Tíminn - 27.11.1983, Side 12
vT »•
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1983
12
kvikmyndir
Við krefjumst framtíðar:
Kvik-
mynda-
hátíð
gcgn
kjarn-
orku-
vopnum
■ Við krcfjumst framtíðar-hópurinn
gcngst fyrir kvikmyndahátíð í Regnbog-
anum dagana 26. nóvember til 4. des-
cmbcr undir yfirskriftinni: „Kvikmynda-
hátíð gcgn kjarnorkuvopnum" en hér cr
um að ra'ða 9 myndir um stríð og
stríðsrekstur auk þcss scm myndin Ap-
rcalypsc Now vcrður cndursýnd, og
scrstök sýning vcrður á Járnmanninum
cftir Wajda.
Hjá Prússakóngi
Ein athyglisverðasta kvikmyndin á
sýningunni cr „In thc king of Prussia"
gerð af Emile dc Antonio scm m.a. gcrði
myndina „Millhousc" um Richard Nixon
og „In thc ycar of thc pig" um þátt
Bandaríkjamana í Víct Nam stríðinu.
Hjá Prússakóngi fjallar um cr átta
manns er kölluðu sig „Plógjarnin átta“
og réðust inn í vopnaverksmiðju G.E.
samstcypunnar í smábænum King of
Prussina í Pennsylvaníu tóku til við að
eyðileggja kjarnaodda með hömrum og
úthella blóði sínu yfir leyniskjöl þar til
þau voru handtekin. Fjallar myndin um
réttarhöldin í kjölfar þessa atburðar og
lcika þau sjálf sig í myndinni cn Martin
Sheen fer með hlutverk dómarans.
Ameríka frá Hitler
til MX flauganna
Ameríka er leikstýrð af Joan Harvcy
og er rauði þráðurinn í gcgnum hana sá
að sömu bandarísku fyrirtækin ogstuddu
við bakið á Hitler og komu honum til
valda ráða nú kjarnorkuáætlun Banda-
ríkjanna. Eru þau, samkvæmt myndinni,
langt komin á veg með að steypa okkur
í þriðju heimsstryrjöldina, dyggilega
studd af Reagan og hans líkum. Auk
þcss lciðir myndin í Ijós hvcrsu gífurlcg
mcngunin er orðin af völdum gcislavirks
úrgangs.
Svarti hringurinn
Nokkuð óvenjuleg heimildarmynd þar
scm greint er frá lífi persóna sem orðið
hafa gcislavirkni að bráð. Sagt cr frá
Japananum Taniguchi sem var 16 ára er
sprengjan féll á Nagasaki og í tvö ár á
eftir lá hann á sjúkrahúsi í algcrri óvissu
um framtíð sína. Einnig cr rætt við
verkamann í Rockwell verksmiðjunni í
Rocky Flats, bóndi cinn segir frá reynslu
sinni cn mikið af svínum hans hafa fæðst
gífurlega vansköpuð.
Glataða kynslóðin
Japanir cru sennilega öðrurn betur
mcðvitaðir um hættuna af kjarnorku-
stríði og þar í landi er félagsskapur sem
hcitir „Tíu fcta hreyfingin". Þessi félags-
skapur stóð fyrir söfnun í Japan til að
kaupa heimildarkvikmyndir þær sern
Bandaríkjamenn gerðu eftir árásirnar á
Hirosima og Nagasaki og er þessi heim-
■ Krieg Und Frieden
ildarmynd byggð á stuttum atriðum úr
þessu heimildarmyndasafni.
Stríð og friður
Þessi mynd er þýskt inlegg í umræðuna
um þau mál sem nú eru efst á baugi í
alþjóðapólitíkinni. Unnin í hópvinnu og
leikstýrt af fjórum mönnum, þeim Stefan
Aust, Volker Schlöndorff, Alexander
Kluge og Heinrich Böll.
Samnefnd skáldsaga Tolstoys er höfð
til hliðsjónar en viðfangsefnið er Þýska-
land - stuðpúði Evrópu, og vilja höfund-
ar myndarinar sýna gamalt og nýtt
pólítískt þema í Ijósi sögunnar sem og
samtímans.
Engin undankomuleið
Kvikmyndaáhugafólk kannast eflaust
við myndina Atomic Café sem hér var
sýnd á Amerísku kvikmyndahátíðinni í
fyrra en þessi mynd notar mikið til sömu
kvikmyndafilmurnar og þar sáust en í
öðrum tilgangi og með ólíkum árangri.
Öfugt við Atomic Cafe sem lagði mest
upp úr skoplegu hliðunum reyna leik-
stjórarnir Bird og Johnson að vekja
athygli á þætti stjórnvalda í vígbúnaðar-
kapphlaupinu milli 1950 og 60 og setja
þeir fram athyglisverðar tilgátur um
hvernig stjórnvöld Ijúga að þegnum
sínum og nota rangar upplýsingar til að
koma í veg fyrir sjálfstæða skoðana-
myndun. Tónlistin í myndinni er samin
af Brian Eno.
Stríðsleikurinn
Stríðsleikurinn (War Game) er senni-
lega þekktasta myndin á þessari kvik-
myndahátíð en hún var gerð fyrir BBC
árið 1965 af Peter Watkins og sögu-
þráður hennar er hugsanleg kjarnorku-
árás á Bretland í heimildamyndastíl og
afleiðingarnar sem slík árás hefði í för
með sér.
BBC bannaði sýningu á þessari mynd
árið 1965 og hefur hún ekki verið sýnd
þar, eða í öðrum sjónvarpsstöðvum
síðar en ástæða sem BBC gaf var að..“
áhrif myndarinnar hafa verið metin af
BBC of ógnvekjandi fyrir sjónvarps
útsendingu...“
Hinar tvær myndirnar sem sýndar
verða auk þessara sjö eru „Við erum
tilraunadýrin" og „Dómsdagur".
-FRI
■ Þann 26. nóvember nk. hefst í
kvikmyndahúsinu „Regnboginn“ í
Reykjavík Sovésk kvikmyndavika. Við
setningu kvikmyndavikunnar, sem hcfst
klukkan 14.00 vcrður sýnd kvikmyndin
„Okkar maður meðal ókunnugra - ók-
unnugur á meðal okkar". Aðrar kvik-
myndir á kvikmyndavikunni eru:
„Sóttkví", „Mimino". „Hótel hins deyj-
andi fjallgöngumanns" og „Veiðar
Stakh, konungs". Kvikmyndirnar á há-
tíöinni fjalla um hin ólíkustu eíni. Hér á
eftir fer stuttur úrdráttur úr þeim.
Okkar maöur meðal ókunnugra
- ókunnugur á meðal okkar.
Meðan á borgarastyrjöldinni stendur
verða Saritsjev, Shilov, Kungurov, Za-
belin og Lipjagin mjög góðir vinir. Nú
heyrist ekki í fallbyssunum.enóvinurinn
heldur áfram að koma í veg fyrir endur-
uppbyggingu hins ungasovéska lýðveld-
is. Landið þarf á korni að halda cn það
er aðcins hægt að kaupa erlendis fyrir
gull. Héraðsstjórn flokksins sendir hið
dýrmæta gull sitt til Moskvu meö lest.
Shilov og hermenn hans gæta gullsins. Á
leiðinni ræðst bófahópur Brilovs á lest-
ina.
Sóttkví
Barnaheimili er sett í sóttkví og Masha
litla, sem er fimm ára verður að vera
heima. Hún á foreldra, afa og ömmu og
langafa og langömmu, en öll eru þau of
upptekin og önnum kafin til að veita
henni tnikla athygli. Masha verður að
sjá um sig sjálf.
I þessari kvikmynd sýnir leikstjórinn,
Ilja Frez hvað gerist hjá fjölskyldunni.
Hér er um gamanmynd um alvarlegan
undirtón að ræða þegar fjallað er um
samskipti barna og foreldra. Boðskapur
myndarinar er sá, að ekkert geti komið
í stað fjölskylduástar og heimilis.
Mimino
Valiko Mimino er flugmaður, sem
Sovésk kvik-
myndavika í
Regnboganum
flýgur þyrlu í fjöllum Grúsíu. Hann
kemur með lækninn þegar einhver er
sjúkur, kcmur mcð skólaborðin og flytur
matvæli til fjallabúa. Það er ekki að
ástæðulausu að hann er kallaður „mim-
ino“ sem þýðir „fálkinn". En hann á sér
dagdrauma, þar sem fljúga hljóðfráar
þotur, hann kemur við í erlendum
„Okkar maður
meðal
ókunniigra...”
sýnd við
setningu
hátíðarinnar
löndum og þar er allt ólíkt hinu daglega
lífi hans. En einn góðan veðurdag fer
hann til Moskvu til að verða flugmaður
á þotu.
Hótel „Fjallgöngumaðurin,
sem fórst“.
Glebsky, lögregluforingi var kallaður
til lítils fjallahótels, sem ber nafnið
„Fjallgöngumaðurin, sem fórst". Þegar
hann kemur þangað er loftið lævi
blandið.
Snjóar koma í veg fyrir að hann geti
farið aftur heim og hann dvelur á
hótelinu í nokkra daga. Undarlegir hlut-
ir fara að gerast. Einn gestanna finnst
látinn í herbergi sínu, en ekki eru nein
merki um morðingja. Gestirnir á hótel-
inu haga sérsvo undarlega, aðallirvekja
þeir grun.
Glebsky, sem er eini fulltrúi yfirvalda,
fer að ransaka málið og kemst að því að
verur frá annarri plánetu hafa komið til
jarðar og tvær þeirra eru róbótar. Þær
urðu að fara í flýti til baka, vegna þess
að jarðarbúar, sem ekki eru tilbúnir til
að taka upp samskipti við verur utan úr
geimnum, drápu eina þeirra og höfðu
næstum eyðilagt farkost þeirra.
Veiðar Stakh, konungs.
Þessi kvikmynd gerist í skógum Hvíta-
Rússlands í lok 19. aldar.
Andrej Beloretsky, er ungur
þjóðháttafræðingur frá St. Pétursborg,
sem kemur til Polessie til að leggja stund
á þjóðháttarannsóknir. Hann býr hjá
Nadezhu Janovskaju, sem er síðasti
fulltrúi fornrar aðalsættar. Hún segir
Beloretsky þjóðsögu um einn forfeðra
hennar, sem átti í illdeilum við konung
bændanna, Stakh. Samkvæmt sögunni
sór Stakh þess eið að hefna sín á
Janovskí-ættinni þangað til í tuttugasta
ættlið. Frá því hefur öll sveitin lifað í
ótta við Stakh, konung.
Beloretsky fær áhuga á málinu og
uppgötvar smátt og smátt að það eru
lifandi verur, sem grímubúa sig sem
„gesti á villidýraveiðunum“. Yfirvöld á
staðnum vita um þetta, en gera engar
ráðstafanir til að stemma stigu gegn
þessu, vegna þess að þeim hentar að fólk
skuli vera hrætt og hlýðið.