórnunaraðgerð
sem þykir nauðsynleg þótt grimmilega
sé að farið.
Svipuðum aðgerðum er beitt víðar
þótt þeir sem hýrast í fátækrahverfum
séu ekki stimplaðir sem glæpamenn.
Nauðungarflutningar á atvinnu- og
húsnæðislausu fólki eru þekkt fyrirbæri
víðar en í alræðisríkjum.
Sú samantekt.sem birtist í News-
week um risaborgirnar.er ekki vanda-
mál sem verið er að koma auga á núna.
Fólksfjölgunin og röskunin á lífríkinu
og gengdarlaus sókn í takmarkaðar
auðlindir hafa verið hugsandi mönnum
áhyggjuefni um nokkurt skeið. Þegar
rit Rómarklúbbsins svonefnda, „Endi-
mörk vaxtarins" kom út fyrir rúmum
áratug vakti það gífurlega athygli og
umtal. En það var látið nægja, því
stjórnendur ríkja voru orðnir svo
blindaðir af hagvaxtarkenningunni að
þeir héldu áfram að lofa þegnunum
gulli og grænum skógum og að smjör
drjúpi af hverju strái, aðeins ef þeir
verða endurkjörnir.
Engu gleymt
og ekkert lært
Um áratug eftir að „Endimörk vaxt-
arins" kom út, skrifaði forseti Rómar-
klúbbsins, Aurelio Peccei, bókina
„Hundrað síður vegna framtíðarinn-
ar“. Þar tekur hann saman þær athug-
anir sem Rómarklúbburinn hefur stað-
ið að og hver árangur hefur orðið af
rannsóknum og framtíðarspám þeirra
mætu manna sem lagt hafa hönd að
verki. Hann er sorglega lítill. Það er
eins og stjórnendur heimsins geti engu
gleymt og ekkert lært, og vandamálin
magnast.
I bók sinni fjallar Peccei allítarlega
um stórborgir framtíðarinnar og er
fyrrgreind umfjöllun bandaríska tíma-
ritsins samhljóða í öllum megindrátt-
um. Rómarklúbburinn boðar ekki
ragnarök, heldur leitast við að setja
fram staðreyndir og framtíðarspár sem
byggjast á þeim. Ef ekki er farið í
neinu eftir því sem skynsemin býður
heldur haldið áfram að ofnýta auðlind-
ir, menga loft, láð og lög og herja á
lífríkið er voðinn vís. Sama er að segja
ef ekki tekst að stemma stigu við
gegndarlausri mannfjölgun, sem krefst
enn meiri rányrkju. En með skynsam-
legri nýtingu auðlinda jarðarinnar og
meiri hófsemi þeirra manna sem hana
byggja og betri stjórnun getur
mannkynið átt ágæta framtíð.
Auðvitað verður vígbúnaðarkapp-
hlaupi að linna og þjóðir verða að læra
að vinna hver með annarri í stað þess
að berjast á banaspjótum. Þá verða
menn að láta af blindri trú á óendanleg-
an hagvöxt og hætta að dýrka hagkerfi
eins og trúarbrögð, og telja að þau út
af fyrir sig leysi allan vanda.
Skipulagt hungur
Ásóknin í borgirnar á margþætta
skýringu. Þangað flykkist fólk til að
freista gæfunnar. Þeir sem búa í fásinni
sveitanna eru með glýju í augum vegna
allra þeirra tækifæra sem þeir halda að
borgir bjóði upp á. Þangað þykjast
menn ætla að sækja auðæfi, glys og
glaum. Þessi ímynd virðist þjóðleg og
milljónirnar sjá það ekki fyrr en of
seint,að oft hafi betur verið heima setið
en af stað farið.
En margar fávíslegar aðgerðir
stjórnvalda í hinum ýmsu löndum hafa
orðið þess valdandi hve stíft fólk sækir
í þéttbýlið. í fjölmörgum Afríkuríkj-
um hafa valdhafar óafvitandi bókstaf-
lega lagt landbúnað í rúst, með hrika-
legum afleiðingum. Ein aðferðin er sú
að halda verði á landbúnaðarvörum í
lágmarki. Til að afla sér vinsælda og
stundum atkvæða í sívaxandi þéttbýli
setja þeir hámarksverð á matvæli, sem
er langt undir því sem bændur þurfa að
fá. Með þessu á að tryggja að þéttbýl-
isbúar fái ódýran mat. En þegar bænd-
ur fá lítið sem ekkert fyrir sinn snúð
missa þeir áhuga á að framleiða fyrir
markað en láta nægja að framleiða til
heimabrúks. Afleiðingarnar eru aug-
Ijósar.
Eftir nokkrar vikur verða Lech Wa-
lesa veitt friðarverðlaun Nobels, og
fær þar allvæna peningafúlgu. Hefur
nokkur veitt því athygli hvað hann
ætlar að gera við peningana? Verð-
launahafinn tilkynnti þegar eftir að
hann fékk fréttirnar um úthlutunina,
að féð mundi renna í sjóð sem kirkjan
hefur stofnað til styrktar pólskum
bændum.
Pólland er gósenland frá náttúrunnar
hendi og óvíða er land eins vel fallið til
ræktunar og þar. Þessi landbúnaðar-
þjóð hefur löngum flutt út mikið af
matvælum. En nautheimsk stjórnvöld,
sem halda að Marx og Lenín hafi sagt
síðasta orðið um nýtingu jarðarinnar
og skipulagningu atvinnuvega og
mannfólks, hafa séð svo um að bændur
fái ekki yrkt jörðina og matarskortur
er í einu besta landbúnaðarlandi
heims. Pólskir bændur voru lítt ginn-
keyptir fyrir samyrkjubúum að
sovéskri fyrirmynd. Fyrir þetta var
þeim hegnt með því að þeir hafa ekki
aðgang að fjárhagslegri fyrirgreiðslu
til að tæknivæða bú sín, ekki afurðar-
lán og ríkið skammtaði þeim hámarks-
verð á matvöru, og skipulagði sölukerfi
eftir sínu höfði, og lífskjör sveitafólks-
ins fóru langt niður fyrir það sem
öðrum var boðið upp á.
Árangurinn kemur m.a. fram í því
að hjálparstofnanir á íslandi hafa gefið
Pólverjum kex, sem erbakað í Reykja-
vík. Hráefni er mjöl ogsykur. Vonandi
þurfa íslendingar aldrei að taka með
þökkum við fisksendingum frá er-
lendum þjóðum til að seðja sárasta
hungrið.
Náttúrugædin
ekki ótakmörkuð
Hvað koma svo þessi vandamál
fslendingum við? Fámennri þjóð sem
býr í stóru og gjöfulu landi, þar sem
offjölgun er ekki vandamál. Landrými
er nægt og engin hætta á að risaborgir
myndist.
En samt sem áður eru mörg teikn á
lofti um að þróunin sé ekki ósvipuð hér
á landi og svo víða annars staðar.
Flótti úr strjálbýli í þéttbýli er ekki
síður mikill hér á landi en annars
staðar og óþarfi að leggja fram tölur og
gögn í því sambandi.
Við þekkjum ekki síður en aðrir
eyðingarmátt rányrkjunnar. Gróður-
eyðing og hrun fiskistofna vegna of-
veiði eru fyrirbæri sem hverju manns-
barni er kunnugt um.
Við göngum of nærri náttúrunni í
síaukinni eftirsókn lífsgæða, sem svo
eru kölluð og sjáum ekki fyrr en um
seinan hverju verði þau eru keypt.
Þrengingar í sjávarútvegi og dapur-
legar spár um viðgang fiskistofna ættu
að opna augu okkar fyrir að náttúru-
gæðin eru ekki ótakmörkuð. Jafnframt
ætti þetta að skýra að auðlegðin verður
ekki til í ríkissjóði eða bönkum. Lána-
sláttur og seðlaprentun megna ekki að
standa undir neins konar lífsgæðum
þegar til lcngdar lætur. Auðsuppsprett-
an eru náttúrugæðin og nýting
þeirra. Seðlar og gull eru ekki annað
en ávísun á það sem sótt er til náttúr-
unnar og framtak þeirra sem hana
nýta.
Þótt þéttbýliskjarninn á suðaustur-
horninu eigi fátt sammerkt með risa-
borgum í útlöndum, er fólksfjöldinn
þar samt dæmu um búscturöskun sem
ekki er séð fyrir endann á. Scm betur
fer hafa íslendingar þó fyrir löngu
komið auga á þetta og sitthvað
verið gert til að spyrna við fótum.
Um svipað leyti og fyrsta
skýrsla Rómarklúbbsins var gefin
út var tekin upp svokölluð byggða-
stefna hér á landi að frumkvæði stjórn-
valda. Með henni var leitast við að
halda jafnvægi í byggð landsins og
beina fjármagni og atvinnutækjum til
þeirra staða sem atorka íbúanna fékk
ekki að njóta sin sem skyldi og atvinnu-
vegir og lífskjör voru á fallanda fæti.
Lífskjörin byggjast
á náttúrugæðum
Byggðastefnan hefur verið gagnrýnd
óvægilega, enda ekkert eðlilegra en að
eitthvað megi að framkvæmd hennar
finna í einstökum tilvikum. Enhugsun-
in sem að baki liggur er rökrétt og
hefur skilað ríkulegum árangri sé á
heildina litið.
Sjálfstæð og öflug bændastétt er
hverri þjóð lífsnauðsyn. Það er sama
hvernig á það mál er litið og hvert
leitað er í nútíð eða fortíð, það verður
engin þjóð öflug, hvorki fjárhagslega
eða menningarlega.nema að matvæla-
framleiðslan sé í góðu lagi og vel
skipulagt dreifingar- og sölukerfi sé
fyrir hendi.
Áróðurinn gegn landbúnaðinum á
íslandi tekur stundum svo út yfir allan
þjófabálk að engu er líkara en að þar
standi viti firrtir menn að baki. Það er
reiknað og spekúlerað og fundið út að
framleiðsla og sölukerfi á landbúnað-
arvörum sé eitt af höfuðmeinum efna-
hagslífsins og jafnvel gengið svo langt
að reikna út að það sé hagkvæmara að
kaupa kjöt og smjör erlendis frá en að
framleiða það í landinu.
Reft er það, að undirstöðuatvinnu-
vegirnir, sjávarútvegur og landbúnað-
ur hafa tilhneigingu til rányrkju, sem
ávallt hefnir sín. En hitt má ekki
gleymast.að sjómenn og bændur eru
nú þess vel vitandi hvað ofnýting
náttúruauðæfanna þýðir og sterk til-
hneiging er í þá átt að koma á jafnvægi
milli nýtingar og náttúrlegrar endur-
nýjunar.
En það verða fleiri en bændur og
sjómenn að átta sig á að rányrkja og
ofnýting náttúrugæða er tímaskekkja.
Það verða einnig hinir að gera sem
byggja lífskjör sín og alla opinberu
þjónustuna á þeim afrakstri sem nátt-
úran gefur af sér á einn hátt eða annan.
* Oddur Olafsson 0
ritstjórnarfulltrúi
skrifar (sw/A