Tíminn - 27.11.1983, Page 2
■ Henni Kolbrúnu er meinilla við að verða fyrir barðinu á Ijósmyndurum, en hún varð nú samt sem áður að láta sig hafa það, þegar Guðjón Ijósmyndari og ég lögðumst á eitt.
Lækjarbrekka tveggja ára:
Býður upp á Skotusel Americaine
og djúpsteikta banana í líkjör
— að ógleymdum tertunum ljúffengu. Nammi, namm!
■ Veitingastaðurin- Lækjarbrekka
varð tveggja ára nú í haust. Það er
Kolbrún Jóhannesdóttir, (áður þekkt
sem Kolla á Hrcssó) sem rckur staðinn,
ásamt manni sínum Snorra Sigurjónssyni
og börnum Lindu og Guðmundi og
tengdabörnum. Umsjónarmanni Eld-
húskróksins þótti vel við hæfi að rabba
örlítið við þau Kolbrúnu og Snorra nú
þegar þessi tveggja ára reynsla er komin
á reksturinn, einkum með það í huga, að
umsjónarmaður hefur • verið nokkuð
reglulegur gestur staðarins á þessu tíma-
bili og einkum fallið fyrir tveimur
réttum, Gratineruðum fiskréttum og
Turnbautanum góða.
- Kolbrún, nú hafa svo margir rætt við
mig um hina ýmsu fiskrétti sem þið hafið
á boðstólunum - hafið þið sérstaklega
sérhæft ykkur í fiskréttum? „Nei, það er
ekki hægt að segja það. Við reynum að
gera öllum til geðs sem snæða hjá okkur,
enda erum við mcð mjög stóran og
fjölbreyttan matseðil, bæði með fiskrétt-
um og kjötréttum. Það þýðir ekkert að
ætla að sérhæfa sig í einu þröngu sviði,
eins og samkeppnin er í dag. Maður
verður að vera viðbúinn því að þurfa að
gera fjölbreyttum hóp matargesta til
hæfis.“
- Snorri, hvernig hefur reksturinn
gengið hjá ykkur - hér í hjarta borgar-
innar? „Hann hefur gengið mjög vel.
Við höfum frá upphafi miðað reksturinn
við það, að hafa alla okkar þjónustu á
boðstólum allan daginn, þannig að hver
og einn getur keypt hér mat allan
daginn, en þar að auki erum við með
smurt brauð, smárétti og sætar kökur og
tertur allan daginn.“
- Umsjónarmaður má í því sambandi
til með að koma því á framfæri að á
Lækjarbrekku fást einhverjar gómsæt-
ustu tertur sem um getur, og er Kolbrún
höfundur uppskriftanna í flestum tilvik-
um. Hún bakar terturnar sjálf á
staðnum, með aðstoð einnar stúlku og
því eru ávallt á boðstólunum nýbakaðar
gómsætar tertur eins og marzipanterta,
umm! Bananaterta o.fl. o.fl.
Snorri er ekkert að skafa utan af því.
þcgar við ræðum terturnar, því hann
segir: „Hér færðu hiklaust bestu tertur í
bænum," en Kolbrún af hæversku segir
bara: „Nei, ætli það nú.“
- Nú er matseðillinn ykkar bæði stór
og fjölbreyttur, hvað leggið þið nú mesta
áhcrslu á?
Kolbrún: „Já, þessi matseðill er sá
áttundi í röðinni frá því við opnuðum.
Það sem hefur reynst hvað vinsælast á
þessum tíma, er Bufftartar með koníaki
að hætti Lækjarbrekku, en við vitum til
þess að margir koma hingað sérstaklega
til þess að fá þann rétt. Þá er hráa
hangikjötið í forrétt alltaf mjög vinsælt
og djúpsteiktur camenbert með rifs-
berjahlaupi hefur verið afskaplega vin-
sæll eftirréttur. Égheld þó aðdjúpsteikt-
ur banani á vanilluís með kakólíkjör sé
að sækja á camenbertostinn.
Annars leggjum við áherslu á rétti
dagsins, einkum í hádeginu, því gestir
okkar í hádeginu á virkum dögum þurfa
að fá snögga afgreiðslu, þar sem þeir
margir hverjir hafa einungis klukkutíma
í mat.“
■ Kokkarnir sem voru á
vakt, þeir Garðar Halldórs-
son, Eiríkur Ingi Friðgeirs-
son og Sörli Ágústsson.
Tímamyndir - G.E.
■ Útlitið á matseðli Lækj-
arbrekku er einstaklega
smekklegt og hæfir vel út-
liti þessa gamla en fallega
staðar.
Snorri bætir við: „Við reynum að
bjóða upp á fjölbreyttan matseðil dags-
ins bæði í hádeginu og á kvöldin, og þá
eru réttirnir j gjarnan talsvert ódýrari,
en af sérréttaseðli. Við erum til dæmis
með á seðli dagsins í dag Grafinn lax,
rjómalagaða rækjusúpu, Gratineraðar
gellur í ostasósu, smjörsteikt heilagfiski,
pönnusteikta lambalifur í rjómasósu og
nautasnitzel með skinku og vínberja-
sósu.“
Kolbrún segir mér að kokkarnir hafi
komið sér saman um að kynna eftirfar-
andi matseðil: Ostagljáðar pönnukökur
með sjávardýrum í forrétt, Skötusel
Americaine í aðalrétt og Djúpsteiktan
banana með vanilluís og kakólíkjör í
eftirrétt.
Kokkarnir Garðar Halldórsson, Sörli
Ágúátsson, Eiríkur Ingi Friðgeirsson,
Guðmundur Ingvarsson og Walter
Ketel, yfirmatsveinn bera ábyrgð á
eldhúsi Lækjarbrekku, en þrír þeir fyrst-
nefndu voru á vakt, þegar við sóttum
Lækjarbrekku heim.
Ostagljáðar pönnu-
kökur með sjávardýrum
uppskrift fyrir fjóra
250 til 200 gr. rækjur, kræklingur, hörpu-
skelfiskur, spergill og sveppir. Þessu
blandað saman.
Hvítvínssósa löguð úr físksoði, hvít-
víni, steinselju og smjörbollu. Fiskinum
blandað saman við, spergli og sveppum.
4 ósætar pönnukökur eru fylltar með
sjávarréttahrærunni, ostur rifinn yfir og
gratinerað í ofni, þar til osturinn er
gullinbrúnn.
Skötuselur Americaine
uppskrift fyrir fjóra
600 grömm skötuselur
laukur
paprika
bacon
tómatur
tómatkraftur
fiskisoð
smjörbolla.
Skötuselurinn, baconið og grænmetið
steikt á pönnu. Tómatmaukið og fisk-
soðið sett út í. Fiskurinn tekinn af
pönnunni og sósan þykkt með smjör-
bollu. Kryddað eftir smekk. Sett í
eldfast mót og gratinerað í ofni.
Borið fram með hrísgrjónum og hvít-
lauksbrauði.
Djúpsteiktur banani,
með vanilluís og
kakólíkjör
uppskrift fyrir 4.
2 bananar skornir eftir endilögnu, og
síðan í tvennt.
Deig búið til úr hveiti, eggjum, lyftidufti,
sykri og vanilludropum (vöfiludeig).
Bönunum dyfið ofan í deigið og djúp-
steiktir. Settir á skál með vanilluís,
rjóma og kakólíkjör.
Njótið vel.