Tíminn - 27.11.1983, Side 5
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1983
5
■ í ágúst sl. voru liðin hundrað ár frá einum
þeim mestu hamförum náttúrunnar sem sag-
an kann frá að greina, en það var sá atburður
er eyjan Krakatoa sprakk í loft upp þann 26.
ágúst 1883. Svo vill til að ólíkt ýmsum öðrum
hamförum náttúrunnar á umliðnum öldum
hafa varðveist harla nákvæmar lýsingar og
frásagnir af atburðum þessum og er það að
þakka Hollendingnum R.D.M. Verbeek, sem
ritaði tveggja binda vísindaverk um þetta efni
og „Krakatoa-nefnd“ breska vísindafélagsins,
sem gaf út skýrslu byggða á langvarandi
athugunum árið 1888. Hafði félagið látið
safna upplýsingum um heim allan um það á
hvern hátt fyrirbærisins varð vart og það er
því af nógu að taka, þegar við rif jum þennan
atburð upp nú.
• gríðarlega nornaketil, þar sem rautt
hraunið kraumaði og varð það að gufu
sem loghitnaði og leysti firnaöfl úr
læðingi.
Með gríðarlegum hávaða sem skók
mikinn hluta jarðar þeyttust nú fjórar
rúmmílur af grjóti og ösku upp í loftið,
hæst í 40 eða 50 mílna hæð.
Afl sprengingarinnar, ásamt þeim
firnum af grjóti sem féll í hafið orsakaði
flóðbylgju, nokkur hundruð feta háa.
Geysti hún í allar áttir frá Krakatoa og
þaut um Súnda-sund með 350 mílna
hraða á klukkustund. Hún braut niður
vita eins og eldspýtur og hollenska
skipið Berouw, sem áður er um getið og
lá strandað við Súmatra, barst nú 3
kílómetra upp á land og þar liggur flak
þess enn í dag, 10 metrum yfir sjávar-
máli.
Þessi ægilegi sjávarveggur olli ógn og
eyðileggingu á Súmatra og á Java. M.a.
skall hann á ströndinni við Merkak, þá
125 fet á hæð, eða eins og 12 hæða hús.
Alls fóru þar 295 þorp í rúst, 36 þúsund
manns létu lífið og 5 þúsund skip og
bátar fórust.
Flóðbylgjan æddi nú út á Indlandshaf
og Kyrrahaf og eftir því að dæma hvenær
hún gerði vart við sig hefur hraðinn verið
sums staðar 400 mílur á klukkustund. í
Surabaya sundi, sem er 500 mílur frá
Krakatoa sýndu flóðmælar tíu þumlunga
hækkun. I Port Elisabeth í S-Afríku,
sem er 5000 mílur í burtu, rykktu skip í
akkerisfestar sínar og það er talið að
bylgjunnar hafi gætt í Ermasundi, - 11
þúsund mílum fjær.
Loftþrýstingurinn frá hamförunum
braut rúður og myndaði sprungur í veggi
í Batavia og í Buitenzorg. Það gerðist og
á stöðum sem voru miklu fjær.
Mesti hávaði
sem um gletur
Þetta varð mesti hávaði sem um getur.
Drunan ætlaði að æra menn á Jövu,
Súmatra og á Borneo, 500 mílur í burtu
(Reykjavík-Grænland) Á Celebes, sem
er nærri 1000 mílur í burtu, voru skip
send af stað til þess að rannsaka hvað
hefði komið fyrir. í Daly Waters í
Ástralíu, sem er 2023 mílur í burtu
(Reykjavík-Rómaborg) sagði einn at-
hugandi: „Við heyrðum sprengingu, sem
' líktist því að einhvers staðar hefðu menn
verið að sprengja grjót. Drunan varði í
nokkrar mínútur.
Bylgjur loftsins eru of veikar til þess
að mannseyrað fái greint þær, en loftvog-
ir greindu þær hins vegar. (Hljóðbylgju-
mælar voru ekki komnir til sögunnar).
Tíu stundum eftir sprenginguna varð
vart við bylgjuhreyfingar í Mið-Evrópu.
Nokkrum stundum síðar sáust svo áhrif-
in á loftvogum skipa á Atlantshafi og í
New York og í Los Angeles.
Um það bil 34 stundum síðar fóru
tækin aftur að titra. Loftbylgjan hafði
lagt af stað í aðra hringför sína í kring
um jörðina. Síðasti veiki titringurinn
sást níu dögum eftir að ósköpin áttu sér
stað.
Rykið sem barst út í andrúmsloftið
barst yfir jörð alla og settist í litlum mæli
á hvert land og hvert haf heims. Eitthvað
af rykinu var í andrúmsloftinu árum
saman og olli þetta ýmsum óvenjulegum
loftsýrum.
Blár, grænn og silfurlitaður bjarmi
sást á sól og tungli og vegna þess hve hátt
á loft rykið var, þá endurkastaði það
sólarbjarma löngu eftir að myrkur hafði
skollið á að kvöldlagi.
BIFREIDADEILD SAMBANDSINS
BÍLASALA HÖFÐABAKKA9 SÍMI 39810
GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORU
Eigum til fáeina Opel Rekord luxus diesel á mjög
hagstæðu verði.
Hagstæðir greiðsluskilmálar
IStíHSBflRTORUR
ODYRARI!
/ síðustu verðkönnun Verðlagsstofnunar
(verðkynning nr. 17)- voru íslensku vörurnar
yfirleitt ódýrari en þær erlendu. ísumum tilvik-
um var verð erlendu vörunnaralltað þrefalt
hærra en þeirraríslensku.
Þannig er hægt að spara með því að bera
saman verð. Taktu íslenskar vörurmeð í
samanburðinn, þá ertþú viss um lægsta verð.
_____Ogenneitt:____
Pú skapar atuinnu í landinu
m-
OPEL REKORD
LUXUS DIESEL