Tíminn - 27.11.1983, Page 6
6
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1983
Byggingarfélag verkamanna,
Reykjavík.
Aðalfundur
félagsins verður haldinn á Hótel Heklu, Rauðar-
árstíg 18, miðvikudaginn 30. nóvember 1983, kl.
20,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Félagsstjórnin.
Félag
vinnuvélaeigenda
minnir félagsmenn sína á 30 ára afmælishátíð á
Hótel Loftleiðum 3. des. 1983.
Þeir sem ekki hafa skráð sig hafi samband við
skrifstofuna.
Afmælisnefndin
Læknastofa
Hef opnað læknastofu í Læknastöðinni Álfheim-
um 74, símatími fimmtudaga frá kl. 12.30-13.00
í síma 86727.
Hafsteinn Sæmundsson
Sérgrein: Kvensjúkdorhar og fæðingarhjálp og
krabbameinslækningar kvenna.
Póstsendum
Kreditkortaþjónusta
Dúkkuvagnar og kerrur
í miklu úrvali
bækur
Lassi I
í baráttu
í baráttu er fyrsta bókin í bókaflokki um
strák sem heitir Lassi. Hann elst upp í litlu
sjávarþorpi en aðstæður verða til þess að
hann verður að flytjast til stórborgarinnar.
Sagan segir frá baráttu Lassa í hörðum heimi
stórborgarinnar. Hún lýsir því hversu ólík
tilveran er á þessum tveim stöðum, þorpinu
og borginni.
Höfundurinn er einn snjallasti barna- og
unglingabókahöfundur Dana, Thöger Birke-
land. Bækur hans eru gífurlega vinsælar í
Danmörku og fáir höfundar njóta viðlíka
hylli og hann.
Sigurður Helgason hókavörður þýddi.
Hann hefur ritað mikið um barna og ung-
lingabækur í blöð og tímarit.
Bókiner 128bls. í Din-broti. Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði. Kápumynd er teiknuð hjá
Almennu auglýsingastofunni hf.
Þetta er bókin um
Jesú frá Nasaret
Hvernig var Jesús? Margir hafa sagt frá
honum og æviferli hans. En enginn samtíð-
armanna hans teiknaði hann eða lýsti útliti
hans. Við verðum því sjálf að gera okkur
mynd af honum í huga okkar.
Sagan um Jesú er hér sögð á annan hátt en
við eigum að venjast. Frásögnin er einföldog
skýr en jafnframt áleitin og vekur til umhugs-
unar.
Paul Leer-Salvesen er guðfræðingur og
hefur starfað sem fangaprestur. Hann hefur
skrifað nokkrar bækur fyrir ungmenni. Bók
hans, Vængbrotinn, hlaut verðlaun norska
menntamálaráðuneytisins 1981.
Rúna Gísladóttir staðfærði.
ELSKAÐU
SJÁLFAN
hín WAY.NE"
IJlU W.DYER
jlDUNN
„Elskaðu sjálfan þig"
— Leiðarvísir í listinni að lifa
Iðunn hefur gefið út bókina Elskaðu
sjálfan þig eftir bandaríska sálfræðinginn dr.
Wavnc W. Dyer. Álfheiður Kjartansdóttir
þýddi. Bók þessi er ný af nálinni og hefur að
undanförnu verið þýdd á fjölda tungumála.
Formála að íslensku úgáfunni ritar Anna
Valdimarsdóttir sálfræðingur.
Bókin Elskaðu sjálfan þig skiptist í tólf
kafla þar sem rætt er um ýmsar hliðar á þeim
vanda að hver maður geti orðið sinnar eigin
gæfu smiður. Kaflaheitin gefa vísbendingu um
hvernig tekið er á efninu: Taktu ábyrgð á
sjálfum þér; Ástin fyrst; Pú þarft ekki á
viðurkenningu þeirra að halda; að verða
óháður fortíðinni; Gagnslausar tilfinningar-
sektarkennd og áhyggjur; að kanna hið
óþekkta; Að ryðja venjuhindrunum úr vegi;
Réttlætisgildran; Engin frestun framar;
Lýstu yfir sjálfstæði þínu; Reiðin kvödd;
Mynd af einstaklingi sem er snúinn af öllum
villigötum.
Bókin Elskaðu sjálfan þig er 206 blaðsíður.
Oddi prentaði. Þýðingin er gefin út með
styrk úr Þýðingarsjóði.
C3B
OG SÍLDARMAMMA
OG OfiLVGUf
Þrjár nýjar bækur um
Rasmus Klump og félaga
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið
iít þrjár nýjar te'knimvndasngur um hina
vinsælu söguhetju barnanna Rasmus Klump.
en áður voru komnar út átta bækur i þessum
flokki. Nýju bækurnar ncfnast: Rasmus
Klumpur ug Sildarmamma, Rasmus Klump-
ur í sveitinni og Rasmus Klumpur í Imattferð.
Eins og svo oft áður lendir Rasmus Klump-
ur og félagar hans í ýmsum saklausum
furðuævintýrum í bókum þessum og koma
víða við. Rasmus Klumpur og félagar hans
hafa lengi verið góðir vinir íslenskra bama,
þar sem teiknimyndasyrpur um þá hafa birst
í m.a. Vikunni og Þjóðviljanum.
Bækurnar um Rasmus Klump eru eftir
Carla og Vilh. Hansen, en þær eru þýddar af
Andrési Indriðasyni. Bækurnar eru filmu-
settar hjá Prentstofu G. Benediktssonar, en
prentaðar og bundnar í Kaupmannahöfn.
; Á trvksferdir Amumlserrs og Scotts
’ (ilSifðutskmitsíns
Káre Holt:
Kapphalupið — Afreksferðir
Amundsens og Scotts til
Suðurskautsins
Káare Holt er viðurkenndur, norskur rit-
höfundur, sem samið hefur yfir 30 bækur.
Margar þeirra eru sögulegs eðlis. Hann hefur
hlotið margs konar verðlaun fyrir bækur
sínar. Þýðandi Sigurður Gunnarsson las
söguna í útvarp haustið 1979.
Kapphlaupið er spennandi skáldsaga þar
sem að nokkru er stuðst við heimildir um
afreksferðir Amundsens og Scotts til Suður-
skautsins.
'J
Björtu hliðarnar
Ævisaga Sigurjónu
Jakobsdótur
„Björtu hliðarnar" heitir ný bók eftir Gylfa
Gröndal. Þetta er ævisaga Sigurjónu Jak-
obsdóttur, ekkju Þorsteins M. Jónssonar
skólastjóra og bókaútgefanda. „Ég hef alltaf
getað séð björtu hliðarnará tilverunni", segir
Sigurjóna Jakobsdóttir, og þetta lífsviðhorf
gengur eins og rauður þráður gegnum endur-
miningar hennar.
Sigurjóna giftist ung Þorsteini M. Jónssyni,
en hann var um skeið alþingismaður og átti
sæti í sambandslaganefndinni 1-918. Þótt
lífsbaráttan væri oft hörð, tókst henni að gera
hvort tveggja í senn: veita mannmörgu
heimili forstöðu og ala upp stóran barnahóp,
en hafði samt tíma aflögu til að sinna
áhugamálum sínum og ýmiss konar félags-
starfsemi.
Þetta er áttunda ævisaga Gylfa Gröndal,
en hann sendi frá sér í fyrra Æviminningar
Kristjáns Sveinssonar augnlæknis, sem varð
metsölubók.
„Björtu hliðarnar" er 208 blaðsíður auk
sérprentaðra mynda. Prentborg prentaði, en
Félagsbókbandið annaðist bókband. Útgef-
andi er Setberg.
Ljóð á Lúthersári
f tilefni af því að liðin eru 300 ár frá fæðingu
trúarhetjunnar Marteins Lúthers gefur Vík-
urútgáfan út nýja ljóðabók eftir Ingimar
Erlend Sigurðsson, Ljóð á Lúthersári. Hún
inniheldur 64 trúarljóð tengd með beinum
eða persónulegum hætti Marteini Lúther.
Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup fylgir
Ljóðum á Lúthersári úr hlaði.